Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 28
É g byrja yfirleitt á því að nota rakamikil eða feit krem, til dæmis nota ég mikið nýja EGF Power Cream frá Bioeffect, Skin Food frá Weleda eða Rose Day Cream frá Dr. Hauschka. Það er mikilvægt að fylla húðina raka og næra hana, nudda húðvörurnar vel inn í hana og þá verður hún strax þrýstnari og áferðarfallegri,“ segir Ísak, að- spurður hvernig best sé að byrja á því að skapa nátt- úrulega förðun. Hann segist frekar nota góð andlitskrem í stað farðagrunna þegar hann er að skapa náttúrulega förð- un, en þannig blandast farðinn húðinni betur að hans sögn. Blandar saman vörum fyrir fullkomna áferð Hann notar ekki hefðbundinn farða heldur blandar hann saman þremur vörum sem að hans mati skapa sér- lega náttúrulega ásýnd. „Mér finnst alltaf gaman að blanda saman vörum og skapa þannig réttu áferðina sem ég leita að. Þessa dagana blanda ég saman einni pumpu af Skin Feels Good-farðanum frá Lancôme, tveimur dropum af Bronzing Gel frá Sensai og dassi af fljótandi ljóma frá Armani sem nefnist Fluid Sheer Glow Enhancer,“ út- skýrir Ísak en segir um leið að sér finnist liturinn BG61 af Bronzing Gel frá Sensai virka best í þessari blöndu. „Þeg- ar ég er búinn að bera þetta á húðina þá dýrka ég að spreyja Fix+ Magic Radiance frá MAC yfir allt andlitið en það er nærandi andlitssprey sem er rakagefandi og inni- heldur til dæmis C-vítamín og hýalúrónsýru,“ segir hann. Notar allt sem er kremkennt Við þekkjum flest þreytulega ásýnd augnsvæðisins og þann bláma sem kann að myndast þar undir. Ísak segist mikið nota Touche Éclat frá Yves Saint Laurent, hylj- arann sem margir þekkja einfaldlega sem gullpennann, og blandar honum saman við ferskjulitaðan kremaugnskugga frá Shiseido til að fríska upp á augnsvæðið og fela bauga. Spurður um bestu hyljarana fyrir þá sem eru ekki jafn öruggir að blanda saman vörum, þá svarar Ísak: „Ég elska hyljarana frá Clé de Peau, hef notað þá í mörg ár, en ég nota allt sem er kremkennt. Allt sem heitir matt, þá hleyp ég burt.“ Kinnalitur frekar en sólarpúður Þegar Ísak er beðinn um að nefna sólarpúður, sem gott er að nota til að fá aukna hlýju í andlitið, þá kemur svarið á óvart: „Ég er mun meira fyrir kinnaliti heldur en sól- arpúður, líkt og venjan er í Frakklandi. Það er mikilvægt að vera með smá lit í kinnum og ég nota gjarnan ferskjulit- aða kinnaliti,“ segir hann en ferskjulitaðir tónar veita and- litinu oft náttúrulegri hlýju frekar en sólarpúður. Í þau skipti sem Ísak notar sólarpúður segist hann gjarnan nota sólarpúðrið frá NARS. Fer alltaf aftur í Armani-farðana Ísak á farsælan feril að baki en hann hefur verið búsett- ur í London frá árinu 2010. Hann hefur farðað fyrir tímarit á borð við Vogue og ELLE, farðað stórstjörnur á borð við Katy Perry og Dua Lipa og farðað fyrir hinar ýmsu aug- lýsingaherferðir. Ávallt tekst Ísaki að framkvæma farð- anir þar sem húðin er einstaklega falleg. Blaðamaður var því forvitinn að vita að lokum hvort það væru ákveðnar vörur eða vörumerki sem stæðu alltaf fyrir sínu? „Ég prófa mikið af vörum í starfi mínu en ég fer alltaf aftur í Armani-farðana, það er eitthvað við áferðina,“ svarar Ísak en að auki nefnir hann Eight Hour Cream frá Elizabeth Arden: „Ég nota það gamla og góða krem til að fá aukinn ljóma í húðina á tilteknum svæðum,“ nefnir hann að lok- um. Farðalaus ásýnd að hætti Ísaks Auðvelt getur verið að þekja andlitið farða og afmá öll ummerki misfellna en oft getur minna verið meira. Ísak Freyr Helgason, einn farsælasti förðunarfræðingur landsins, er sannarlega meistari í að jafna húðina og gera hana fallegri ásýndum án þess að hún virki of förðuð. Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com Lancôme Skin Feels Good Hydrating Skin Tint er mikið notaður. 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 Þessi úði frá MAC veitir mikinn raka. Elizabeth Arden Eight Hour Cream er í uppáhaldi. Sensai Bronzing Gel er ein mest selda snyrtivara heims. Ísak notar það mikið. Ísak Harðarson förðunarfræð- ingur er búsettur í Lundúnum. Yves Saint Laurent Touche Éclat gull- penninn gerir krafta- verk að hans mati. Ísak fer alltaf aftur og aftur í þennan farða. Þessi mynd var tekin á tískusýn- ingu Chanel á dögunum. Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is PLUSMINUS | OPTIC Hæ Við erummeðSWING gleraugu og þau eruÆÐI Kosta bara9.900 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.