Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 28
É
g byrja yfirleitt á því að nota rakamikil eða feit
krem, til dæmis nota ég mikið nýja EGF Power
Cream frá Bioeffect, Skin Food frá Weleda eða
Rose Day Cream frá Dr. Hauschka.
Það er mikilvægt að fylla húðina raka og
næra hana, nudda húðvörurnar vel inn í hana og þá verður
hún strax þrýstnari og áferðarfallegri,“ segir Ísak, að-
spurður hvernig best sé að byrja á því að skapa nátt-
úrulega förðun. Hann segist frekar nota góð andlitskrem í
stað farðagrunna þegar hann er að skapa náttúrulega förð-
un, en þannig blandast farðinn húðinni betur að hans sögn.
Blandar saman vörum fyrir fullkomna áferð
Hann notar ekki hefðbundinn farða heldur blandar
hann saman þremur vörum sem að hans mati skapa sér-
lega náttúrulega ásýnd. „Mér finnst alltaf gaman að
blanda saman vörum og skapa þannig réttu áferðina sem
ég leita að. Þessa dagana blanda ég saman einni pumpu af
Skin Feels Good-farðanum frá Lancôme, tveimur dropum
af Bronzing Gel frá Sensai og dassi af fljótandi ljóma frá
Armani sem nefnist Fluid Sheer Glow Enhancer,“ út-
skýrir Ísak en segir um leið að sér finnist liturinn BG61 af
Bronzing Gel frá Sensai virka best í þessari blöndu. „Þeg-
ar ég er búinn að bera þetta á húðina þá dýrka ég að
spreyja Fix+ Magic Radiance frá MAC yfir allt andlitið en
það er nærandi andlitssprey sem er rakagefandi og inni-
heldur til dæmis C-vítamín og hýalúrónsýru,“ segir hann.
Notar allt sem er kremkennt
Við þekkjum flest þreytulega ásýnd augnsvæðisins og
þann bláma sem kann að myndast þar undir. Ísak segist
mikið nota Touche Éclat frá Yves Saint Laurent, hylj-
arann sem margir þekkja einfaldlega sem gullpennann, og
blandar honum saman við ferskjulitaðan kremaugnskugga
frá Shiseido til að fríska upp á augnsvæðið og fela bauga.
Spurður um bestu hyljarana fyrir þá sem eru ekki jafn
öruggir að blanda saman vörum, þá svarar Ísak: „Ég elska
hyljarana frá Clé de Peau, hef notað þá í mörg ár, en ég
nota allt sem er kremkennt. Allt sem heitir matt, þá hleyp
ég burt.“
Kinnalitur frekar en sólarpúður
Þegar Ísak er beðinn um að nefna sólarpúður, sem gott
er að nota til að fá aukna hlýju í andlitið, þá kemur svarið á
óvart: „Ég er mun meira fyrir kinnaliti heldur en sól-
arpúður, líkt og venjan er í Frakklandi. Það er mikilvægt
að vera með smá lit í kinnum og ég nota gjarnan ferskjulit-
aða kinnaliti,“ segir hann en ferskjulitaðir tónar veita and-
litinu oft náttúrulegri hlýju frekar en sólarpúður. Í þau
skipti sem Ísak notar sólarpúður segist hann gjarnan nota
sólarpúðrið frá NARS.
Fer alltaf aftur í Armani-farðana
Ísak á farsælan feril að baki en hann hefur verið búsett-
ur í London frá árinu 2010. Hann hefur farðað fyrir tímarit
á borð við Vogue og ELLE, farðað stórstjörnur á borð við
Katy Perry og Dua Lipa og farðað fyrir hinar ýmsu aug-
lýsingaherferðir. Ávallt tekst Ísaki að framkvæma farð-
anir þar sem húðin er einstaklega falleg. Blaðamaður var
því forvitinn að vita að lokum hvort það væru ákveðnar
vörur eða vörumerki sem stæðu alltaf fyrir sínu? „Ég
prófa mikið af vörum í starfi mínu en ég fer alltaf aftur í
Armani-farðana, það er eitthvað við áferðina,“ svarar Ísak
en að auki nefnir hann Eight Hour Cream frá Elizabeth
Arden: „Ég nota það gamla og góða krem til að fá aukinn
ljóma í húðina á tilteknum svæðum,“ nefnir hann að lok-
um.
Farðalaus
ásýnd að
hætti Ísaks
Auðvelt getur verið að þekja andlitið farða
og afmá öll ummerki misfellna en oft getur
minna verið meira. Ísak Freyr Helgason,
einn farsælasti förðunarfræðingur landsins,
er sannarlega meistari í að jafna húðina
og gera hana fallegri ásýndum án
þess að hún virki of förðuð.
Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com
Lancôme
Skin Feels
Good
Hydrating
Skin Tint
er mikið
notaður.
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022
Þessi úði frá
MAC veitir
mikinn raka.
Elizabeth
Arden Eight
Hour Cream
er í uppáhaldi.
Sensai Bronzing Gel er
ein mest selda snyrtivara
heims. Ísak notar það mikið.
Ísak Harðarson
förðunarfræð-
ingur er búsettur
í Lundúnum.
Yves Saint
Laurent
Touche
Éclat gull-
penninn
gerir krafta-
verk að
hans mati.
Ísak fer alltaf
aftur og aftur í
þennan farða.
Þessi mynd
var tekin á
tískusýn-
ingu Chanel
á dögunum.
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Hæ Við erummeðSWING
gleraugu og þau eruÆÐI
Kosta bara9.900 kr.