Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 35 Glæsibær, Álfheimar 74, pöntunarsími 831 5676. Netbókanir á www.noona.is/fegurdogspa Microblade • Fíngerðar og eðlilegar hárlínur • Mildur valkostur fyrir varanlega förðun • Brúnir sem endast í allt að tvö ár • Fullkomið til að skerpa/fylla í augabrúnir eða forma nýjar A R T I S T Heiðdís Steinsdóttir heimaverkefni sem ég hef verið að láta pör fá sem tengj- ast þessu, til að brjóta ísinn og prófa eitthvað nýtt. Hver veit nema maki okkar sé að hugsa nákvæmlega það sama en þori ekki að tjá það?“ Allir eru fallegir á sinn hátt Nú er mikil útlitsdýrkun í gangi og margir feimnir við eigin líkama, þar sem líkamar okkar eru alls konar og alls ekki eins og glans- myndirnar í blöðunum. Hvernig vinnur þú í þessu? „Þetta er mjög algengt, því miður. Ég nota mismun- andi aðferðir til að vinna með þetta og fer mjög mikið eftir á hvaða aldri viðkomandi er. Þegar unnið er með unglinga hef ég verið með forvarnafyrirlesturinn „Sjálfsmynd og kynheilbrigði“. Þar ber helst á þessum samanburði. Ég hvet þau oft til þess að hugsa út frá sjálfum sér þegar kemur að sem dæmi samfélagsmiðlum. Hvernig þeim líð- ur með sig þegar þau eru búin að horfa á sögu fólks á Instagram sem dæmi, eða fara þau í niðurrif með líkam- ann og finnst þau ekki eins frábær og viðkomandi. Sam- anburður við eitthvað, sem er kannski fótósjoppað er al- gjört eitur. Ég bendi líka öllum á að fylgja Ernu sem er með Ernul- and á Instagram. Hún er búin að vera að berjast fyrir já- kvæðri líkamsímynd. Umhverfi okkar og félagsleg tengsl geta haft mikil áhrif á sjálfsmyndina og því skiptir máli að reyna að velja eins vel og maður getur. Þegar konur koma til mín með brotna eða lélega sjálfs- mynd byrjum við oft á að skoða hvað það er sem er magn- að við viðkomandi líkama. Oft eru konur á þeim stað að það er ekkert sem þeim líkar við á sjálfum sér en svo þeg- ar maður kafar dýpra kemur í ljós að það er eitthvað sem hægt er að byggja ofan á. Þetta er æfing og vinna en það er magnað að sjá árangurinn með tímanum. Og þá er ég ekki að tala um að missa einhver kíló eða laga eitthvað, heldur einfaldlega breyta hugarfarinu og hugsunum sín- um til sjálfs sín. Við erum eins ólík og við erum mörg, og kynþokki og útgeislun kemur svo sannarlega ekki bara út frá því hvernig þú lítur út heldur hvernig manneskja þú ert.“ Mikilvægt að læra að þiggja Áttu fimm góð ráð til að auka færni í nánd á kynferð- issviðinu? Ef við tökum dæmi um par þá geta þessi atriði verið: Að snerta hvort annað oftar yfir daginn. Þegar þú labb- ar fram hjá viðkomandi að gera létta snertingu yfir svæði á líkamanum sem þú veist að viðkomandi aðili kann að meta. Horfast oftar í augu og dvelja þar. Það getur verið áskorun fyrir einhverja en oft eru orð óþörf og með þess- ari æfingu eruð þið berskjölduð og það getur leitt til þess að nándin verði dýpri. Að hrósa hvort öðru, segja hvað þér líkar við í fari mak- ans og hvað þú kannt að meta við viðkomandi. Hvað heillar þig. Senda kynæsandi skilaboð yfir daginn. Það þarf ekki einu sinni að vera neitt skrifað, það má senda tjákn (e. emoji) sem þið tengið við og tákna eitthvað ákveðið fyrir ykkur. Að skrifa hvort öðru ástarbréf eða setja einhver skilaboð á post-it-miða og lauma í jakkavasa viðkomandi eða tölvunatöskuna. Að taka dag eða kvöld frá sem snýst eingöngu um annan aðilann og skipta svo á milli. Þar sem það er ljóst hvað viðkomandi vill, allt frá um- hverfi, tónlist, snertingu og kynlífi. Þar sem annar þiggur og nýtur og hinn gefur. Það getur verið krefjandi þar sem það er innprentað í okkur að gefa og þiggja strax, en ef þú veist að þú munt gera það síðar geturðu sleppt tökum á því og notið stund- arinnar sem á sér stað akkúrat á þessu augnabliki.“ Ekki hafa sjónvarp í svefnherberginu Viltu nefna fimm hluti sem fólk ætti að forðast að gera inni í svefnherbergi? „Ég veit ekki alveg hvað ég ætti að segja með fimm at- riði en ég hef þá persónulegu skoðun að það eigi aldrei að vera sjónvarp inni í svefnherbergi hjá pörum. Þá fer tím- inn kannski meira í það að horfa á þátt og sofna út frá honum en að njóta stundar saman. Það er mjög misjafnt hvað fólk tekur með sér inn í svefnherbergi. Kannski er þetta eini staðurinn þar sem hægt er að ræða mál eins og börn og fjármál og slíkt í friði fyrir öllu áreiti, en ég mæli með að reyna að forðast það og tala frekar saman um eitthvað annað innan veggja svefnherbergisins.“ Hvað með hugsanir, hvernig við hugsum til okkar – skiptir það máli? „Það skiptir að sjálfsögðu miklu máli. Ef við erum föst í niðurrifi og gagnrýni á okkur sjálf eru minni líkur á að við náum að njóta í sem dæmi kynlífi. Þá dvelur hugurinn meira þar en í stundinni sem er mögulega að eiga sér stað. Stærsta kynfærið er heilinn. Ef hann er að ofhugsa náum við minna að njóta kynlífsins.“ Hvað með hugsanir til maka okkar, er eitthvað sem skiptir máli í því samhengi? „Hvernig við hugsum til maka okkar hefur áhrif á það hvernig okkur líður með makanum. Ef við erum ást- fangin upp fyrir haus og endalaust að dást að maka okkar hefur það að sjálfsögðu góð áhrif á samband okkar og kynlíf. Alveg eins og það kveikir ekkert í okkur ef við er- um pirruð út í viðkomandi og það er eitthvað að trufla okkur við viðkomandi. Þá er best að ræða það, tækla og leysa.“ Það á ekki að vera tabú að biðja um aðstoð Hvernig má auka á fjölbreytileika og skemmtun í kyn- lífi? „Það er hægt að gera margt til þess að gera kynlíf sitt skemmtilegra. Í fyrsta lagi er mikilvægt að þetta þarf ekki að vera eitthvað alvarlegt. Það má hafa húmor fyrir hlutunum, gera eitthvað fyndið og skemmtilegt og reyna að hlæja ef það gerist eitthvað vandræðalegt. Ég mæli alltaf með að deila því hvað kveikir í þér. Skoða í samein- ingu eitthvað sem gæti kryddað hlutina. Þora að prófa nýja hluti og fara á námskeið. Það er ótrúlega margt í boði þarna úti og mikið um frábær námskeið. Sem dæmi mæli ég með því sem Spektrum Reykjavík býður upp á. Oft getur verið gaman að prófa eitthvað nýtt, og það versta sem gæti gerst er að þið komist að því að þið fílið ekki eitthvað ákveðið en mögulega geta opnast nýir skemmtilegir heimar. Einnig er alltaf gaman að deila fantasíum sínum hvort með öðru. Oft eru fantasíur eitt- hvað sem við myndum aldrei gera í alvörunni en mögu- lega er eitthvað sem hægt er að framkvæma og verður geggjað. Kynlíf er mikilvægur hluti af því hver við erum sem manneskjur. Þegar við erum sátt með það kynlíf sem við stundum líður okkur betur. Það er hægt að vinna í því að gera kynlífið betra og einnig er hægt að gera gott kynlíf enn betra. Það á ekki að vera tabú að ræða um kynlíf eða leita sér aðstoðar ef þarf.“ Ljósmynd/Colourbox Kristín Þórsdóttir er kynlífs- markþjálfi sem aðstoðar fólk við allt milli himins og jarðar þegar kemur að málefnum á kynferðissviðinu. „Heilbrigt kynlíf er mjög vítt hugtak. Eitthvað sem gæti verið heilbrigt kynlíf fyrir þér getur virk- að „triggerandi“ fyrir aðra og öfugt.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.