Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 25
B urstinn á maskaranum er stór og mynd- arlegur og það er auðvelt að bera hann á sig. Hægt er að byggja maskarann upp með því að fara nokkrar umferðir yfir augnhárin eða þangað til notandinn er orðinn sáttur. Ef það er hægt að segja eitthvað neikvætt um þennan maskara þá er það kannski helst að hann lengir augnhárin svo mikið að hann getur smitað í augnlokið. Flestir myndu þó flokka þetta sem algert lúxusvandamál og því ætti kannski ekki að nefna það. Maskarinn þykkir og lengir svo vel að það er varla þörf á augnskugga. Það eina sem mætti bæta við er blýantur inn í vatnslínuna en slíkt er mjög auðvelt í framkvæmd. Það gefur mikinn svip og tekur ekki nema eina mínútu eða svo að framkvæma þann gjörning. Lengri og bústn- ari augnhár Ef þú þráir löng og bústin augnhár án þess að vera með sérstakar augn- háralengingar er Lash Clash Extreme Volume-maskarinn frá YSL fram- úrskarandi. Marta María Winkel Jónasdóttir | mm@mbl.is Ef þú þráir löng hefðarkatt- araugnhár þá er þessi mask- ari frá YSL eitthvað fyrir þig. FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 25 Meðferð gegn öldrun húðar Fjölnota hrukkuplástrar úr ekta læknasílikoni sem viðhalda raka húðarinnar, örva blóðflæði og auka kollagenframleiðslu sem hægir verulega á ummerkjum öldrunar. Endurheimtu æskuljómann WrinklesSchminklesIceland www.wrinkles.is með Þ að er sama á hvaða aldri fólk er, allir geta unnið að því að vera með frábæra húð. Krem sem vinna á móti öldrun húð- arinnar eru þau vinsælustu í dag ef marka má rannsóknir og sífellt er verið að finna upp nýjungar þessu tengdar. NIVEA Cellular Expert Lift-línan er dæmi um krem sem sérfræðingar segja jafnast á við náttúrulegt bótox. Kremin innihalda efni sem all- ir ættu að kynna sér, bakuchiol sem við berum fram „ba-koo-cee-all“. Efnið er upprunnið í Asíu þar sem það er mjög þekkt og er unnið úr fræj- um plöntunnar Psoralea Corylifolia. Bakuchiol eykur kollagenframleiðslu um 48% á aðeins fjór- um klukkustundum. Þeir sem vilja skjótan sjá- anlegan árangur strax ættu að prófa Cellular Expert Lift- kremin. Sléttari húð á einung- is fjórum klukkustund- um Nivea

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.