Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022
S
unneva er búsett í London og stundar meist-
aranám í myndlist í Goldsmith-háskólanum.
Þaðan hafa myndlistarmennirnir Damien
Hirst og Sarah Lucas, dame Vivienne
Westwood fatahönnuður og tónlistarmað-
urinn Damon Albarn einnig útskrifast.
„Áður en ég flutti út seldi ég öll verkin mín til þess að
eiga fyrir náminu í London. Tilviljun réð því að Dorrit
Moussaieff hreifst af verkum mínum. Þar sem hún er öll-
um hnútum kunnug í London lagði hún að mér að sækja
þess hátíð og fyrir það er ég henni ákaflega þakklát.
Á hátíðinni hitti ég fyrir eiganda R+V-gallerísins,
ræddi við hann og fékk frá honum nafnspjald og tímarit
frá safninu, þar sem hann sýndi verkum mínum áhuga. Á
leiðinni heim af hátíðinni réðu svo örlögin því að maður í
lestinni rak augun í tímaritið. Við tókum tal saman, hann
gaf mér nafnspjaldið sitt og var þar kominn annar
fulltrúi gallerísins. Ég ákvað því að skrifa þeim bréf.
Galleríið yfirfór í kjölfarið öll mín verk og verkefni og
fékk mig til fundar. Þá lærði ég að þessir ókunnugu
menn, sem ég hafði hitt hvorn í sínu lagi, voru feðgar.
Þetta var bara allt svo mikil tilviljun, alveg „absúrd“ í
rauninni. Þeir heilluðust svo mjög af verkum mínum og
boðskapnum að við ákváðum í kjölfarið að vinna að sýn-
ingu saman,“ segir Sunneva.
Konur fá misvísandi skilaboð
Hún segir að við fáum margvísleg og misvísandi skila-
boð frá samfélaginu. Oft sé erfitt að henda reiður á þeim.
„Það sem álitið er fallegt og hreint, eins og hvít blúnda á
brúðkaupsdaginn, kemur beint úr viðjum kúgunar og of-
beldis,“ segir hún en þannig er lífið eins og málverk
hennar; fjarska fallegt og pastelbleikt en við nánari
skoðun gróteskt og margvíslegt.
„Þessi torræðu skilaboð skella sérstaklega á konum.
Konur eiga að vera náttúrulega fallegar, en þeim leyfist
að svindla. Húðlitaðar sokkabuxur eru dregnar yfir bera
leggi og konur setja á sig gervihár. Því fagurt hár er
prýði en veldur velgju ef það ratar í matinn. Skilaboðin
berast okkur alls staðar frá; í gegnum samfélagsmiðla,
sögur og ævintýri, fréttir og kjaftasögur,“ segir Sunneva
um nýjustu verka hennar á sýningunni í London hjá gall-
eríinu Robilant+Voena.
Galleríið er ítalskt fjölskyldufyrirtæki og heldur úti
fleiri galleríum, m.a. í New York, Mílanó og París. Það
hefur fram til þessa einbeitt sér að ítalskri list og þekkt-
um listamönnum, meðal annars sýnt verk eftir Picasso,
Damien Hirst, Andy Warhol, David LaChapelle, Lucio
Fontana og Jeff Koons svo einhverjir séu nefndir. Er því
ekki nema von að spurt sé hvernig það kom til að þeir
tóku verk Sunnevu til sýningar.
„Ég trúi að þetta tækifæri hafi komið til mín því ég
setti það út í veröldina. Ég fór á Frieze-listahátíðina í
London síðasta haust, sem er eins konar myndlistar-
messa þar sem öll listagallerí heimsins koma saman og
sýna rjómann af því besta í listaheiminum í dag.“
Sýningin og skilaboðin
Á sýningunni gefur að líta stórt málverk með heitið
„Garðabrúða“ eða Rapunzel. Þar skoðar Sunneva gömlu
söguna um Garðabrúðu þeirra Grimmsbræðra. Í æv-
intýrum felast lausnir á vandamálum konunnar yfirleitt í
hetjulegri björgun karlhetjunnar og þau lifa síðan saman
hamingjusöm til æviloka.
„Raunverulegt líf er sóðalegra og flóknara, en samt er
stelpum kennt að bíða eftir sinni einu sönnu ást. Þessi
hugmynd er öllum hættuleg,“ segir Sunneva og bætir
við:
„Því hún kennir okkur konum að bíða eftir að aðrir
bjargi okkur. Raunveruleikinn er hins vegar sá að við
sjálf erum einfær um að bjarga okkur.
Með þetta í huga fór ég að rýna betur í gömlu sög-
urnar og ævintýrin úr æsku okkar. Ég velti fyrir mér
hinu mikla „trauma“ sem ævintýrin hafa lagt á sögu-
persónur æsku okkar, það er kvenpersónanna. Lítil
stúlka dregur kannski þann barnslega, einlæga boðskap
af sögunni af Garðabrúðu að ef heimurinn fær aðeins séð
fallega hárið hennar og fær að heyra blíðu röddina verði
henni bjargað. Í reynd væri Garðabrúða sennilegast
stórsködduð og andlega niðurbrotin eftir vistina og varð-
haldið. Það er ótrúverðugt að hún og prinsinn hennar
hafi lifað hamingjusöm til æviloka eftir allt sem á undan
Myndlistarkonan Sunneva Ása
Weisshappel opnaði stóra einka-
sýningu í London á dögunum. Öll eiga
þau þó sameiginlegt að fjalla um
manneskjuna, hversdagslegar athafnir
og tilfinningalega úrvinnslu, kvenfyrir-
myndir jafnt sem eitraðan kvennakúltúr,
kynbundinn ójöfnuð og valdbeitingu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Anna Maggi
„Garðabrúða,
litla ljúfa, láttu
síga hárið
prúða“
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Hæ Við erummeðSWING
gleraugu og þau eruÆÐI
Kosta bara9.900 kr.