Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 32
J ónbjörg S. Hannesard. Guðrúnardóttir fékk sér sílikonpúða í brjóstin fyrir sjö árum. Í kjölfarið versnaði heilsa hennar til muna og lét Jónbjörg loksins fjarlægja púðana í byrjun apríl. Hún fann strax mun eftir aðgerðina og er hætt að taka inn gigtarlyf. Heilsa Jónbjargar var orðin það slæm að hún flutti af þriðju hæð niður á jarðhæð. „Í mars 2015 fór ég og fékk brjóstapúða frá Mentor. Þessir sem ég fékk voru með hrjúfri skel á yfirborðinu. Þeir eru taldir jafnslæmir og þeir sem búið er að innkalla. Ég bíð eiginlega eftir að þeir verði innkallaðir líka,“ segir Jónbjörg og vísar til púða sem voru innkallaðir fyrir nokkrum árum. Þeir voru svipaðir og þeir sem Jónbjörg var með. Jónbjörg tók ákvörðun um að fá sér sílikonpúða eftir að hún var búin að eignast þrjú börn. Líkaminn hafði tekið miklum breytingum og hún var óörugg með sjálfa sig. „Ég mjólkaði rosalega mikið eftir að þau fæddust og ég slitnaði alveg svakalega á brjóstunum. Ég var alveg með tóma lafandi tepoka, niður á nafla nánast. Ég lendi í skiln- aði 2013 og mér leið mjög illa með sjálfa mig. Ég fór í síli- kon af því að mér fannst brjóstin á mér ekki nógu góð og ekki öðrum bjóðandi,“ segir Jónbjörg. Hún segir skaðlegar staðalímyndir í samfélaginu hafa haft áhrif á sig. Í dag er henni sama um útlitið og segir að mikil vitundarvakning um líkamsvirðingu hafi átt sér stað á undanförnum árum. Slík umræða hafi ekki verið komin langt á veg árið 2015. Fann fljótt fyrir versnandi heilsu Jónbjörg hafði glímt við vefjagigt í nokkur ár áður en hún fékk sér brjóstapúðana en segir að einkennin hafi versnað til muna um fjórum mánuðum eftir aðgerðina. „Ég fékk verki í bakið, á milli herðablaðanna, bólgu og stingi sem voru bara komnir til að vera. Ég vaknaði einn morguninn með sjúklegan verk á milli herðablaðanna, meira við hægra herðablaðið. Svo fara einkennin að áger- ast, vefjagigtareinkennin verða verri og verri. Ég verð þreyttari og þreyttari. Ég næ mér aldrei á strik, líður aldr- ei betur. Ég var mjög virk manneskja. Gerði helling með börnunum mínum, svo tapaði ég heilsunni jafnt og þétt eft- ir aðgerðina. Átti ekki einn góðan dag.“ Það sem Jónbjörg glímdi við er kallað „Breast Implant Illness“ á ensku og er helst lýst sem aukaverkunum vegna brjóstapúða. Hún segist oft hafa farið til heimilislæknis vegna versnandi heilsu, fór til gigtarlæknis og í endurhæf- ingu. Enginn benti henni á að ástæða versnandi heilsu gæti verið brjóstapúðarnir. „Þú ert bara með vefjagigt“ eða „við vitum ekkert hvað er að þér“ voru svör sem hún fékk gjarnan. „Svo fékk ég bólgur í fótinn, fór versnandi í hægri fæti alveg frá ökkla niður í tær. Það vissi enginn hvað þetta var. Blóðprufur sýndu ekkert, bara að það væru einhverjar bólgur. Ég var hrædd um að ég væri að fá alvarlega gigt sem ekki væri hægt að greina,“ segir Jónbjörg og bendir á að bólgur séu gigtareinkenni. Hún neyddist meðal annars til að flytja af þriðju hæð á jarðhæð þar sem hún gat ekki lengur gengið upp og niður stiga með góðu móti. Eftir að Jónbjörg eignaðist fjórða barnið í október 2019 með núverandi manni sínum hrakaði henni enn meira. „Eftir að ég átti hana var ég nánast rúmliggjandi.“ Það var fyrir fjórum árum sem Jónbjörg fór fyrst að leggja saman tvo og tvo. Hún áttaði sig á að púðarnir væru aðskotahlutir í líkamanum og það gæti verið að þeir hefðu slæm áhrif á heilsu hennar. Hún tók þó ekki ákvörðun fyrr en í október á síðasta ári um að láta fjarlægja púðana. „Það tekur tíma fyrir mann að sættast við þá tilhugsun að maður hafi gert sjálfum sér svona mikinn óleik að fá sér púða. Ég var í pínu afneitun, ég vildi ekki missa púðana, vildi ekki missa brjóstin. En svo kom bara tímapunktur í október á síðasta ári þar sem ég fékk nóg. Ég gat ekki meira af þessu heilsuleysi, ég var svo búin á því.“ Þegar blaðamaður talaði við Jónbjörgu, um þremur vikum eftir aðgerð, hafði hún ekki enn upplifað að vera búin á því eftir daginn. Fyrir aðgerðina fann hún daglega fyrir því að vera uppgefin. „Ég fann strax mun á orkunni. Hún var mikið jafnari yfir daginn. Ég var þannig að ég gekk á orkudrykkjum. Ég gat varla hreyft mig, farið út í búð eða gert nokkurn skapaðan hlut án þess að drekka orkudrykki eða þamba kaffi,“ segir Jónbjörg. „Ég finn alveg fyrir vefjagigtareinkennunum enn þá en mun- urinn er svo mikill. Allar bólgur úr báðum fótum eru farnar. Ég hef ekki fundið fyrir því í þrjár vikur. Ég stíg bara fram úr rúminu og haltra ekki neitt. Þetta er bara lygilegt.“ Líkaminn reyndi að gera Jónbjörgu grein fyrir óþolinu fyrir púð- unum með ýmsum hætti. Fyrir um fjórum árum hætti hún að þola epli og vínber. „Ég fékk mikla verki í bringubein og milli herðablað- anna þegar ég borðaði ávextina, þetta var einhvers konar óþol. Í dag get ég borðað epli og vínber án vandkvæða og það gerðist eftir að púðarnir fóru. Ég prófaði reglulega að fá mér en fékk alltaf verki. Ég get ekki talið eplin eða magnið af vínberjum sem ég hef innbyrt eftir að púðarnir fóru.“ Fékk bara uppáskrifuð lyf Jónbjörg segir að lækna hafi ekki skort viljann til að gefa henni lyf. „Það eru bara uppáskrifuð lyf, meiri verkjalyf, bólgueyðandi. Ég hef ekki þurft að taka inn gigtarlyf, bólgueyðandi eða verkjalyf til þess að sofa síðan ég kom úr aðgerðinni ef frá er talið vegna verkja í brjóstum rétt eftir aðgerðina.“ Jónbjörg segir að ónæmiskerfi hennar hafi verið að berjast við aðskotahlutina, brjóstapúðana, í líkamanum. Nú þegar búið er að fjarlægja þá fær líkaminn loksins tíma til að vinna í því sem hefur setið á hakanum. Hún segir mismunandi hversu opnir lýtalæknar séu fyrir því að við- urkenna að brjóstapúðar geti haft skaðleg áhrif á heilsu fólks. Jónbjörg ákvað að fara til Kristjáns Skúla Ás- geirssonar, sem er sérhæfður brjóstaskurðlæknir, en hún hafði heyrt góðar sögur um hann. „Viðmótið hjá honum var mjög gott. Hann neitaði engu, þetta væri ekki bara ég að ímynda mér eða eitthvað slíkt eins og maður hefur heyrt að læknar segi. Eina sem hann sagði var að hann gæti ekki lofað mér betri heilsu, en sagði að margar konur fyndu fyrir betri heilsu eftir að púðarnir færu. Þann- ig viðurkenndi hann það strax.“ „Ég vil að konur viti af hættunni“ Jónbjörg S. Hannesard. Guðrúnardóttir fékk sér sílikonpúða í brjóstin fyrir sjö árum. Í kjölfarið versnaði heilsa hennar til muna og lét Jónbjörg loksins fjarlægja púðana í byrjun apríl. Hún fann strax mun eftir aðgerðina og er hætt að taka inn gigtarlyf. Heilsa Jónbjargar var orðin það slæm að hún flutti af þriðju hæð niður á jarðhæð. Guðrún Selma Sigurjónsdóttir | gudrunselma@mbl.is Heilsa Jónbjargar hefur skánað mikið eftir að hún lét fjarlægja púðana. „Ég lendi í skilnaði 2013 og mér leið mjög illa með sjálfa mig. Ég fór í sílikon af því að mér fannst brjóstin á mér ekki nógu góð og ekki öðrum bjóðandi.“ 32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 OPIÐ fyrir umsóknir Lingó er vottaður umboðsaðili á Íslandi fyrir alþjóðlega fagháskóla víða um lönd; Á Englandi, Skotlandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Kanada og í Bandaríkjunum. Nám í slíkum skóla er einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hug- mynda, stefnum og straumum víða að úr heiminum. Aðstaða og umhverfi er eins og best gerist og kennarar eru reyndir fagmenn og sérfræðingar. Nám erlendis í hönnun, miðlun, sjónlistum, stjórnun, sviðslistum, tísku, ferðaþjónustu eða viðskiptum, opnar einnig möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Háskólanám erlendis á sviði skapandi greina Nám erlendis opnar þér nýjan heim, að heiman.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.