Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.05.2022, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 23 Frábær golffatnaður Fallegur, þægilegur og hentar fullkomlega í íslenska golfsumarið. Skoðaðu fjölbreytt úrval golffatnaðar á golfa.is. Við sendum allar vörur frítt á næsta pósthús eða í póstbox. Hafðu samband og við finnum tíma í mátun. golfa@golfa.is golfa.is golfa.is er gengið. Svona áfall hefur raunverulegar afleiðingar. Það veldur flótta og fíknum og virkilega heggur nærri fólki og reynir það. Þessi hlið gömlu ævintýranna vekur áhuga minn og ég reyni að setja hana í samhengi við samtímann. Fegurð Garðabrúðu og langir lokkar mega kannski heita óumdeildir í ævintýrinu en hvernig reiddi henni af í okkar heimi? Í raunveruleikanum með öll sín skrýtnu, andstæðu og þversagnakenndu skilaboð til ungra stúlkna?“ Sunneva heldur áfram: „Það sem mér finnst skemmti- legast við listir og þá einna helst myndlist er að hún er alltaf spegill á þann sem horfir. Stóri spegilinn verður svo samfélagið eða samtíminn og þannig leikur hún stórt hlutverk í að skapa mannkynssöguna. Það sem mér finnst hins vegar skemmtilegast er þegar áhorfandinn sér eitthvað allt annað en vakti fyrir mér. Þannig var eitt verkanna með rennilás utan um röð af tönnum. Ég var að vísa til þess eiginleika okkar að smjatta á slúðri og bera út róg um náungann, en fullorðinn maður á sýning- unni sá úr því tennta píku sem gæti bitið til manna sem legðu í hana! Áhorfandinn fer eins djúpt ofan í veruleika bæði myndlistarmannsins og sín sjálfs og hann getur,“ segir Sunneva. Þarf ekki ástarsorg til að mála „Ég var svolítið lengi að samþykkja að ég þyrfti að láta verkin vinna fyrir mig. Það er ekki hægt að sitja á gullkistu, öllum merkilegu verkunum sínum og bíða rétta tímans. Þegar ég var yngri hafði ég klassískar og rómantískar hugmyndir um „listamanninn“. Ég sá sjálfa mig fyrir mér eina í ástarsorg að skapa og mála. Ég taldi sársauka og trega vera uppsprettu listar. En ég öðlaðist aðra sýn þegar ég ákvað að hætta að drekka 24 ára göm- ul. Þá breyttist lífið svo mikið. Ég varð hamingjusamari, glaðari og frjálsari. Ég lærði að það má skapa list og vera hamingjusamur. Bölið er ekki forsenda listrænnar sköpunar, þótt það sé magnað hreyfiafl. Ég fór hins vegar nær kjarnanum, sannleikanum um líf mitt, og í stað þess að skapa fyrir aðra eða eftir hug- myndum mínum um hvað list ætti að vera gerði ég það sem mig langaði til.“ Hvernig útskýrir þú hugmyndirnar að baki málverk- unum og það að rómantísk fantasía geti snúist upp í and- stæðu sína þegar betur er að gáð? Ljósmynd/Baltasar Breki Samper Sunneva er búsett í London þar sem hún er í meistaranámi í myndlist í Goldsmith- háskólanum. Ljósmynd/Anna Maggí Robilant+Voena sem sýnir verk Sunn- evu er ítalskt fjölskyldufyrirtæki sem heldur úti galleríum í London, New York, Mílanó og París. „Það sem mér finnst skemmtilegast er þegar áhorfandinn sér eitthvað allt ann- að en vakti fyrir mér. Þannig var eitt verk- anna með rennilás utan um röð af tönn- um. Ég var að vísa til þess eiginleika okk- ar að smjatta á slúðri og bera út róg um náungann. En full- orðinn maður á sýn- ingunni sá úr því tennta píku sem gæti bitið til manna sem legðu í hana. Áhorfandinn fer eins djúpt ofan í veruleika myndlistarmannsins og sinn eigin og hann getur,“ segir Sunneva.5 SJÁ SÍÐU 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.