Morgunblaðið - 20.05.2022, Page 27
1Þægileg sólarvörn á
hverjum degi
Þó þú gerir ekkert annað en að
hefja notkun á sólarvörn daglega, þá
ertu að gera húðinni mikinn greiða. Sól-
argeislarnir skaða húðina gífurlega, or-
saka framkomu ótímabærra öldr-
unarmerkja og geta stuðlað að
húðkrabbameini. Mikilvægt er að
finna formúlu sem er þægileg á húð-
inni og býr að lágmarki yfir SPF 30. Í
dag koma sólarvarnir í hinum ýmsu
formum svo ekki ætti að vera vanda-
mál að finna þá formúlu sem þér
finnst þægilegust – ekki gleyma að
bera vörnina á þig reglu-
lega yfir daginn.
2Léttara
krem
Þegar hitastigið
hækkar og rakinn í
andrúmloftinu
eykst, þá kjósa margir að skipta
yfir í léttari andlitskrem. Þó form-
úlan sé léttari getur hún veitt gíf-
urlegan raka og þú finnur fyrir
auknum þægindum í húðinni. Próf-
aðu Clinique Moisture Surge-rakagelið, en það
inniheldur til dæmis lífgerjað aloe vera og hefur
sefandi áhrif á húðina. Að auki geturðu geymt
kremið í ísskápnum og borið það kalt á húðina
sem rakamaska – frábær formúla eftir dag í sól-
inni.
3 Hugaðu að augnsvæði og vörum
Húðin í kringum augu okkar og á vör-
unum er þynnri en á öðrum stöðum og því við-
kvæmari fyrir sólargeislum. Sömuleiðis geta
langar sumarnætur sést á augnsvæðinu morg-
uninn eftir og því óvitlaust að vera með öfluga
formúlu sem hefur alhliða húðbætandi áhrif, líkt
og hið nýja Double Serum Eye frá Clarins.
Þetta kremkennda gel gerir augnsvæðið sléttara,
þéttara og bjartara ásýndum með 13 mismunandi
plöntukjörnum. Til að verja varirnar er auðvelt
að verða sér úti um varasalva með sólarvörn, en
til dæmis framleiðir Vichy slíka varasalva.
4Léttur farði
Við viljum flest virka fersk og útitekin á
sumrin, svo tilvalið er að skipta yfir í léttari farða
eða einfaldlega litaða sólarvörn eða litað
dagkrem í hlýrra veðurfari. Þannig færðu
náttúrulegra útlit þar sem húðin er betr-
umbætt en ekki hulin. Prófaðu Futurist
Hydra Rescue SPF 45 frá Estée Lauder
en þessi farði býr yfir öflugum húðbætandi inni-
haldsefnum, veitir húðinni fallegan ljóma og þekjan
er miðlungs. Ef þú vilt minni þekju geturðu einfald-
lega blandað honum saman við rakakremið þitt og
skapað þannig litað dagkrem eftir
þínu höfði.
5 Bættu C-
vítamíni í
húðumhirðuna
Andoxunarefni á borð
við C-vítamín eru góð
allan ársins hring en
sérstaklega á sumrin,
þar sem þau hlutleysa
sindurefni. Berðu C-vítamín-
serum á húðina á morgnana, á
undan sólarvörn, en þannig veit-
irðu húðinni enn meiri vörn.
Prófaðu C-vítamínserumið frá
Pestle & Mortar, en það inni-
heldur þrjár gerðir af C-
vítamíni auk náttúrulegra inni-
haldsefna sem gera húðina sjáanlega þéttari og
bjartari ásýndum.
6 Sólkysst án skaða
Það er algjör óþarfi að eyðileggja heil-
brigði húðarinnar til að fá smá lit þegar frá-
bærar sjálfsbrúnkuformúlur eru á mark-
aðnum. Hyaluronic Self-Tan Spray frá Marc
Inbane er til dæmis sérlega þægilegt í notk-
un, veitir sólkysst útlit og hægt er að spreyja
því yfir farða ef þú vilt aðeins hressa upp á ásýndina
samstundis. Luxe Tan Tonic Glow Drops frá St. Tropez
er einnig mjög hentug formúla en þetta eru brúnku-
dropar sem þú blandar út í rakakremið þitt eða serum.
Að auki hefur formúlan húðbætandi áhrif þar sem hún
er rík af C- og E-vítamíni, hýalúrónsýru og níasínamíði.
7. Skrúbbaðu líkamann
Húðumhirða snýst ekki eingöngu um andlitið
heldur er sumarið sannarlega tíminn til að hugsa um
allan líkamann. Sama hversu miklu líkamskremi þú
nuddar á þig, þá þarftu að skrúbba dauðar húðfrumur
af líkamanum til að fá fallegri húðáferð og aukinn
ljóma. Þurrburstun er góð eða þú getur notað klass-
ískan líkamsskrúbb sem nærir húðina í leiðinni, einu
sinni til tvisvar í viku. Núna fást skrúbbarnir frá Frank
Body loksins á Íslandi svo tilvalið er að prófa þá, en
hægt er að fá þá í útgáfum sem innihalda ljóma og gera
húðina sérlega fallega.
8Endurhugsaðu virk innihaldsefni
Í dag nota margir virk innihaldsefni á borð við
sýrur og retínól reglulega. Þessi efni gera húðina við-
kvæmari fyrir sólargeislum, svo bæði er gífurlega
mikilvægt að nota sólarvörn samhliða slíkri virkni og
einnig er gott að
nota þessi efni
að kvöldi til eða
sjaldnar.
STOFNAÐ 1953
Ertu með allt á
hreinu?
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380
Dr. Dennis Gross
Lightweight
Wrinkle Defence
SPF 30, 9.510 kr.
Estée Lauder
Futurist Hydra
Rescue SPF 45,
9.799 kr.
Clinique
Moisture
Surge
100H
Auto-
Replen-
ishing
Hydrator,
6.999 kr.
Clarins Double
Serum Eye, 8.990 kr.
Pestle & Mort-
ar Vitamin C 2
Phase Serum,
15.990 kr.
Frank Body Peppermint
Body Scrub, 3.490 kr.
Marc Inbane
Hyaluronic
Self-Tan Spray,
8.162 kr.
St. Tropez
Luxe Tan
Tonic Glow
Drops,
7.699 kr.
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 2022 MORGUNBLAÐIÐ 27