Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 18.07.2022, Side 8

Morgunblaðið - 18.07.2022, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2022 Hanskar á lager! Stærðir: • S • M • L • XL Verð kr. 1.477 100 stk í pakka. Kemi | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is Hrafnar Viðskiptablaðsins töldu sig í liðinni viku sjá merki þess að borgarstjóri væri farinn að ókyrrast, sem þarf út af fyrir sig ekki að koma á óvart. Hann er búinn að tapa hverjum kosn- ingunum á fætur öðrum og þó að hon- um tækist að hanga nokkra mánuði enn á borgarstjóra- stólnum eftir byrjendamistök við- semjanda þá veit hann sem er að hann á ekki erindi í fleiri kosningar í borginni. - - - Huginn og Muninn skrifuðu: „Það dró til tíðinda í gær þeg- ar Dagur B. Eggertsson, borgar- stjóri Reykjavíkur, blandaði sér í þjóðmálaumræðuna og tjáði sig um kaup Síldarvinnslunnar á útgerðar- félaginu Vísi í Grindavík. Málflutn- ingur Dags um kvótakerfið og meint líkindi við atriði í þáttaröð- inni Verbúðinni á RÚV hafa eflaust fallið vel í kramið hjá flokkssystk- inum í Samfylkingunni. - - - Dagur hefur alla jafna lítt bland- að sér í landsmálaumræðuna á sviðum sem ekki tengjast beint borgarmálunum. Dagur er þar væntanlega að máta sig við for- mannsframboð í Samfylkingunni í haust og kosningaslag við Krist- rúnu Frostadóttur. Verði Dagur formaður má vænta þess að hann muni herja af fullum krafti á lands- málin eftir að hann lætur af störf- um sem borgarstjóri í lok næsta árs.“ - - - Dagur kannast ekki sjálfur við að hafa hugleitt formanns- framboð en popúlískt útspil hans segir allt sem segja þarf. Og vissu- lega er verk að vinna á landsvísu. Þar hefur Samfylkingin ekki goldið jafn mikið og samfellt afhroð og í Reykjavík þannig að Dags er beðið með eftirvæntingu. Dagur B. Eggertsson Afhroð óskast STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýlega var gengið frá ráðningu tveggja presta í þjóðkirkjunni. Valnefnd kaus sr. Bolla Pétur Bollason til að vera prest í Tjarna- prestakalli en það nær yfir Vatns- leysuströnd og hluta Hafnarfjarðar, þ.e. Ásland, Velli, Skarðshlíð og Hamranes. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, hefur staðfest ráðningu hans. Umsækjendur um starfið voru 11 talsins. Sr. Bolli Pétur Bollason er fæddur á Akureyri 9. ágúst árið 1972 og ólst upp í Laufási við Eyjafjörð. Hann tók prestsvígslu 14. júlí árið 2002 og vígðist þá til þjónustu í Selja- prestakalli í Breiðholti. Árið 2009 var sr. Bolli skipaður sóknarprestur í Laufásprestkalli og þjónaði þar til ársins 2018. Síðan hefur sr. Bolli sinnt afleysinga- störfum í ýmsum söfnuðum á höfuð- borgarsvæðinu, meðal annars í Tjarnaprestkalli þar sem hann hefur nú verið ráðinn til þjónustu. Þá kaus valnefnd sr. Sigurð Má Hannesson til að vera prest við Selja- kirkju í Reykjavík og hefur biskup staðfest ráðningu hans. Umsækj- endur um starfið voru 12 talsins. Hinn nýi prestur mun meðal ann- ars hafa æskulýðsmál á sinni könnu í hinu nýja starfi við kirkjuna. Sigurður Már er fæddur 1990 og uppalinn í Reykjavík. Hann útskrif- aðist með mag. theol.-próf frá Há- skóla Íslands vorið 2020. Hann var vígður til prestsþjónustu hjá Kristi- legu skólahreyfingunni í mars 2021. Jafnframt sinnti hann ýmsum verk- efnum fyrir KFUM og KFUK. Eiginkona sr. Sigurðar Más er Heiðdís Haukdal Reynisdóttir, verk- efnastjóri hjá Háskóla Íslands. Þau eiga eina dóttur. sisi@mbl.is Tveir prestar valdir til þjónustu Sigurður Már Hannesson Bolli Pétur Bollason Tómas Arnar Þorláksson tomasarnar@mbl.is Vestfirsk ungmenni hafa frest til loka júlí til að sækja um styrk til framhaldsnáms úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku. Að sögn Heiðu Jónu Hauksdóttur, sem situr í stjórn sjóðsins, er sjóðurinn hugsaður til að gera vestfirskum ungmennum kleift að sækja nám sem er ekki hægt að stunda í heimabyggð þeirra. Styrkir úr sjóðnum eru veittir ár- lega og hafa verið veittir síðan á sjö- unda áratug síðustu aldar. Í fyrra var einum nemanda veittur styrkur að upphæð 200 þúsund krónur. Að- spurð segir Heiða það alveg fara eft- ir því hversu margir sækja um þegar metið er hversu margir fá styrk en bendir á að síðastliðin ár hafi sjóð- urinn veitt einum til þremur nem- endum styrk til framhaldsnáms. Þurfti að brjótast til mennta Sjóðurinn var stofnaður af Sigríði Valdimarsdóttur, fyrrverandi for- manni Vestfirðingafélagsins, árið 1967. „Hún stofnaði þennan sjóð því hún sjálf þurfti að berjast fyrir því að komast til mennta og er sjóðurinn hugsaður til að styrkja ungar konur og börn einstæðra mæðra til náms,“ segir Heiða. Sigríður lagði sjálf allt fé til sjóðs- ins en síðan þá hefur milljónum króna verið varið til þess að styrkja vestfirsk ungmenni. Samkvæmt reglum sjóðsins njóta ungmenni sem hafa misst móður, föður eða báða foreldra forgangs í sjóðnum. Á eftir þeim í forgangsröðinni koma ein- stæðar mæður og svo konur, svo lengi sem fullu launajafnrétti hafi ekki verið náð. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum koma umsóknir Vestfirðinga sem búsettir eru ann- ars staðar til greina. Áhugasamir geta sent umsókn fyrir lok júlí til menningarsjóðsins á netfangið hjhauks@gmail.com. Með umsókninni þarf að fylgja umsögn frá skólastjóra eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda og ástæður hans fyrir umsókn. Styrkja ungmenni - Vestfirsk æska í framhaldsnám Styrkur Sigríður Valdimarsdóttir stofnaði sjóðinn sjálf árið 1967.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.