Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 18.07.2022, Page 16

Morgunblaðið - 18.07.2022, Page 16
16 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2022 ✝ Anna Krist- jánsdóttir fæddist í Reykja- vík 22. maí 1934. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á hjartadeild Land- spítalans 5. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru Kristján M. Guðlaugsson, f. 9.9. 1906, d. 2.11. 1982, og Bergþóra Brynjúlfs- dóttir, f. 11.4. 1908, d. 8.3. 1987. Bróðir Önnu er Grétar Br. Kristjánsson, f. 15.9. 1937. Anna giftist Hauki Steins- son tannlækni, f. 27.9. 1933, d. 16.3. 2013. Börn Önnu og Hauks eru: 1) Katla Steinsson, f. 7.11. 1960. Maki: Ársæll Þorsteinsson, f. 15.12. 1960. Börn: Sunna Björk, f./d. 5.6. þar sem Haukur stundaði nám við tannlækningar og Anna stundaði nám í þýsku. Síðan lá leiðin til Kaupmannahafnar þar sem Haukur vann við tannlækningar í tvö ár og Anna fór í hússtjórnunarskóla í Kaupmannahöfn. Anna hafði yfirumsjón með bókasafni Rauða krossins á Landakots- spítalanum um langt árabil. Hún var mjög virk í félags- málum, sat meðal annars í stjórn Bandalags kvenna, stjórn Kvenréttindasambands- ins, stjórn kvennadeildar Rauða krossins, stjórn Lands- sambands sjálfstæðiskvenna, stjórn Hvatar og stjórn Mæðrastyrksnefndar. Anna var kosin formaður Hvatar ár- ið 1991. Hún gegndi því starfi í nokkur ár og var alla tíð mjög virk innan Sjálfstæðis- flokksins. Anna lagði ómælda vinnu við ýmis verkefni á veg- um Mæðrastyrksnefndar allt til áttræðisaldurs. Útför Önnu Kristjánsdóttur fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 18. júlí 2022, kl. 13.00. 1997, Andri Snær, f. 22.12. 1999, Anna Sjöfn, f. 2.12. 2003. 2) Hanna Lára Steinsson, f. 27.12. 1964. Börn: Haukur Þor- steinsson, f. 23.1. 1997, Kristmann Þorsteinsson, f. 27.5. 1999. 3) Kristján Jóhann Steinsson, f. 2.3. 1973. Anna gekk í Miðbæj- arskóla, Gagnfræðaskóla Vesturbæjar og varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykja- vík. Hún starfaði í nokkur ár í bandaríska sendiráðinu eftir stúdentspróf. Eftir að Anna giftist Hauki fylgdi hún hon- um til Göttingen í Þýskalandi Elskuleg tengdamóðir mín til meira en 40 ára, Anna Kristjáns- dóttir, er látin. Ég kynntist henni og fjölskyldu hennar þegar ég og Katla dóttir hennar vorum að byrja saman ung að árum. Hún sýndi mér strax velvilja og góð- vild, en sendi jafnframt skýr skilaboð um að við værum ung að árum og yrðum að setja framtíð- ina í forgang með því að mennta okkur. Hún sagði stundum að það væri hægt að taka ýmsa verald- lega hluti af fólki, en menntunina væri ekki hægt að taka. Mér eru minnisstæðar miklar veislur og boð sem haldin voru í fjölskylduhúsinu að Skildinga- nesi 8. Af þessum boðum og veislum báru af í mínum huga ár- legar veislur á gamlárskvöld. Þetta voru fjölmennar veislur, allt upp í 30-40 manns þegar best lét. Anna sá ávallt um veisluhlað- borðið og var það hefðbundið ár- um saman. Hún byrjaði undir- búning gjarnan í byrjun desember. Við skipulagninguna skrifaði hún ekki minnislista, heldur teiknaði upp veisluborðið og hvar hvaða réttur átti að vera. Að borðhaldi loknu var svo opinn bar með nægum veitingum við allra hæfi. Eftir miðnætti settist svo tengdafaðir minn heitinn, Haukur Steinsson, við píanóið og þá var sungið og dansað fram á rauða nótt. Við hjónin ferðuðumst oft með tengdaforeldrum mínum, innan- lands sem utan. Eitt sinn fór öll fjölskyldan og dvaldi á lúxushót- eli á landsbyggðinni í Lúxem- borg. Við vorum mörg og þurft- um því stóran bíl svo við vorum á átta manna Fiat Ducato, hálf- gerðum sendibíl. Önnu fannst mjög fyndið að á bílastæðinu við hótelið var Fiatinn innan um Rollsa, Bentleya, Bensa og aðra lúxusvagna! Sterk fjölskyldubönd hafa ein- kennt þessa fjölskyldu og hjálp- semi og greiðvikni sjálfsagður hlutur. Alltaf voru Anna og Haukur til staðar, hvort sem ver- ið var að flytja, innrétta, mála eða sinna annars konar verkefnum og viðhaldi. Við reyndum að gjalda þeim greiða á móti eftir föngum, en það hallar samt á okkur. Anna var alltaf vel til höfð og í fallegum fötum. Það var alltaf reisn og fágun yfir henni svo eftir var tekið. Hún var vinsæl og vina- mörg og hrókur alls fagnaðar í samverustundum fjölskyldu, vina og skólafélaga. Það sama á við um sjálfboðaliðastörf sem hún vann árum saman, m.a. fyrir Rauða krossinn inni á sjúkrahúsum og undirbúning og úthlutun hjá Mæðrastyrksnefnd. Anna var alla tíð mikil sjálf- stæðiskona. Hún sat í mörg ár í stjórn Hvatar, félags sjálfstæðis- kvenna, og var þar kjörin formað- ur 1991. Einkunnarorðin „gjör rétt – þol ei órétt“ og „stétt með stétt“ voru henni hugleikin alla tíð og lýsa vel hennar pólitísku skoðunum. Síðustu árin fór heilsu hennar smám saman hrakandi. Ég hitti hana síðast á laugardegi og var hún þá úthvíld og í mjög góðu jafnvægi. Áttum við hina bestu stund saman sem síðan reyndist vera kveðjustund okkar. Hún lést aðfaranótt þriðjudagsins 5. júlí. Ég kveð yndislega tengdamóð- ur mína með ást, virðingu og þakklæti. Börnum, barnabörn- um, bróður, mágkonu og öðrum ættingjum sendi ég mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði elsku Anna. Ársæll Þorsteinsson. Mágkona mín og vinur Anna Kristjánsdóttir er látin 88 ára að aldri. Vinátta okkar hélst í meira en 40. ár og þar bar aldrei skugga á. Ég kynntist Önnu fyrst svo heitið getur á umbrotatímum í mínu lífi. Hún stóð ávallt traust með mér og varð klettur í mínu lífi. Hún var stórglæsileg kona og ég leyfi mér að vitna í orð kunn- ingjakonu hennar sem skrifaði í minningarkorti vegna andláts hennar „Hún var einstök kona, stórglæsileg, sterk ,fáguð og eld- klár. Alla þessa stórkostlegu mannkosti hafði hún.“ Þótt háleit sé þá er þetta hárrétt lýsing. Samskipti okkar og barna henn- ar, Kötlu Steinsson, Hönnu Láru og Kristjáns Steinsonar, voru mikil og góð. Anna og Haukur Steinsson tannlæknir maður hennar voru höfðingjar heim að sækja og héldu í áraraðir ógleym- anlegar jóla- og áramótaveislur. Því miður missti hún Hauk árið 2013 en þau höfðu gengið í hjóna- band ung að aldri. Það var okkur til gleði að Anna dvaldi árlega hjá okkur en við Grétar höfðum aðstöðu í Banda- ríkjunum svo og í Súðavík. Anna var mikil heimskona og fáguð í framkomu og með reisn. Hún gat haft ákveðnar skoðanir en það varð aldrei til vansa. Einn látinn vinur okkar kallaði hana alltaf The Lady, eða heimskonuna. Hún var félagslynd. Hún var góð kona og vildi láta gott af sér leiða Hún gegndi störfum sem formað- ur Hvatar, félags sjálfstæðis- kvenna í Reykjavík, hjá Rauða krossinum og vann mikið með Mæðrastyrksnefnd. Allt var þetta sjálfboðavinna og ekki verið að bera á torg. Hún hélt góðri heilsu fram eft- ir öllu en síðustu þrjú árin eða svo voru erfið. Við Grétar bróðir hennar vottum börnum hennar Kötlu, Hönnu Láru og Kristjáni Jóhanni samúð okkar. Við mun- um sakna hennar. Gerður Gunnarsdóttir. Anna Kristjánsdóttir, frænka mín, var systir föður míns Grét- ars Br. Kristjánssonar. Þau systkin hafa alla tíð verið afar ná- in. Þau voru bara tvö systkinin og eignuðust sín fyrstu börn sama árið. Við Katla erum fæddar 1960, ég í mars og Katla í nóv- ember. Líf mitt er mótað af samveru við fjölskyldu Önnu frænku, Hauks og barna þeirra, Kötlu, Hönnu Láru og Kristjáns Jó- hanns fram á þennan dag. Við Katla vorum einbirni í fjögur ár og fengum að hittast eins oft og færi gafst. Fyrir mér var það toppurinn á tilverunni að vera hjá þeim Önnu frænku, Hauki og Kötlu og fá að leika og gista. Anna og Haukur eignuðust Hönnu Láru 1964 og svo Kristján Jóhann 1973. Við Katla vorum of ungar til að fá að passa Hönnu Láru, en við fengum að passa Kristján. Ærslabelginn, sem vildi ekki fara að sofa því það var svo gaman að vera til. Við Katla fengum að vera í sama bekk í Melaskóla og Haga- skóla. Anna frænka var heima- vinnandi á þeim tíma og því gat ég alltaf farið heim með Kötlu í hádegismat og jafnvel eftir skóla. Anna frænka tók stóran þátt í uppeldi mínu. Hún hefur alla tíð verið mín fyrirmynd, stoð og stytta. Fyrsta skiptið sem við Katla fórum einar á leiksýningu í Þjóðleikhúsinu sagði Anna frænka við mig: „Bergþóra mín, mundu að maður fer í sínu fínasta pússi á leiksýningu í Þjóðleikhús- inu. Annað er vanvirðing.“ Ég var ekki alveg sátt, en hún hafði rétt fyrir sér. Með Önnu frænku og fjöl- skyldunni fór ég í fyrsta skipti á veitingahús, meira að segja í út- löndum. Hún kenndi mér hvernig maður átti að bera sig að, lesa matseðil og nota öll þessi hnífa- pör sem fylgdu forrétti, aðalrétti og eftirrétti. Mér fannst hún heimsdama sem kunni allt og vissi allt. Anna hélt einstaklega vel utan um stórfjölskyldu sína. Hún sá um samskiptin við frændfólk sitt, bauð í afmælisboð, páskaboð, jólaboð og gamlárskvöld var ein- stakt. Þá buðu þau Haukur stór- fjölskyldunni heim á Skildinga- nesið. Allir mættu, frá ungbörnum til þeirra elstu. Þar var sungið, spilað og spjallað. Það var miklu skemmtilegra að vera með fjölskyldunni þennan dag en að fara í boð eitthvað annað. Anna frænka var mjög vel gef- in, fróð og glæsileg kona. Hafði áhuga á pólitík og velferðarmál- um og tók virkan þátt í hvoru tveggja. Anna hafði alla tíð gaman af því að ferðast. Síðustu árin henn- ar fékk ég tækifæri til að fylgja henni nokkrum sinnum til Flór- ida. Þangað fór hún í heimsókn til bróður síns Grétars Br. og konu hans Gerðar. Henni fannst gott að vera með þeim. Elskaði að sitja í hitanum og lesa eða spjalla. Með þakklæti og virðingu kveð ég yndislegu frænku mína. Bergþóra Kristín Grétarsdóttir. Flestar minningargreinar fjalla um tvær persónur, þann eða þá sem minnst er, þann eða þá sem minnist. Þetta er eðlilegt, því að ekki erum við eylönd, flest eigum við samferðamenn. Og af þeirri samferð fæðast minning- arnar, sameiginlegar minningar. Og þess vegna heita svona kveðjuorð minningargreinar, þegar við kveðjum látinn ástvin eða góðan vin. Og við Anna Krist- jánsdóttir vorum vinir. Vinir til tæpra 83 ára nákvæmlega tiltek- ið. Við hæfi þykir, þó að ekki tak- ist það nú alltaf, að minningar- greinarnar fjalli meira um þann sem minnst er en þann sem minn- ist. Ég ætla því bara að láta þess getið að í þeirri vináttu var hún sú gjöfula, sem aldrei féll blettur á, allt frá því að við hittumst í rútu- bíl Ólafs Ketilssonar með foreldr- um okkar á leið til Laugarvatns vorið 1940, gegnum öll mennta- skólaárin og í hópi sem hefur haldið innbyrðis tryggð allar göt- ur síðan. Tryggð er eitt af því fyrsta sem kemur upp í hugann þegar Önnu er minnst. Hún var ekki af þeirri tegundinni sem bar tilfinn- ingar sínar á torg, en ef eitthvað bjátaði á hjá öðrum var hún fyrst á vettvang að rétta hjálparhönd. Þessi tryggð byggðist á innbyrðis réttlætiskennd sem hún aldrei hrósaði sér af og sem síst birtist í tilfinningasemi. Hins vegar kom engum á óvart þó að hún starfaði áratugum saman í framvarðar- sveit Mæðrastyrksnefndar – þeg- ar þá loks af því fréttist, því að ekki flíkaði hún því heldur. Sumir lýstu henni þó sem ómannblendinni og jafnvel frá- hverfri, aðrir sögðu hún bæri sig eins og aristókrat. Víst um það, að hún var höfðingi í lund eins og hún átti kyn til, faðir hennar um skeið ritstjóri Vísis og síðan einn af hinum ráðsnjöllu hugsuðum Lofleiðaævintýrisins, föðurbróðir hennar skáldið Jónas Guðlaugs- son, sem einna fyrstur Íslendinga gerði strandhögg erlendis með skáldskap sínum, en dó ungur. Hæversku sína sótti Anna vænt- anlega til móður sinnar sem var orðlögð geðprýðismanneskja, þó að í móðurættina skorti ekki heldur litríka og lifandi persónu- leika. Gestrisni var Önnu í blóð borin, arfur frá bernskuheim- ilinu, sem þau Haukur og hún héldu í heiðri alla tíð og hún eftir lát hans til hins síðasta. Anna lifði alla tíð við reisn, en síðustu árin voru henni erfið eins og mörgum. Því tók hún með heimspekilegri ró. Afkomendum sendum við Þóra hlýjar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Önnu Kristjánsdóttur. Sveinn Einarsson. Kær vinkona er látin og farin á næsta tilverustig. Góðar minn- ingar hrannast upp í hugann, við kynntumst í Sjálfstæðisflokknum fyrir hartnær 40 árum síðan. Það var gaman og gefandi að starfa í Hvöt og með Landssamtökum sjálfstæðiskvenna og í málefna- nefndum flokksins, mikið rætt og margar ályktanir samþykktar, skemmtilegir og málefnalegir fundir og ráðstefnur. Anna var tryggur félagi, alltaf til í að vera með við undirbúning og fram- kvæmdir, skoðanir hennar voru yfirvegaðar og skynsamar og vert að hlusta vel á afstöðu henn- ar til einstakra mála. En, Anna var fyrst og fremst góð vinkona og hennar er sárt saknað. Fyrir rúmum 30 árum, fórum við að spila saman bridge, fjórar frískar og skemmtilegar konur. Við reyndum að hittast á tveggja vikna fresti og þó að ekk- ert væri slegið af við spila- Anna Kristjánsdóttir ✝ Anna Björns- dóttir fæddist í Neskaupstað 18. ágúst 1936. Hún lést á húkr- unardeild Fjórð- ungssjúkrahússins í Neskaupstað 2. júlí 2022. Foreldrar henn- ar voru hjónin Kristrún Árný- Guðjónsdóttir húsmóðir, f. 9. mars 1908, d. 1. apríl 1995, og Björn Ólafur Ingvarsson útgerðarmaður, f. 7. apríl 1898, d. 16. ágúst 1969. Kristrún var seinni kona Björns. Hálfsystkini Önnu, sem hún ólst upp með, eru: Ingunn, handavinnukennari á Akur- eyri, f. 21. febrúar1925, Guðni Steindór, stýrimaður og skip- stjóri, f. 17. nóvember 1929, d. 1. apríl 1995, og Gréta, hús- móðir og deildarritari, f. 15. júní 1932, d. 1. febrúar 2013. Alsystkin hennar eru: Birna, húsmóðir ogvefnaðarkennari, f. 14. mars 1935, d. 9. maí 1995, Uni Guðjón, f. 20. otóber 1940, d. 5. janúar 2009, og Hallveig, húsmóðir og sjúkra- liði, f. 8. mars 1945. Anna lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Neskaup- staðar árið 1952. Síðan lá leið hennar að Laugum í Reykjadal þar sem hún fór í Húsmæðra- skólann. Hún lauk leiðsögu- námskeiði fyrir Austurland. Anna giftist Lúðvík Davíðs- syni 27. mars 1959 en hann var fæddur 20. mars 1929 og lést 14. febrúar 2019. For- eldrar hans voru Davíð Her- mannson bóndi í Skálateigi, f. 1885, og Ragnhildur Petra Jónsdóttur, f. 1892. Anna var hús- móðir en tók þátt í síldarævintýr- inu í Neskaup- stað á sjöunda áratugnum. Síðar meir starfaði hún við afgreiðslu- störf í Innra- Kaupfélaginu. Hún var vara- fulltrúi í bæjarstjórn Nes- kaupstaðar 1970-1982. Hún endaði starfsferil sinn í Brauðgerðinni á Norðfirði. Anna sat í miðstjórn Fram- sóknarflokksins og starfaði í kvennadeild Slysavarn- arfélagsins á Norðfirði, var í kvenfélaginu Nönnu og starf- aði með Norræna félaginu. Synir Önnu og Lúðvíks eru: 1) Björn, f. 25.1. 1959, kvæntur Sólveigu Bald- ursdóttur, f. 1.4. 1961. Börn þeirra eru: Ásdís Arna, f. 1989, gift Erni Hauksteini Ingólfssyni. Börn þeirra eru Emma Sólveig, f. 2019, og Björn Dór, f. 2021. Unnar Lúðvík, f. 1997 í sambúð með Gyðu Margréti Kirstjáns- dóttur. 2) Finnur, f. 13.8. 1965, sambýliskona Guðlaug Ólafsdóttir, f. 21.5. 1966. Börn þeirra Anna Steina, f. 1989, í sambúð með Axel Erni Kristjánssyni, dætur þeirra eru Embla Sif, f. 2016, og Ylva Rún, f. 2017, og Stefán Ingi, f. 1997 í sambúð með Helgu Þöll Guðjóns- dóttur. Útför Önnu fer fram frá Norðfjarðarkirkju í dag, 18. júlí 2022, og hefst athöfnin klukkan 14. Það eru margar góðar minn- ingar sem ég dreg fram þegar ég kveð hana ömmu mína, Önnu Björnsdóttur, sem lést þann 2. júlí síðastliðinn. Amma var aldrei kölluð neitt annað en amma austan af okk- ur barnabörnunum þar sem hún og afi bjuggu fyrir austan, í Neskaupstað. Sem barni fannst mér alltaf jafn gaman að heimsækja þau. Eftir langt ferðalag að sunnan voru alltaf miklir fagnaðarfundir við göng- in í Oddsskarði þar sem amma og afi biðu til að taka á móti okkur. Amma var alltaf dugleg að hreyfa sig og þegar hún hafði enn heilsu til fór hún í sund á hverjum degi. Ég fékk alltaf að fara með ömmu í sund þegar ég var í heimsókn og beið ann- að hvort í pottinum eða lék mér í lauginni á meðan hún synti sínar ferðir með frosk- alappirnar. Eftir sundferðirnar var farið beint heim í hrært skyr með bláberjum. Amma var mikil berjatínslukona og fyllti frystinn öll haust af berj- um sem síðan voru notuð út á skyrið allt árið um kring. Við fengum oft bláber með okkur heim til að hafa út á skyrið en það var aldrei eins, skyrið hennar ömmu var einfaldlega langbest. Amma var mikil handavinnu- kona og skilur hún eftir sig marga dýrgripi. Sérstaklega eftirminnileg er norska peysan, sokkar, vettlingar og húfa í stíl sem að hún prjónaði á mig og frænku mína þegar við höfum verið í kringum fimm ára ald- ur. Ég man ennþá hvað mér fannst peysan, og sérstaklega húfan, æðisleg. Mamma hefur síðan passað vel upp á þetta og ég hlakka til að setja stelpuna mína í þessa dýrgripi. Annars fannst mér sem smástelpu ekki merkilegt að fá útsaumaðar dúllur með jólapakkanum en eftir því sem ég eltist fór handavinnan hennar ömmu að verða dýrmætari. Í dag prýða heimili mitt nokkrir hlutir frá ömmu sem mér þykir afar vænt um. Amma var snillingur í að endurnýta umbúðir þegar hún sendi okkur pakka suður og iðulega voru gjafirnar að aust- an vel pakkaðar inn í t.d. mjólkurfernur svo þær yrðu nú örugglega ekki fyrir hnjaski. Hún gat komið ótrúlegustu hlutum fyrir í einum kassa þar sem öllu var mjög vel pakkað. Þessa „Sólbakkapökkun“, eins og mamma kallar það, hefur pabbi tileinkað sér og ég vil meina að ég hafi síðan mast- erað. Ég á margar góðar minn- ingar af Melagötunni hjá ömmu og afa. Búrið hennar ömmu er sérstaklega eftirminnilegt en í því var alveg sérstök sæt mat- arlykt og þar var oft hægt að lauma sér í eitthvað góðgæti. Alltaf var jafn spennandi að fletta í gegnum öll myndaal- búmin þeirra og sérstaklega þau sem voru merkt manni sjálfum. Amma var alltaf dug- leg að taka myndir og skilja þau afi eftir sig mikið safn mynda. Nú þegar komið er að leið- arlokum er ég svo þakklát fyrir að hafa drifið mig austur síð- asta sumar með fjölskylduna mína að heimsækja ömmu aust- an. Þó svo að stoppið hafi verið stutt áttum við fjölskyldan og pabbi dýrmæta stund með ömmu. Elsku amma mín, ég verð þér ævinlega þakklát fyrir stuðninginn og væntumþykj- una. Þó svo það sé alltaf sárt að kveðja þá veit ég að þú ert komin á betri stað þar sem þú getur orðið þú sjálf aftur. Kveðja, Ásdís Arna Björnsdóttir. Anna Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.