Morgunblaðið - 18.07.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2022
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Frábær kostur í hádeginu
Djúsí
andasamloka
Þín upplifun skiptir okkur máli
90 ÁRA Gunnar er fæddur og upp-
alinn í Reykjavík. Hann stundaði
nám við MR og útskrifaðist með
stúdentspróf þaðan árið 1952. Gunn-
ar lauk byggingaverkfræðiprófi frá
Technische Universität í München og
starfaði á verkfræðistofu þar í borg
bæði með námi og eftir nám. Gunnar
var framkvæmdastjóri, bæði hjá
Byggingafélaginu Brú hf. og Bygg-
ingaráætlun ríkisins auk þess að vera
verkfræðingur hjá Fasteignamati
Reykjavíkur 1969-71. Gunnar rak
eigin verkfræðistofu í Reykjavík 1970
til 2008 og annaðist um tíma, ásamt
öðrum verkfræðingum, heildarend-
urmat á öllum fasteignum Reykjavíkurborgar. Hann var verkefnisstjóri við
ýmsar stórbyggingar í Reykjavík og víðar, m.a. við stækkun Háskólabíós,
endurreisn Þjóðleikhússins, stækkun Sjúkrahússins Vogs fyrir SÁÁ og
margt fleira. Hann var líka stundakennari og fyrirlesari við HÍ. Gunnar var
lengi virkur í félagsmálum og sat í stjórn hjá ýmsum íþróttafélögum. Hann
spilaði golf um árabil og var sæmdur gullmerki Golfklúbbs Reykjavíkur,
Handknattsleikssambands Íslands og Glímufélagsins Ármanns. Gunnar fær
nánustu ættingja sína í boð til sín á afmælisdaginn.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Gunnars var Svana Jörgensdóttir, f. 28.3. 1934,
d. 23.8. 2020, fv. landsliðskona í handbolta. Hún varð Norðurlandameistari
utanhúss 1964 og lék þar að auki í Þýskalandi. Dætur Gunnars og Svönu eru
1) Laufey, f. 4.1. 1952, lífeindafræðingur í Reykjavík. Dóttir hennar er Nanna
Dís, tækiteiknari og ljósmyndari í Brussel. 2) Anna Úrsúla, f. 11.6. 1957,
íþróttafræðingur, sjúkranuddari og sjúkraþjálfari í Reykjavík. Dóttir hennar
er Jóhanna, ráðgjafi verktaka í Hamborg. Foreldrar Gunnars voru Torfi
Guðmundur Þórðarson, f. 6.11. 1901, d. 15.12. 1975, kaupmaður og stjórnar-
ráðsfulltrúi í Reykjavík, og Anna Úrsúla Björnsdóttir, f. 10.1. 1092, d. 12.1.
1957, húsmóðir í Reykjavík. Systur Gunnars voru Guðrún Ásta Torfadóttir, f.
19.3. 1925, d. 16.5. 2004, húsmóðir og fyrrv. fulltrúi hjá Sambandi íslenskra
sveitarfélaga, og Elín Torfadóttir, f. 22.9. 1927, d. 9.1. 2016, fóstra, for-
stöðukona og síðar framhaldsskólakennari í Reykjavík.
Gunnar Torfason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Fyrir tilstilli sjóvarpsins og auglýs-
inga erum við farin að leggja sjálfsmat okk-
ar að jöfnu við eigur okkar. Umburðarlyndi
er toppurinn á mannlegum þroska.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú hefur lagt hart að þér og ert
þreyttur og vilt helst að aðrir taki við
ábyrgðinni. Talaðu æsingalaust um hlutina.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Varastu að láta draga þig inn í
annarra deilur um málefni sem koma þeim
einum við. Holl hugleiðsla og bæn eru
beztu ráðin.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Í dag skaltu spá í hversu flinkur þú
ert í samskiptum við aðra. Gefðu þér tíma
til þess að kynna þér mál og þá verður
framkvæmdin árangursrík og örugg.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Málefni tengd sköttum, reikningum
og skuldum hafa íþyngt meyjunni að und-
anförnu. Hláturinn lengir lífið.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Það er ekki alltaf nóg að tjá tilfinn-
ingarnar í verki. Farðu vel yfir allt, jafnvel
tvisvar, og ekki ganga að neinu vísu.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Byrjaðu vikuna á því að sinna smá-
vægilegum þáttum sem hjálpa þér til þess
að bæta skipulagið í kringum þig. Leitaðu í
smiðju þeirra sem hafa áður lagt leið sína
þarna um.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Fjármálin eiga eftir að batna
verulega þetta árið og eyðsla þín mun að
sjálfsögðu aukast í kjölfarið. Einbeittu þér
að því að selja þína einstökustu hæfileika.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Skildu veskið eftir heima ef þú
verður í námunda við verslanir. Sérstakt
tækifæri bíður þín handan hornsins.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Velgengni veltur á því að rétt
manneskja sé skipuð í sérhvert hlutverk í
lífi þínu. Ekki byrja á nýjum verkefnum í
augnablikinu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ættir að huga að heilbrigðis-
og hreinlætismálunum í dag. Maður er
manns gaman og þú hefur mikið að gefa
öðrum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það þarf að annast sambönd eins
og gæludýr og plöntur. Gefðu skít í fortíð-
ina með stæl, eins og þér einum er lagið,
og haltu áfram að vera sú manneskja sem
þig hefur alltaf langað að vera.
stundað nær óslitið frá 1982. „Þeg-
ar ég hóf mína vegferð í fiskeldinu
gerði ég mér ekki grein fyrir því að
þetta yrði mjög erfitt fyrir ein-
staklinga eins og mig.“ Þar sem
hann var einn eigandi að fyrir-
tækinu og ekki með neina starfs-
menn á skrifstofu varð reglugerða-
báknið og skrifræðið honum fjötur
um fót og tóku öll leyfismál mjög
langan tíma. „Þetta var brekka
jafnvel þó að fjölskyldan hjálpaðist
að við reksturinn en Friðgerður,
eiginkona mín, sá um að reiknings-
hald og annað og synirnir okkar
þrír voru ungir farnir að vinna með
pabba sínum.“ Fjármögnun á
rekstrinum gekk einnig erfiðlega
sem varð til þess að Gísli Jón seldi
stærstan hluta fyrirtækisins á síð-
asta ári. Gísli Jón starfar nú sem
fiskeldisstjóri hjá ÍS 47 ehf. „Ég er
G
ísli Jón Kristjánsson
fæddist á Ísafirði 18.
júlí 1962. Hann ólst
upp með fjölskyldu
sinni á bænum Ármúla
við Ísafjarðardjúp til 18 ára aldurs
en þá brugðu foreldrar hans búi og
fluttu á Ísafjörð. Gísla Jóni hefur
ætíð þótt afar vænt um Ármúla og
segir jörðina þá fallegustu við Ísa-
fjarðardjúp.
Hann fór ungur á heimavist í
Héraðskólanum í Reykjanesi og var
þar til 16 ára aldurs. Þá fór hann í
Vélskólann á Ísafirði þar sem hann
nam vélstjórn og síðan fór hann í
Menntaskólann á Ísafirði og lærði
skipstjórn.
„Ég hef unnið sem vélstjóri,
stýrimaður og skipstóri nánast allt
mitt líf. Ég fór ungur til sjós, var á
línubátum, dragnót, innfjarðar-
rækju og hrefnuveiðum þar til ég
fór sjálfur í útgerð með öðrum árið
1984. Ég stofnaði eigin útgerð
fimm árum síðar og rak hana á
minni kennitölu þar til ég færði
reksturinn yfir á ÍS 47 ehf. árið
2003. Útgerðin átti alltaf bát með
nafninu Aldan ÍS 47 og hafa bát-
arnir verið alls fjórir með því
nafni.“
Gísli Jón var hálfgerður frum-
kvöðull í veiðum á þorski til áfram-
eldis. Hann byrjaði að þróa þær
veiðar sumarið 2002 og náði hann
góðum tökum á þessari aðferð og
stundaði þær nokkur sumur fyrir
aðra og síðan fyrir sitt eigið fyrir-
tæki. Árið 2011 byrjaði hann sjálfur
í áframeldi á þorski og tveimur ár-
um seinna í regnbogasilungseldi í
Önundarfirði. Segja má að Gísli Jón
hafi ákveðið að taka u-beygju með
fyrirtækið þegar hann hóf regn-
bogasilungseldið í Önundarfirði því
þar með hætti hann rækjuveiðum
við Ísafjarðardjúp, sem hann hafði
Gísli Jón Kristjánsson, fiskeldisstjóri hjá ÍS 47 ehf. – 60 ára
Með sonunum Gísli Jón fór ungur til sjós og hefur verið vélstjóri, stýrimað-
ur og skipstjóri nánast allt sitt líf. Tveir synir hans eru vélstjórar en sá
þriðji, Gísli Jörgen, er húsasmiður og starfar hjá eigin fyrirtæki.
Fór ungur til
sjós og stofnaði
eigin útgerð
Fjölskyldan samankomin Fjölskylda Gísla Jóns hjálpaðist að við reksturinn þegar hann var einn eigandi að fisk-
eldisfyrirtæki. Friðgerður, eiginkona hans, sá um að reikningshald og annað og synir þeirra þrír, Ásgeir Hinrik,
Gísli Jörgen og Jón Ómar, voru ungir farnir að vinna með pabba sínum.
Báturinn Gísli Jón stofnaði eigin útgerð og rak hana á sinni kennitölu þar til
hann færði reksturinn yfir á ÍS 47 ehf. árið 2003. Útgerðin átti alltaf bát
með nafninu Aldan ÍS 47 og hafa bátarnir verið alls fjórir með því nafni.
Til hamingju með daginn