Morgunblaðið - 18.07.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2022
Besta deild karla
FH – Víkingur R....................................... 0:3
ÍBV – Valur............................................... 3:2
Leiknir R. – KA ........................................ 0:5
ÍA – Stjarnan ............................................ 0:3
Keflavík – Breiðablik ............................... 2:3
Staðan:
Breiðablik 13 11 1 1 38:14 34
Víkingur R. 13 9 1 3 31:18 28
KA 13 7 3 3 25:16 24
Stjarnan 13 6 5 2 24:17 23
Valur 13 6 2 5 22:21 20
Keflavík 13 5 2 6 24:23 17
KR 12 4 4 4 16:19 16
Fram 12 3 4 5 21:29 13
FH 13 2 4 7 16:23 10
Leiknir R. 13 2 4 7 11:22 10
ÍBV 13 1 5 7 15:26 8
ÍA 13 1 5 7 13:28 8
Lengjudeild karla
Vestri – Afturelding ................................. 1:4
Þróttur V. – HK........................................ 1:2
Staðan:
HK 12 8 1 3 26:16 25
Fylkir 12 7 3 2 34:13 24
Grótta 12 7 1 4 27:15 22
Selfoss 12 6 3 3 23:17 21
Fjölnir 12 6 2 4 26:21 20
Grindavík 12 4 5 3 18:15 17
Afturelding 12 4 4 4 19:17 16
Kórdrengir 12 4 4 4 16:18 16
Vestri 12 4 4 4 19:29 16
Þór 12 3 2 7 17:27 11
KV 12 2 1 9 14:31 7
Þróttur V. 12 1 2 9 5:25 5
2. deild karla
KFA – Haukar.......................................... 1:5
Magni – Njarðvík ..................................... 1:2
Þróttur R. – Höttur/Huginn.................... 3:3
Reynir S. – Völsungur.............................. 1:1
Staðan:
Njarðvík 12 11 1 0 41:9 34
Þróttur R. 12 8 2 2 22:14 26
Ægir 12 8 1 3 23:18 25
Völsungur 12 5 4 3 24:18 19
Haukar 12 5 4 3 19:13 19
KFA 12 4 3 5 22:24 15
ÍR 12 4 3 5 19:22 15
Víkingur Ó. 12 3 3 6 21:24 12
KF 12 2 6 4 22:27 12
Höttur/Huginn 12 2 4 6 15:23 10
Magni 12 1 3 8 10:31 6
Reynir S. 12 1 2 9 11:26 5
3. deild karla
Sindri – Víðir............................................. 0:1
KFS – Kári................................................ 2:1
Kormákur/Hvöt – ÍH............................... 4:0
Staðan:
KFG 12 7 3 2 26:14 24
Víðir 12 7 3 2 25:13 24
Dalvík/Reynir 12 7 1 4 29:20 22
Sindri 12 6 3 3 25:17 21
Elliði 12 5 3 4 23:22 18
KFS 12 6 0 6 23:27 18
Kormákur/Hvöt 12 5 2 5 24:22 17
Kári 12 5 2 5 21:20 17
Augnablik 12 4 4 4 16:20 16
Vængir Júpiters 12 3 1 8 20:34 10
ÍH 12 3 0 9 25:34 9
KH 12 2 2 8 13:27 8
2. deild kvenna
KH – Einherji ........................................... 2:0
Völsungur – Hamar.................................. 6:1
Staðan:
Fram 8 8 0 0 22:2 24
Grótta 8 5 2 1 32:7 17
Völsungur 7 5 2 0 22:6 17
ÍR 8 5 2 1 22:9 17
ÍA 6 4 0 2 18:9 12
KH 5 3 1 1 16:8 10
Álftanes 9 3 1 5 17:22 10
Sindri 8 3 0 5 13:22 9
ÍH 6 1 1 4 11:27 4
Einherji 6 1 0 5 4:13 3
Hamar 7 0 1 6 8:28 1
KÁ 8 0 0 8 5:37 0
Svíþjóð
Gautaborg – Mjällby ............................... 1:1
- Adam Benediktsson var varamarkvörð-
ur Gautaborgar.
Hammarby – Elfsborg ............................ 3:0
- Jón Guðni Fjóluson lék ekki með Hamm-
arby vegna meiðsla.
- Sveinn Aron Guðjohnsen kom inn á hjá
Elfsborg á 64. mínútu en Hákon Rafn
Valdimarsson var allan tímann á bekknum.
AIK – Kalmar........................................... 1:0
- Davíð Kristján Ólafsson lék fyrstu 85
mínúturnar með Kalmar.
Norrköping – Malmö............................... 0:2
- Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Norrköping en Arnór Sigurðsson og Jó-
hannes Kristinn Bjarnason voru ekki í
hópnum.
Sirius – Degerfors ................................... 2:0
- Aron Bjarnason lék fyrstu 88 mínúturn-
ar hjá Sirius og Óli Valur Ómarsson kom
inn á 81. mínútu.
Staða efstu liða:
Djurgården 15 9 3 3 33:10 30
Häcken 13 8 4 1 27:18 28
AIK 15 8 4 3 21:17 28
Hammarby 14 8 3 3 27:11 27
B-deild:
Östersund – Öster.................................... 1:1
- Alex Þór Hauksson lék allan leikinn með
Öster.
Dalkurd – Örebro .................................... 0:2
- Axel Óskar Andrésson lék fyrri hálfleik-
inn með Örebro.
50$99(/:+0$
FH – VÍKINGUR R. 0:3
0:1 Logi Tómasson 53.
0:2 Sjálfsmark 80.
0:3 Birnir Snær Ingason 83.
M
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Vuk Oskar Dimitrjievic (FH)
Ingvar Jónsson (Víkingi)
Logi Tómasson (Víkingi)
Oliver Ekroth (Víkingi)
Viktor Örlygur Andrason (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Helgi Guðjónsson (Víkingi)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8.
Áhorfendur: 513.
ÍBV – VALUR 3:2
1:0 Halldór J.S. Þórðarson 30.
2:0 Halldór J.S. Þórðarson 61.
2:1 Aron Jóhannsson 75.
2:2 Aron Jóhannsson 78.
3:2 Halldór J.S. Þórðarson 90.
MM
Halldór J.S. Þórðarson (ÍBV)
Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
M
Elvis Bwomono (ÍBV)
Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV)
Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV)
Aron Jóhannsson (Val)
Arnór Smárason (Val)
Dómari: Pétur Guðmundsson – 6.
Áhorfendur: 295.
LEIKNIR R. – KA 0:5
0:1 Nökkvi Þeyr Þórisson 23.
0:2 Elfar Árni Aðalsteinsson 25.
0:3 Ásgeir Sigurgeirsson 57.
0:4 Nökkvi Þeyr Þórisson 59.
0:5 Sveinn Margeir Hauksson 61.
MM
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)
M
Jón Hrafn Barkarson (Leikni)
Bryan van den Bogaert (KA)
Daníel Hafsteinsson (KA)
Elfar Árni Aðalsteinsson (KA)
Kristijan Jajalo (KA)
Sveinn Margeir Hauksson (KA)
Rautt spjald: Brynjar Hlöðversson
(Leikni) 84.
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson – 9.
Áhorfendur: 100.
ÍA – STJARNAN 0:3
0:1 Emil Atlason 5.
0:2 Ólafur Karl Finsen 45.
0:3 Ísak Andri Sigurgeirsson 75.
MM
Emil Atlason (Stjörnunni)
Ólafur Karl Finsen (Stjörnunni)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
M
Ísak Andri Sigurgeirsson (Stjörnunni)
Eggert Aron Guðmundsson (Stjörnunni)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (Stjörnunni)
Ármann Ingi Finnbogason (ÍA)
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: Um 400.
KEFLAVÍK – BREIÐABLIK 2:3
0:1 Omar Sowe 10.
1:1 Adam Árni Róbertsson 27.
2:1 Patrik Johannesen 48.
2:2 Höskuldur Gunnlaugsson 81.
2:3 Höskuldur Gunnlaugsson (v.) 90.
MM
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
M
Magnús Þór Magnússon (Keflavík)
Rúnar Þór Sigurgeirsson (Keflavík)
Adam Árni Róbertsson (Keflavík)
Patrik Johannesen (Keflavík)
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Dagur Dan Þórhallsson (Breiðabliki)
Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðabliki)
Omar Sowe (Breiðabliki)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 6.
Áhorfendur: Um 700.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Breiðablik vann sannkallaðan meist-
arasigur er liðið heimsótti Keflavík í
Bestu deild karla í fótbolta og vann
torsóttan 3:2-sigur í gærkvöldi. Mót-
vindurinn var töluverður í stöðunni
2:1 fyrir Keflavík og virtist forskot
Breiðabliks á toppnum ætla að fara
úr sex stigum niður í þrjú. Með
magnaðri seiglu og tveimur mörkum
frá fyrirliðanum Höskuldi Gunn-
laugssyni tókst Breiðabliki hins-
vegar að snúa taflinu við. Sigurmark
Höskuldar úr víti í uppbótartíma var
dísætt fyrir Óskar Hrafn Þorvalds-
son og lærisveina hans. Þegar talið
er úr kassanum í lok tímabils eru
leikir eins og í gær gulls ígildi, því
fátt benti til þess að Breiðablik fengi
meira en að mesta lagi eitt stig.
Keflavík á hrós skilið fyrir að hafa
verið eitt skemmtilegasta lið deild-
arinnar síðustu vikur og leikurinn í
gær var heilt yfir vel spilaður hjá
heimamönnum. Það er hinsvegar
nánast óvinnandi verk að hafa hemil
á Blikum í 90 mínútur.
Stórsigur KA-manna
KA átti ekki í nokkrum vandræð-
um með að vinna 5:0-útisigur á
Leikni í Breiðholtinu. Sigurinn var
síst of stór því KA fékk nokkur
ákjósanleg færi til viðbótar til að
bæta við mörkum. Nökkvi Þeyr Þór-
isson heldur áfram að raða inn
mörkunum en hann er kominn með
sjö mörk í síðustu fimm leikjum í
deild og bikar og alls níu mörk í
deildinni en hann hafði áður mest
skorað þrjú mörk á einu tímabili.
KA hefur blásið til sóknar síðustu
vikur og skorað fjórtán mörk í síð-
ustu fjórum leikjum og er liðið
áfram í þriðja sæti. Það yrði glæsi-
legur árangur ef KA heldur sínu
striki og nær Evrópusæti. Arnar
Grétarsson er að gera spennandi
hluti á Akureyri. Eftir tvo sigra hjá
Leikni í röð var leikurinn í gær stórt
skref til baka hjá Breiðhyltingum.
Skagamenn í botnsætið
Stjarnan gerði afar góða ferð á
Skagann og vann 3:0-sigur á ÍA. Sig-
urinn var afar kærkominn fyrir
Stjörnuna eftir fjóra leiki í röð án
sigurs. Hægst hafði töluvert á
Stjörnulestinni eftir virkilega kraft-
mikla byrjun en liðið átti ekki í nein-
um vandræðum með að vinna slakt
ÍA-lið í gær. ÍA er komið í gríðarleg
vandræði og eftir þriðja tapleikinn í
röð eru Skagamenn í neðsta sæti
deildarinnar. Eini sigurinn til þessa
kom í 2. umferð, 3:0 gegn Víkingi,
ótrúlegt en satt, en síðan þá hefur
liðið fengið nokkra skelli og lítið
gengið upp.
Stjörnumönnum leið vel á Akra-
nesi í gær og skoruðu falleg mörk.
Það fallegasta gerði Ólafur Karl
Finsen á 44. mínútu þegar hann
lagði upp hjólhestaspyrnumark fyrir
sjálfan sig með glæsilegum hætti.
Markið var það fyrsta sem Ólafur
skorar í sumar og má segja að það
hafi verið biðarinnar virði.
Fyrsti sigur ÍBV
ÍBV vann sinn fyrsta sigur í þrett-
ándu tilraun í sumar þegar Valur
kom í heimsókn, 3:2. Fyrir leikinn í
gær hafði Halldór Jón Sigurður
Þórðarson aðeins skorað tvö mörk í
efstu deild og áttu því fæstir von á
að hann myndi skora þrennu, en
hann gerði sér lítið fyrir og gerði öll
mörk ÍBV og þar á meðal sigur-
markið í uppbótartíma. Aron Jó-
hannsson jafnaði í 2:2 með tveimur
mörkum eftir að Halldór hafði gert
sín fyrstu tvö og þá tók við æsilegur
lokakafli. Frederik Schram varði víti
frá Felix Erni Friðrikssyni á 89.
mínútu og virtust lukkudísirnar enn
og aftur ætla að yfirgefa ÍBV en þá
kom sigurmarkið á besta tíma. Valur
á því þann furðulega heiður að vera
eina liðið sem hefur unnið Breiðablik
og eina liðið sem hefur tapað fyrir
ÍBV.
Meistararnir skoruðu þrjú
Eftir markalausan fyrri hálfleik
skoruðu Íslandsmeistarar Víkings
úr Reykjavík þrjú mörk í seinni hálf-
leik á útivelli gegn FH þar sem loka-
tölur urðu 3:0 á laugardag. Víkingur
hefur nú unnið sex leiki í röð og ljóst
að meistararnir ætla að gefa Breiða-
bliki alvörutitilbaráttu. Það gengur
hinsvegar lítið upp hjá FH. Liðið
hefur enn ekki fagnað deildarsigri
síðan Eiður Smári Guðjohnsen tók
við liðinu og eru sigrarnir í sumar
aðeins tveir. FH var ekki sérlega
líklegt til að vinna og er lítið sem
ekkert sjálfstraust í liðinu. Fótbolt-
inn sem FH-liðið bauð upp á var
ekki merkilegur og er liðið heldur
varkárt og óbeitt í uppspili sínu. Vík-
ingar voru laskaðir eftir erfiða Evr-
ópuleiki gegn Malmö en unnu samt
3:0-sigur án þess að eiga sinn besta
leik, sem er mikið styrkleikamerki.
Meistarasigur
Breiðabliks í
Bítlabænum
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Einvígi KA-maðurinn Elfar Árni Aðalsteinsson lætur Brynjar Hlöðversson
úr Leikni finna fyrir því í leik liðanna í Breiðholtinu í gærkvöldi.
- Stórsigrar KA og Stjörnunnar á úti-
völlum - Fyrsti sigur Eyjamanna
_ Óttar Magnús Karlsson gerði tvö
mörk fyrir Oakland Roots er liðið vann
El Paso, 4:0, á heimavelli í bandarísku
B-deildinni í fótbolta í fyrrinótt. Ís-
lenski framherjinn gerði tvö fyrstu
mörk leiksins á 21. og 32. mínútu en
það seinna kom úr vítaspyrnu. Hann
fór af velli á 77. mínútu. Liðið er í átt-
unda sæti af 13 liðum í vesturhluta
deildarinnar. Óttar hefur átt afar gott
tímabil með Oakland en hann er
markahæstur í deildinni með 15 mörk.
Þau hefur hann gert í 22 leikjum.
_ Enska úrvals-
deildarfélagið
Chelsea hefur
gengið frá kaupum
á senegalska
knattspyrnumann-
inum Kalidou
Koulibaly frá Na-
poli á Ítalíu og
samið við hann til
fjögurra ára. Kaupverðið er í kringum
33 milljónir punda og hann er annar
leikmaðurinn sem Chelsea kaupir í
sumar, á eftir Raheem Sterling frá
Manchester City. Koulibaly er 31 árs
gamall miðvörður og hefur undanfarin
ár verið talinn einn sá öflugasti í sinni
stöðu í Evrópufótboltanum.
_ Íslenska karlalandsliðið í handbolta
skipað leik-
mönnum 20 ára
og yngri gerði
sér lítið fyrir og
vann 45:34-
stórsigur á Ítalíu
í leik um 11. sæt-
ið á EM 2022 í
Porto í Portúgal
á laugardag. Með
sigrinum tryggði Ísland sér sæti á HM
2023 leikmanna 21 árs og yngri. Bene-
dikt Gunnar Óskarsson var marka-
hæstur hjá Íslandi með átta mörk.
Andri Már Rúnarsson og Arnór Við-
arsson voru svo skammt undan með
sjö mörk hvor.
_ Bandaríkin unnu þrefalt í 100 metra
hlaupi á HM í Eugene í Bandaríkjunum
í gær. Fred Kerley, sem á besta tíma
ársins, kom fyrstur í mark á 9,86 sek.
en besti tími ársins er 9,76 sekúndur.
Marvin Bracey og Trayvon Brommell
komu báðir í mark á 9,88 sekúndum
en Bracey hlaut silfrið á sjónarmun.
_ Enska knattspyrnufélagið Man-
chester United og Ajax frá Hollandi
hafa komist að samkomulagi um kaup-
verð á argentínska varnarmanninum
Lisandro Martínez. United mun fyrst
greiða 48,5 milljónir punda fyrir Mart-
ínez en kaupverðið gæti hækkað um
8,5 milljónir vegna ýmissa bónus-
greiðslna. Martínez þekkir Erik Ten
Hag, knattspyrnustjóra United, afar
vel en þeir unnu saman hjá Ajax í þrjú
ár, áður en Ten Hag tók við stjórn Unit-
ed af Ralf Rangnick.
Eitt
ogannað