Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Síða 8

Morgunblaðið - 02.07.2022, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 Góð heyrn glæðir samskipti Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Pantaðu tíma í HEYRNAR GREININGU Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is Allar helstu rekstrarvörur og aukahlutir fyrir heyrnartæki fást í vefverslun heyrn.is Bjarni Jónsson rafmagnsverk- fræðingur, sem starfaði lengi við að breyta raforku í út- flutningsvöru, eins og hann orðar það á blog.is, fjallar í nýjasta pistli sínum um „fjarstæðukenndan afturhalds- áróður“ þeirra sem hamast gegn virkjunum í landinu. - - - Bjarni horfir áratugi aftur í tím- ann og skrifar: „Í landinu hef- ur alltaf verið andstaða við orku- nýtingu til atvinnusköpunar og gjaldeyrisöflunar, eins og sagan greinir frá allt til Títanfélags Ein- ars Benediktssonar, skálds. Átökin um fyrstu stórvirkjun landsins við Búrfell (Sámstaðamúla) í Þjórs- árdal á árunum 1963-1969 eru höf- undi þessa vefpistils enn í minni, en þá börðust andstæðingar Við- reisnarstjórnarinnar, Alþýðu- bandalagið og Framsókn- arflokkur, hart gegn Búrfellsvirkjun og stofnun álverk- smiðjunnar í Straumsvík við Hafn- arfjörð, sem fá átti raforku frá Búrfellsvirkjun. - - - Virkjuninni var talið margt til foráttu, einkum að rennsl- istruflanir í jökulvatninu yrðu svo miklar, að stöðva yrði starfsemi virkjunarinnar. ISAL-verksmiðjan var uppnefnd „hausaskeljastaður“ og sagt, að fjöldi verkamanna mundi týna þar lífinu strax á bygg- ingarskeiðinu. Fullyrðingaflaumur beturvitanna lætur aldrei að sér hæða.“ - - - Flestir hafa síðan áttað sig á að virkjun vatnsafls og jarð- varma á Íslandi er drjúgur þáttur í að tryggja og bæta lífskjör í land- inu. Og með því er ekki verið að fórna náttúrunni ef staðið er skyn- samlega að verki, eins og gert hef- ur verið. Það er aðeins verið að nýta hana og njóta hennar. Bjarni Jónsson Að nýta og njóta STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Löggæsla verður styrkt á umdæmamörkum Suð- ur- og Austurlands samkvæmt samningi sem fulltrúar lögreglu á þessu svæði undirrituðu nú í vikunni. Varðsvæði Suðurlandslögreglunnar nær í Hvalsnesskriður þar sem mörk Sveitarfélagsins Hornafjarðar eru í norðri. Þar tekur Múlaþing við og því sinnir lögreglan á Austurlandi. Í krafti fyrr- nefnds samnings verður nú horft fram hjá þessum landamærum og samstarf eflt „sérstaklega milli Hafnar og Djúpavogs og auka öryggi lögreglu- manna“, eins og segir í samningnum. Efni hans er annars um alhliða verkefni lögreglu, en þungi áhersla er þó á umferðarmálin. Samninginn góða undirrituðu þau Margrét María Sigurðardóttir lögreglustjóri og Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn fyrir embætt- ið á Austurlandi, og fyrir hönd Sunnlendinga þeir Oddur Árnason yfirlögregluþjónn og Kjartan Þor- kelsson lögreglustjóri. Sá síðastnefndi er nú raun- ar kominn í sex mánaða leyfi frá störfum, það er til næstu áramóta. Á meðan fyllir Grímur Hergeirs- son, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, í skarðið á Suðurlandi. sbs@mbl.is Lögreglan semur um samstarf - Áhersla á umferðina - Suður- og Austurland Samningur Frá vinstri talið: Kristján Ólafur Guðnason og Margrét María Sigurðardóttir frá lögreglunni á Austurlandi og Kjartan Þorkelsson og Oddur Árnason af Suðurlandi. Goslokahátíðin í Vestmannaeyjum, sem nú stendur yfir, hófst á því að Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri afhenti Írisi Róbertsdóttur bæj- arstjóra fágætt safn landakorta Vestmannaeyjarbæ að gjöf. Með gjöf þessari eignast söfnin í Eyjum eitt stærsta kortasafn sem til er á Íslands og það má virða á milljónir króna. Fjöldi manns mætti í Einars- stofu í Safnahúsi Vestmannaeyja og hlýddi á frásögn Ólafs af söfnun á kortunum sem hefur stundað síð- astliðin 10-15 árin. „Kort þessi eru einhvers staðar nærri 70 talsins og eru af Íslandi, eða þá af Norðurlöndunum eða norðurslóðum þar sem Íslands sést stað. Ég hafði ekki rými fyrir þessi kort heima hjá mér og kaus því að gefa þau frá mér. Fannst þá sjálf- sagt að þau færu til Eyja,“ segir Ólafur sem er Vestmannaeyingur og átti heima við Grænuhlíð fram að eldgosinu árið 1973. Var þó áfram og eftir það viðloða í Eyjum og taugin þangað er sterk, eins og kortagjöfin staðfestir. sbs@mbl.is Gaf veglegt kortasafn sitt til Vestmannaeyja Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Eyjar Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri og Ólafur Hjálmarsson hagstofustjóri við afhendingu gjafarinnar góðu við upphaf goslokahátíðar í fyrradag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.