Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 11

Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 B E R N H A R Ð L A X D A L Skipholti 29b • S: 551 4422 LAXDAL er í leiðinni Skoðið netverslun laxdal.is STÓR ÚTSALA 30-60% AFSLÁTTUR Óskar Þór Hilmarsson Framkvæmdastjóri/ Löggiltur fasteignasali Sími 822 8750 oskar@fjarfesting.is Nánari upplýsingar hjá Óskari í síma 822-8750 eða oskar@fjarfesting.is • Einbýlishús. • 200 Kópavogur. • Mikið endurnýjað á glæsilegan hátt. HULDUBRAUT 46 - Sjávarlóð • Stærð 330,4 fm. • Aukaíbúð. • Sannkölluð útsýnisperla. • Stórglæsilegt. Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Fjársýsla ríkisins mun leiðrétta of- greidd laun 260 opinberra starfs- manna eftir að í ljós kom að laun þeirra voru miðuð við launavísitölu ríkisstarfsmanna en ekki viðmið samkvæmt lögum. Laun hafi því hækkað meira en þau áttu að gera. Nemur heildarupphæðin um 105 milljónum króna. Fram kemur á vef fjársýslunnar að algengt sé að endurgreiðslu- fjárhæðin svari til um þriðjungs einna mánaðarlauna hjá þeim sem þáðu laun yfir allt tímabilið en end- urgreiðslan mun fara fram í áföng- um á tólf mánaða tímabili eða þá að hún verður dregin af launum. Einstaklingarnir 260 hafa fengið bréf um bæði hvaða upphæðir um er að ræða í hverju tilviki og út- færslu á innheimtu. Notuðust við rangt viðmið Þá segir að í lögum nr. 79/2019 sé kveðið á um að laun þjóðkjörinna manna, ráðherra og tiltekinna emb- ættismanna ríkisins, skuli taka breytingum 1. júlí ár hvert sam- kvæmt hlutfallslegri breytingu á meðaltali reglulegra launa starfs- manna ríkisins fyrir næstliðið almanaksár sem Hagstofa Íslands reiknar og birtir fyrir 1. júlí ár hvert. „Í ljós hefur komið að allt frá gildistöku laganna hefur viðmið við framkvæmdina verið launavísitala ríkisstarfsmanna, en ekki það við- mið sem tilgreint er í lögunum, þ.e. meðaltalsbreyting reglulegra launa ríkisstarfsmanna milli ára.“ Brugðist við um leið Þetta mun hafa komið í ljós við undirbúning launabreytinga fyrir árið 2022. Um leið og þetta varð ljóst mun hafa verið brugðist við með nýjum verkferlum og greiningu á leiðréttingu ofgreiddra launa. Hópurinn sem fellur undir áður- nefnd lög nr. 79/2019 eru þjóð- kjörnir fulltrúar, forseti og alþing- ismenn, hæstaréttar-, landsréttar-, og héraðsdómarar, saksóknarar, lögreglustjórar; ráðuneytisstjórar, seðlabankastjóri og aðstoðarseðla- bankastjóri og ríkissáttasemjari. Óþolandi en bregðast þurfi við Kjartan Björgvinsson, formaður Dómarafélags Íslands, sagði í færslu á Facebook í gær að laun dómara hefðu verið „lækkuð fyr- irvaralaust“. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra svaraði í annarri færslu og sagði það ekki rétt að laun dómara og annarra æðstu embættismanna myndu lækka, þau yrðu leiðrétt núna um mánaðamótin og hækkuðu svo frá 1. júlí um 6,9% frá þeirri leiðréttingu. „Frá þeim tíma verða launin ná- kvæmlega þau sem þau eiga að vera lögum samkvæmt,“ skrifar hann. Þá segir Bjarni málið ósköp ein- falt. „Það snýst um að útgreidd laun voru hærri en þau laun sem greiða átti lögum samkvæmt. Það er óþol- andi að þetta hafi gerst en við því verður að bregðast.“ Þá bætir hann við að fráleitt sé að ræða um geðþóttaákvörðun fjár- málaráðherra í þessu samhengi enda sé fjárhæðin lögákveðin. „Málstaður þeirra sem mótmæla því að nú eigi að leiðrétta ofgreidd laun er býsna aumur. Ég vænti þess að þeir vilji bera fyrir sig að hafa tekið við of háum launum undan- farin ár í góðri trú. Fyrir mér eru önnur rök yfirsterkari. Og munar miklu.“ Laun opinberra starfs- manna hækkuðu of mikið - Þurfa að endurgreiða um þriðjung einna mánaðarlauna Morgunblaðið/Ófeigur Endurgreiðsla Þingmenn eru með- al þeirra sem fengu of há laun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.