Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 18

Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 18
18 FRÉTTIR INN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikil hækkun á verði hráefnis er ástæða þess að bakarar skoða nú að að stofna innkaupabandalag fyrir- tækja í greininni. Verði af slíku er þess vænst að ná megi fram marg- víslegu hagræði, en mikilar hækk- anir leita nú af mikum þunga út í verðlagið. „Þessar hækkanir koma til vegna stríðsins í Úrkaínu og þeim þarf að bregðast við. Raunar þurfa bakarar á ýmsan máta að styrkja stöðu sína og mikilvægt er að gera stéttina sýnilegri,“ segir Sigurður Már Guðjónsson sem á dögunum var kjörinn formaður Landssambands bakarameistara. Kannski sætabrauðsdrengur Sigurður Már hefur lengi starfað við bakaraiðn. Hann á og rekur Bernhöftsbakarí við Klapparstíg í Reykjavík, gamalgróið fyrirtæki sem stofnað var 1834. Upphaflega á 19. öld var starfsemin í einu timb- urhúsanna ofanvert við Lækjargötu. Einmitt þar starfaði hinn danski Tönnies Daniel Bernhöft; hnoðaði deig og setti í ofn. Bakaríið og starf- semi þess spurðist út og svo fór að húsin voru einu nafni kölluð Bern- höftstorfan sem er við Lækjargötu. Ein bygginganna þar er nefnd Kornhlaðan og neðsti hluti Banka- strætis er oft nefndur Bakara- brekka. Þar hjá var Bernhöftsbakarí upphaflega, en nú er þar Baka baka; bakarí, kaffihús og veitingastaður. Allt þetta segir að bakstur og brauð- gerð eru hluti af menningu hvers samfélags. „Ísland var að vakna til kröfu um að íslenska væri töluð í Reykjavík; þá tíð sem var áður en hávaðinn kom belgíngurinn. Danskir menn komu hér af ýmsu hvötum: þeir komu líka til að baka okkur brauð,“ sagði Hall- dór Laxness í Morgunblaðsgrein ár- ið 1971 sem bar yfirskriftina Brauð Reykjavíkur. Bernhöftsættin rak bakarí sitt lengi en árið 1944 keypti Sigurður Bergsson, sem þá starfaði í fyrir- tækinu, reksturinn og hafði hann með höndum til dánardægurs árið 1982. Afkomendur hans tóku þá við keflinu og meðal þeirra er Sigurður Már sem hefur rekið fyrirtækið mörg undanfarin ár. „Ég er nánast alinn upp í þessu fyrirtæki og fann mig strax fljótt í bakstri og hand- verki. Starfið er skemmtilegt og ef til vill má kalla mig sætabrauðs- dreng,“ segir hann og hlær. Mest af öllu því brauðmeti sem landinn neytir er selt í stórmörk- uðunum, þar sem verksmiðjufram- leiðsla er áberandi. Slíkt vill Sig- urður að breytist og að verslunar- keðjur fari í ríkari mæli að taka inn vörur frá handverksbakaríum. Í Þýskalandi til dæmis sé þróunin sú, samanber áherslur stórverslana Aldi og Lidl. Þróun og öðruvísi vörur „Mér finnst ótrúlegt að á degi hverjum séu flutt til landsins 15-16 tonn af brauðum, gjarnan þá frosnu deigi, sem síðan er bakað til dæmis inni í verslunum. Þetta er vara sem ætti auðvitað að vera framleidd og unnin í íslenskum fyrirtækjum,“ segir Sigurður og bætir við: „Í bakstri á Íslandi hefur verið tekin mikil vöruþróun á síðustu ára- tugum. Í brauð til dæmis er nánast hætt að nota sykur og rotvarnaefni og við erum í raun að framleiða allt öðruvísi vörur en fyrir ekki mörgum árum. Núna eru súrdeigsbrauðin mjög vinsæl og svo standa þriggja korna brauð alltaf fyrir sínu. Fólk vill brauð, hvað sem líður endalausu tali ef ekki áróðri margra gegn brauðum, sem eru orkurík fæða.“ Í dag eru á Íslandi starfandi alls 46 bakarí, en voru fleiri en 100 þegar best lét. Frá árinu 1958 hefur Land- samband bakarameistara verið starfandi og á vettvangi þess er unn- ið að ýmsum hagsmunamálum. Í dag eru þó aðeins um þriðjungur bakaría á Íslandi í samtökunum; 14 bakarí en 32 utan þeirra. „Við þurfum að fá fleiri til liðs við okkur, svo efla megi greinina og fagið. Einnig verður að skapa nútímalega ímynd með skír- skotun í handverkið og hinn alda- gamla bakgrunn greinarinnar,“ seg- ir Sigurður Már – sem fetar í fótspor afa síns, fyrrnefnds Sigurðar Bergs- sonar, sem var formaður samtaka bakara á árunum 1958-1970. „Í dag er við lýði markaðsátakið Kaka ársins en við ættum auðvitað líka að vera með verkefni eins og brauð ársins og fleira slíkt. Við þurf- um líka að sjá til þess að meiri virð- ing verði borin fyrir bökurum sem fagstétt. Mér finnst ómögulegt að nú séu til dæmis kokkar farnir að sinna bakstri í stórum stíl.“ Leita hagkvæmari innkaupa Úkraína er stundum sögð vera matarkista Evrópu. Hveiti þaðan er mikilvægt í bakstur og brauðgerð víða um lönd og sama má segja um fleiri tegundir hráefnis. Stríðs- rekstur Rússa í landinu á síðustu mánuðum hefur hins vegar síðan sett rækilegt strik í reikninga og breytt mörgu í heimsbúskap. Áhrifin koma skarpt fram í matvælafram- leiðslu og þar má nefna að Íslands- verð fyrir 25 kílóa poka af hveiti var í byrjun ársins 1.600 kr. en nú kostar hann 3.200 kr. Eðlilega sé því nú leitað leiða til hagkvæmari innkaupa og vegna þess er komið á samband við Bäko; sem er innkaupabandalag og hagsmunafélag þýskara bakara. Sigurður Már hefur að undanförnu átt í margvíslegum samskipum Bäko. Hugsanlegt er að stofnað verði íslenskt samvinnufélag um innkaup með Þjóðverjum. Hver út- koman verður skýrist fljótlega. „Á Íslandi eru í dag tvær heild- sölur sérhæfðar í þjónustu við bak- arí, auk margra annara fyrirtækja á sama markaði. Þessi fyrirtæki skila góðum hagnaði sem helgast af hárri álagningu, sem kemur við bæði okk- ur bakara og neytendur,“ segir Sig- urður Már sem jafnan er kominn í bakaríið um klukkan fimm á morg- ana og stendur vaktina jafnan fram í eftirmiðdaginn. Í bakarínu starfa þrír fagmenntaðir bakarar og fjögur eru í afgreiðslu. Þetta er drjúgur rekstur í millistærð fyrirtækja er hryggurinn í íslensku atvinnulífi. Kaffi og kruðerí Bernhöftsbakarí er í miðborginni og snýr út að Skúlagötu. Margir koma þar við, svo sem ferðamenn á miðborgarrölti. Bakaríið er líka konditorí, og hvað er betra en kaffi og kruðerí! Þetta er menning til að byggja á og meðal hugmynda sem Sigurður hefur sett fram er að í markaðsskyni verði í almanakið settur íslenskur bakaradagur. Þar komi til greina 25. september sem er fyrsti starfsdagur fyrsta íslenska bakarísins sem stofnað var fyrir um 200 árum. Komu til að baka okkur brauð - Sigurður Már er nýr formaður Landssambands bakarameistara - Bakari hjá Bernhöft - Mikil hækkun hráefnisverðs - Stofnun innkaupasambands í skoðun - Virðingu og íslenskan bakaradag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bakari Ég er nánast alinn upp í þessu fyrirtæki og fann mig strax fljótt í bakstri og handverki. Starfið er skemmti- legt og ef til vill má kalla mig sætabrauðsdreng,“ segir Sigurður Már um starf bakarans sem hann hefur lengi sinnt. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framleiðsla Brauði og bakstri fylgir margvísleg menning og gleði. Í bakaríi Gæðabaksturs-Ömmubaksturs fyrir bolludag. Morgunblaðið/Eggert Brauð Neysla og matarhefðir breytast. Fólk vill í dag grófari brauð en áður og horfir til hollustu. Lýsing á alls 272 gönguleiðum við flestra hæfi er að finna í Göngu- bók UMFÍ, en nýjasta útgáfa henn- ar kom nú í vikunni. Göngubókin hefur komið út í 20 ár eða síðan 2002. Upphafið má rekja til þess að umhverfisnefnd Ungmenna- félags Íslands vildi auka þekkingu fólks á landinu og kynna fyrir landsmönnum. Meðal þess sem segir frá í ritinu eru 16 leiðir í Reykjavík, svo sem í Viðey, Elliðaárdal, Öskjuhlíð, Fossvogsdal, Nauthólsvík, Laug- ardal og Örfirisey. Einnig er greint frá mörgum góðum leiðum í nágrenni Garðabæjar við Vífils- staðavatn og Heiðmörk. Af Suð- urnesjum segir frá gönguleiðum við Garðskaga og Gunnuhver og af áhugaverðum slóðum við Húsafell og Svignaskarð í Borgafirði. Einnig er greint frá stöðum við Látrabjarg vestur á fjörðum, í Kjarnaskóg við Akureyri og á Suðurlandi frá leið- um á Þingvelli og í Hellisskógi við Selfoss. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynningarfulltrúi UMFÍ, safnaði efni í bókina sem er unnin í sam- starfi við Einar Skúlason. Sá heldur úti gönguhóp undir merkinu Vesen og vergangur. Einar hefur verið áfram um að miðla sögum af land- inu og þær má meðal annars nálg- ast á Wappinu; appi sem geymir mikið safn fjölbreyttra gps- leiðarlýsinga um allt Ísland. Í Wappinu eru ljósmyndir og upplýsingar um leiðir og þjónustu nærri þeim. Þá er bent á hættur og hvað beri að varast. Göngubók UMFÍ 2022 er fáanleg á vinsælum ferðamannastöðum, söluskálum, sundlaugum og íþróttahúsum. Hana má einnig finna og hlaða nið- ur af vefnum umfi.is. sbs@mbl.is Gengið samkvæmt bókinni - 272 leiðir um landið - Útgáfa UMFÍ er árviss Morgunblaðið/Sigurður Bogi Leiðsögn Jón Aðalsteinn Berg- sveinsson hér með gönguritið góða. HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.