Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 02.07.2022, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 ✝ Vagna Sólveig Vagnsdóttir fæddist á Ósi í Arn- arfirði 22. sept- ember 1935. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Vest- fjarða Ísafirði 20. júní 2022. Foreldrar henn- ar voru Vagn Þor- leifsson, f. 23. ágúst 1898, d. 21. september 1979, og Bjarney Sólveig Guðbjartsdóttir, f. 22. september 1904, d. 27 janúar 1969. 1968, maður hennar er Jónas B. Magnússon, börn þeirra Ólöf Guðbjörg, Jónas Kristinn og Magnús Freyr. 2) Bjarney Sól- veig, f. 4. apríl 1971, maður hennar er Birgir Th. Karlsson, börn þeirra Snorri Karl, Klara Alexandra, Birgir Knútur og Bríet Vagna. 3) Snorri Guð- bergur, f. 20. nóvember 1972, kona hans er Marta Ewa Glowc- zynska, börn þeirra þeirra Nat- alía Bronislawa, Alexander Erik og Aníta Teresa. 4) Knútur Kristinn, f. 7. mars 1975, d. 24. júní 1976. Fyrir átti Vagna Jó- hannes Frank Jóhannesson, f. 12.nóvember 1963, kona hans er Mayya Pigida, börn Jóhann- esar eru Eva Dögg og Þorleif- ur. Útför Vögnu fer fram frá Þingeyrarkirkju í dag, 2. júlí 2022, kl. 13. Systkini Vögnu: Gunnar látinn, Val- gerður látin, Þor- leifur látinn, Hall- dóra látin, Margeir látinn, Kristjana, Guðlaug látin, El- ínborg látin, Að- alheiður, Snævar, Ómar, drengur lát- inn og Málfríður. Vagna giftist 26. desember 1975 Snorra Guðbergi Bergssyni, f. 21. febrúar 1925, d. 11. febrúar 1988. Börn þeirra eru: 1) Guð- björg Þóra, f. 1. september Elsku mamma, ósköp er nú sárt að sitja hér og skrifa þessi orð, sá dagur er kominn sem ég hef kviðið hvað mest fyrir en eins og þú myndir segja þá er þetta gangur lífsins, þú sért ekkert farin, bara flutt. Ég gæti skrifað endalaust falleg orð um þig, þú varst einfald- lega best og heppin var ég í mömmulottóinu að fá þig sem mína mömmu. Þú varst svo stolt af öllum börnunum, barnabörnunum og barna- barnabörnunum þínum og við öll heppin að eiga allar þessar góðu og frábæru minningar um þig. Ástríki Svo ástrík var hún mamma mín og merk er hennar saga því yndi kærleiks ennþá skín á alla mína daga. Hlý og blíð hún hjá mér stóð, minn helsti leiðarvísir af mildi sinni gaf hún glóð sem gæfuspor mín lýsir. Er æskuslóð um gróna grund gekk ég fyrir skömmu þá sá ég loga ljúfa stund ljósið hennar mömmu. (Kristján Hreinsson) Elsku mamma, takk fyrir allt, ég á eftir að sakna þín. Guð geymi þig, góða nótt. Þín dóttir, Sólveig. Elsku fallega amma mín. Við gengum í gegnum margt saman og við höfum alltaf verið svo nánar vinkonur. Það eru ekki allir eins heppnir og ég að hafa átt svona fallegt og náið sam- band við ömmu sína. Þú varst alveg einstök, svo frábær, hjartahlý og góð. Þú varst svo sterk, ákveðin, dugleg og fynd- in. Þú gast gert allt og þú varst mér mikil fyrirmynd. Þú kenndir mér að standa með sjálfri mér og láta engan draga mig niður. Þú kenndir mér líka að það er allt í lagi að vera ekki sammála skoðunum annarra og að vera samkvæm sjálfri sér. Þú vildir allt fyrir mann gera og þá meina ég allt. Það var fátt betra en að koma í kaffi til þín og spjalla klukkustundun- um saman um allt og ekkert, hlusta á tónlist og stússa í tölv- unni. Ég mun aldrei gleyma því þegar ég kom alltaf til þín í há- degismat þegar ég var í grunn- skóla og fékk hjá þér bestu samlokur í heiminum sem gerð- ar voru í vöfflujárninu þínu og fékk að sjálfsögðu Mix til þess að drekka með. Þau voru ófá hlátursköstin okkar og mikið gátum við fíflast og skemmt okkur saman. Ég er svo þakklát fyrir að hafa náð til þín í tæka tíð og fyrir að hafa náð að segja þér allt sem ég vildi segja við þig áður en þú fórst. Ég er svo þakklát fyrir að hafa verið með þér og haldið í höndina þína fram til síðasta andardráttar. Eftir sit ég tóm, dofin og sorg- mædd en á sama tíma svo þakklát fyrir allar okkar stund- ir og þann tíma sem ég fékk með þér. Ég er svo þakklát fyr- ir að Elmar hafi náð að kynnast þér og ég kem til með að segja honum og mínum börnum allar sögurnar af þér. Það sem ég gæfi fyrir að fá eitt knús í viðbót frá þér þar sem þú myndir leggja kinnina þína þétt upp við mína. Þessi knús voru alltaf best en það var alltaf jafn erfitt þegar þú leist svo á mig og sagðir mér hversu leiðinlegt það væri þegar við þyrftum að kveðjast. Elsku amma mín, ég mun klára verkefnið sem við byrj- uðum saman á og þú munt verða svo stolt þegar ég klára það. Hvíl í friði elsku amma mín, ég elska þig endalaust og guð geymi þig. Klara Alexandra Birgisdóttir. Um miðja 18. öld bjuggu hjónin Sigurður Ásmundsson og Guðrún Ívarsdóttir í Ás- garði í Grímsnesi. Við þau er kennd Ásgarðsætt. Sonur þeirra var síra Jón Sigurðsson prestur á Stað á Snæfjalla- strönd og síðar á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Eiginkona hans var Ingibjörg Ólafsdóttir lög- sagnara á Eyri í Seyðisfirði Jónssonar og Guðrúnar Árna- dóttur prests í Hvítadal í Saurbæ. Börn þeirra voru Ein- ar borgari, stúdent og versl- unarstjóri í Reykjavík, síra Sig- urður Jónsson á Hrafnseyri og Helga, giftist Benedikt Gabríel Jónssyni, síðast á Kirkjubóli í Skutulsfirði. Einar borgari átti Ingveldi Jafetsdóttur, gull- smiðs í Reykjavík, Illugasonar. Síra Sigurður kvæntist Þór- dísi, dóttur Jóns prests Ás- geirssonar á Mýrum í Dýra- fjarðarþingum, Söndum í Dýrafirði og í Holti í Önund- arfirði. Eiginkona síra Jóns og móðir Þórdísar var Þorkatla Magnúsdóttir prests á Söndum, Mála-Snæbjarnarsonar á Sæ- bóli á Ingjaldssandi Pálssonar. Móðir síra Magnúsar var fyrri kona Snæbjarnar, Kristín Magnúsdóttir digra í Vigur Jónssonar. Þá var og sonur Mála-Snæbjarnar og frú Krist- ínar síra Hákon á Álftamýri á norðurströnd Arnarfjarðar. Hann var móðurafi síra Egg- erts á Ballará á Skarðsströnd, föður síra Friðriks, höfundar hins mikla ævisagnarits, er út kom undir heitinu „Úr fylgsn- um fyrri aldar“ árið 1950. Við seinni konu sinni, Ástríði Sig- urðardóttur frá Ingjaldssandi, eignaðist Snæbjörn soninn Torfa, bónda á Brekku og Kirkjubóli í Dýrafirði. Þeim síra Sigurði á Hrafns- eyri og frú Þórdísi varð þriggja barna auðið. Voru þau Jón skjalavörður í Kaupmannahöfn og alþingismaður, átti Ingi- björgu Einarsdóttur borgara Jónssonar og voru þau hjón bræðrabörn; Jens rektor Lærða skólans í Reykjavík, átti Ólöfu Björnsdóttur yfirkennara Gunnlaugssonar, en meðal barna þeirra var síra Sigurður prófastur í Flatey, átti Guð- rúnu Sigurðardóttur kaup- manns í Flatey Johnsen; og Margrét í Steinanesi í Arnar- firði síðar í Hokinsdal, átti Jón skipherra Jónsson frá Suður- eyri við Súgandafjörð. Einn sonur Margrétar, Sigurður, fór í fóstur til móðurbróður síns, Jóns í Kaupmannahöfn, og varð sýslumaður í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu. Annar sonur Margrétar var Þorleifur bóndi í Steinanesi og seinna í Hokins- dal, átti Kristínu Egilsdóttur frá Trostansfirði. Sonur þeirra var Vagn Þorleifsson, átti Bjarneyju Sólveigu Guðbjarts- dóttur frá Bíldudal. Hjónin Vagn og Sólveig voru foreldrar Vögnu og systkina hennar. Þau bjuggu fyrst á Ósi í Arnarfirði, en seinna á Álfta- mýri og síðast á Þingeyri. Öll voru börn þeirra dugnaðarfólk og vel af Guði gerð. Vagna starfaði lengst af við fiskverk- un, en í tómstundum skar hún úr rekaviði listilegar stand- myndir og hélt á þeim sýn- ingar, auk þess sem hún mótaði í leir og saumaði út. Hún var prýðisvel greind eins og hún átti kyn til, fylgdist til hinstu stundar grannt með á vettvangi dagsins og var alls óbangin að láta í ljós skoðanir sínar; löngum óblind á hið broslega í hverjum hlut. Það er mikill sjónarsviptir að Vögnu Sólveigu og hennar verður saknað. Guð blessi minningu hennar og verndi og huggi ástvini hennar alla. Gunnar Björnsson, pastor emeritus. Vagna Sólveig Vagnsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Sálm. 86.11 biblian.is Vísa mér veg þinn, Drottinn, að ég gangi í sannleika þínum, gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN FRIÐBJARNARDÓTTIR, Vestursíðu 9, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð miðvikudaginn 29. júní. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 8. júlí klukkan 13. Ólafur Hermannsson Bjarnheiður Ragnarsdóttir Elva Hermannsdóttir Einar Jóhannsson Atli Hermannsson Ingibjörg Róbertsdóttir ömmu- og langömmubörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN J. RAGNARSSON skipstjóri, Suðurhópi 1, Grindavík, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð þriðjudaginn 28. júní. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju fimmtudaginn 7. júlí klukkan 14. Kristín Thorstensen Magnús Jónsson Laufey Einarsdóttir Ólína Jónsdóttir Ásmundur Guðmundsson Steinunn Jónsdóttir Anton Pétursson barnabörn og barnabarnabörn Elsku sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, KAREN GARÐARSDÓTTIR, Svíþjóð, lést 2. febrúar síðastliðinn í Svíþjóð. Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 6. júlí kl. 11.00. Enar Johansson Unnur Karen Guðmundsd. Elías Raben Gunnólfsson Helga María Guðmundsd. Pontus Sundén Andri Hrafn, Aron Freyr, Alexia Líf og Frosti Þór Sigríður Garðarsdóttir Gerleman Ingvar Garðarsson Ingibjörg Elísabet Garðarsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HREFNA AXELSDÓTTIR, Austurvegi 5, Grindavík, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu laugardaginn 25. júní. Útförin verður frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 19. júlí klukkan 13. Sérstakar þakkir til starfsmanna í Víðihlíð. Birgir Gunnarsson Laufey S. Birgisdóttir Elías M. Rögnvaldsson Guðrún D. Birgisdóttir Jón B. Reynisson ömmubörn og langömmubörn Okkar yndislega móðir, tengdamamma, amma og langamma, GUÐNÝ HULDA ÍSLEIFSDÓTTIR WAAGE, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, 28. júní. Að ósk hennar mun útförin fara fram í kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Lungnasamtökin – Lungu.is. Sigurður Waage Ingibjörg Bergrós Jóhannesd. Ísleifur Waage Jórunn Birgisdóttir Guðrún Hulda Waage Haukur Þórðarson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir mín, systir, frænka og vinkona, HRAFNHILDUR STEFÁNSDÓTTIR, Haddý, lést á heimili sínu 25. júní. Útför hennar fer fram í Bústaðakirkju fimmtudaginn 7. júlí klukkan 15. Fyrir hönd aðstandenda, Karen Birta Kjartansdóttir Bróðir minn, BALDVIN LEIFSSON, vélstjóri og rennismiður, lést 20. maí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ásmundur Leifsson Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR VALDEMARSSON, Boðaþingi 5, lést á heimili sínu fimmtudaginn 30. júní. Útför verður auglýst síðar. Anna McCall Steve McCall Steinunn Helga Óskarsdóttir Arnfreyr Kristinsson Kristmann Óskarsson Karitas Sæmundsdóttir Matthías Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.