Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 38

Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022 Sölustaðir: Krónan, Fjarðarkaup, apótek og Heilsuhúsið. Aloe Vera vörurnar eru fullkomnar í sumar! Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ekki afskrifa neina hugmynd nema að vel athuguðu máli. Hugmyndir um hvernig hægt sé að auka tekjur og hugs- anlega skipta um starf koma fram á næstu vikum. 20. apríl - 20. maí + Naut Svo virðist sem þér hafi tekist að finna það form, sem hentar þér best í leik og starfi. Samræður þínar við yfirmenn þína og aðra yfirboðara geta komið skemmtilega á óvart. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þér finnst athygli annarra beinast að þér í of ríkum mæli. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Reyndu að temja þér ráðkænsku og háttvísi í samtölum við maka og nána vini í dag. Sættu þig við ástand mála og kannski að snilldarhugmynd fæðist. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Það léttir lífið að slá á létta strengi en mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara. Fiskar og sporðdrekar sýna þér virðingu. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú finnur til andagiftar eða lætur freistast af ósvífinni manneskju sem verður á vegi þínum. Þú vilt hjálpa, eða í það minnsta halda í höndina á einhverjum. 23. sept. - 22. okt. k Vog Allt sem þú sendir frá þér í dag mun koma aftur til þín. Láttu því ekkert koma þér á óvart og gefðu þér tækifæri á að njóta því þú átt það svo skilið. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ekki hrökkva frá þótt aðrir líti til þín um hugmyndir og framkvæmd mála. Stundum þarf að bretta upp ermarnar. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Í stað þess að einblína á trén sérðu loks skóginn. Ef þér finnst aðstæður erfiðar reyndu að þrauka þar til það versta er gengið yfir. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Hversdagslegar samræður geta haft mikil áhrif á þig í dag. Sjáðu til þess að þú fáir útrás fyrir sköpunargleði þína. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Hingað til hefurðu verið fljótur að treysta nýjum vinum fyrir nákvæmum persónuupplýsingum. Vertu varkár. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Lífið hefur mikinn tilgang núna, þar sem viss manneskja spilar stóra rullu. Hon- um mun þykja mikið til athugasemda þinna koma enda seturðu mál þitt fram á skýran og hlutlausan hátt. Kannski á ég eftir að klára kennslu- réttindin og get þá hoppað inn í kennarastarfið ef ég fæ ekki fleiri störf í fjölmiðlum. Mamma var kenn- ari og það er svolítið í blóðinu en ég bauð upp á þá þjónustu að taka við- töl við fólk til að eiga eða gefa. „Ég komst seint að því hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór. Maður veit ekki hvernig markaðurinn verður. O lga Björt Þórðardóttir og tvíburabróðir henn- ar fæddust á fæðing- ardeild Landspítalans þann 2. júlí 1972. Þau bjuggu fyrst um sinn í Breiðholti og stöldruðu við í Kópavogi áður en fjöl- skyldan fluttist til Ytri-Njarðvíkur árið 1975. „Foreldrar mínir voru mjög iðnir við að ferðast innanlands um allt land og ættrækin mjög. Við fórum aðeins einu sinni í útlandaferð öll saman, til Hollands árið 1987, og er hún því afar eftirminnileg.“ Olga gekk í Grunnskóla Njarðvík- ur og þaðan lá leiðin í Mennta- skólann í Reykjavík, en hún pakkaði saman föggum sínum og hætti þar eftir tveggja ára nám. „Ég var kom- inn með einhvern námsleiða og var dálítið áttavillt manneskja. Ég vildi afla mér reynslu á vinnumarkaðnum og var ekki alveg viss um hvað ég vildi verða þegar ég væri orðin stór.“ Störf Olgu voru margvísleg en hún vann lengst af sem tollmiðlari og inn- heimtustjóri hjá fyrirtækinu Jónum Transport hf og þar áður í Spari- sjóðnum í Njarðvík, hjá Gjaldheimtu Suðurnesja og Gjaldheimtunni í Reykjavík. Hún lauk svo stúdents- prófi hátt í 34 ára gömul, þá frá Fjöl- brautaskólanum í Breiðholti. Þar fékk hún viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í fjölmiðlafræði. Olga kláraði BA-gráðu í íslensku með fjöl- miðlafræði sem aukagrein 2011 og MA í blaða- og fréttamennsku árið 2013. Síðan þá hefur hún verið fréttakona á RÚV, blaðamaður á Víkurfréttum, ritstjóri og útgefandi Fjarðarpóstsins í Hafnarfirði sem síðar varð bæjarmiðillinn Hafnfirð- ingur. Olga er í dag ritstjóri vefsíðunnar sumarhusid.is (fer í loftið í næstu viku), stundakennari í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og tekur að sér auka- verkefni sem ritstjóri, blaðamaður og áhugaljósmyndari. Þegar hún var atvinnulaus í þrjá mánuði stofnaði hún Minningasmiðjuna, þar sem hún ætla að halda áfram sem ritstjóri sumarhússins og sjá hvert það leiðir mig.“ Olga hefur líka verið blaða- maður á Læknablaðinu í hlutastarfi og áhugaljósmyndari. Olga er að eigin sögn stoltur fem- ínisti og ljúfur aktívisi í baráttu gegn ofbeldismenningu. „Ég var femínisti áður en ég vissi að orðið væri til. Þetta er svolítið í móðurættinni. Mamma var mikill jafnréttissinni og amma var í stjórn verkakvenna- félagsins Framsóknar. Langamma mín skrifaði grein undir nafni karl- manns. Mamma hvatti mig alltaf áfram og pabbi líka. Hann hefur aldrei verið neitt annað en jafnrétt- issinni. Ég varð þó í rauninni ekki aktívisti fyrr en í metoo-bylgjunni.“ Olga er í hópnum aktívismi gegn nauðgunarmenningu. „Ég er sjálf þolandi og hef stigið út úr ýmiss konar óheilbrigðum aðstæðum og tengslum og byggt upp líf mitt á ný með mikilli áfallavinnu og góðri hjálp fagfólks. Ég hef gríðarlegan áhuga á fólki, grunni þessi, velferð, Olga Björt Þórðadóttir – 50 ára Njarðvíkingar Foreldrar Olgu fluttu með fjölskylduna til Ytri-Njarðvíkur þegar Olga og tvíburabróðir hennar, Kristján, voru þriggja ára gömul. Olga settist að í Hafnarfirði og lítur á hann sem heimabæ sinn. Femínisti áður en hún vissi að orðið væri til Ritstjóri Olga var í MR en hætti eftir tveggja ára nám. Hún vann ýmis störf áður en hún hélt út í fjölmiðla- mennsku og gerðist ritstjóri og útgefandi. Dæturnar Olga er tveggja barna móðir. Jafnréttishug- sjónin sver sig í móðurættina en mamma Olgu var mik- ill jafnréttissinni og amma hennar einnig. Ísabella Líf Baldvinsdóttir og Kormákur Brímir Snæ- björnsson héldu tombólu við Nettó á Akureyri til styrktar Úkraínu og af- hentu Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn, 7.762 krónur. Rauði kross- inn þakkar þeim kærlega fyrir framlag þeirra í þágu mannúðar. Kormákur komst ekki í myndatökuna. Hlutavelta Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjumborgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.