Morgunblaðið - 02.07.2022, Page 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
LC02
Leður
Verð frá 329.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
HÆGINDASTÓLL
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ERT EKKI BRAD PITT!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera skuldbundin
hvort öðru.
ÁÁÁÁÁ… MÉR ER ILLT Í BAKINU
EFTIR 18 TÍMA LÚR
MYNDI ÞAÐ EKKI
FLOKKAST SEM
VINNUSLYS Í ÞÍNU
TILVIKI?
ÞEGIÐU
TAKK
ÉG MYNDI BJÓÐA ÞÉR AÐ
BORÐA MEÐ MÉR EN ÉG ER
BÚINN AÐ KLÁRA ALLT!
ERTU
BÚINN
MEÐ
ALLAN
MATINN?!
ALLT LEIRTAUIÐ!
„FASTUR Í SKORSTEININUM? ÓKEI,
VERTU RÓLEGUR, ÞAÐ ER HJÁLP Á
LEIÐINNI. Í GUÐANNA BÆNUM EKKI
GEFA HONUM FLEIRI SMÁKÖKUR.“
LÖGREGLAN
NEYÐARLÍNAN 112
ÓSKABRUNNUR
MÉR DATT Í HUG AÐ HALDA
ÞÉR FÉLAGSSKAP Á
MEÐAN FJÖLSKYLDAN ÞÍN
ER Í BURTU!
viðhorfum og hvað liggur að baki
þeim. Ég ætlaði að verða prestur
eða hjúkrunarfræðingur vegna
áhuga á sálgæslu en hef sinnt því
auðveldlega í gegnum félagsstörf,
blaðamennskuna og fleira.“
Olga varð Íslandsmeistari með
UMFN í handbolta 1986, og Ungfrú
Suðurnes 1990. „Það er ekki í tísku í
dag, sem betur fer. Viðurkenningar í
dag finnst mér mikilvægastar í
formi viðbragða frá fólki sem mér
þykir vænt um og þar sem ég hef
náð að láta eitthvað gott af mér
leiða. Ég á tvær dætur og yndislega
barnsfeður sem eru vel kvæntir og á
ég afar gott samband við þau.“
Fréttir, fréttaskýringar, heim-
ildaþættir/-myndir og hlaðvörp með
áhugaverðum viðmælendum eru í
sérstöku uppáhaldi hjá Olgu en hún
er með eigin hlaðvarpsþátt sem heit-
ir Plássið og er aðgengilegur á
streymisveitunni Spotify.
Fjölskylda
Dætur Olgu eru: 1) Agnes Helga
Gísladóttir, f. 4.5. 2003, stúdent og
stafrænt markaðsséní, býr í Reykja-
vík. Faðir hennar er Gísli Matthías
Gíslason, f. 15.5. 1973, þyrlu-
flugmaður. 2) Þórdís Björt Andra-
dóttir, f. 11.3. 2008, grunnskólanemi,
býr í Hafnarfirði. Faðir hennar er
Andri Már Helgason, 14.2. 1981,
verkefnastjóri. Systkini Olgu eru:
Kristján Ingi Þórðarson, f. 2.7. 1972,
sjálfstætt starfandi iðnaðarmaður,
býr í Hafnarfirði, og Ingibjörg Þórð-
ardóttir (kölluð Imba), f. 12.8. 1979,
Operation Control Center hjá Air
Atlanta, býr í Hafnarfirði. Foreldar
Olgu: Þórður Bergmann Þórðarson,
f. 23.2. 1941, slökkviliðsmaður hjá
Varnarliðinu frá 1975 til 2009. Býr í
Njarðvík, og Helga Magnúsdóttir, f.
24.10. 1942, d. 5.6. 2015, grunnskóla-
kennari í Njarðvík.
Olga Björt
Þórðardóttir
Oddur Jónsson skipstjóri,
hafnarfógeti og hafnsögumaður í Reykjavík
Guðríður Þórðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Þórður Vilberg Oddsson
læknir í Reykjavík
Olga Bergmann Bjarnadóttir
húsfreyja og verslunarmaður í Reykjavík
Þórður Bergmann
Þórðarson
stýrimaður og síðar
slökkviliðsmaður í Njarðvík
Bjarni Jónsson
skipstjóri og stýrimaður í
Reykjavík
Halldóra Jóhanna Sveinsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Guðjón Sigurðsson
verkstjóri og skósmiður á Ísafirði
Ingibjörg Eiríksdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Magnús Kristján Guðjónsson
verslunarmaður á Ísafirði
Jóna Ingibjörg Örnólfsdóttir
verkakona í Reykjavík
Örnólfur Jóhannesson
kaupmaður og verkamaður á
Suðureyri
Margrét Þórlaug Guðnadóttir
húsfreyja á Suðureyri
Ætt Olgu Bjartar Þórðardóttur
Helga Magnúsdóttir
grunnskólakennari í Njarðvík
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Hraðferð niður brattan bakka.
Bull, sem vellur upp úr krakka.
Klunnafót svo kalla megum.
Kranavatnsins boga teygum.
Eysteinn Pétursson á þessa
lausn:
Salíbunan ber mig niður.
Buna úr munni oft er kliður.
Skórinn bunu breiða geymir.
Buna volg úr krana streymir.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Salíbunu sæll ég fer,
sem og buna kjaftæði’ er.
Bunu kalla meinsemd má.
Menn er þyrstir bunu þrá.
Hér er lausn Guðrúnar B.
Í bunu þutum, mikið mót.
Úr munni krakka bunar.
Bæklun nefndum bunufót.
Buna úr krana dunar.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Hraðferð niður brekku er buna.
Buna er krakkans orðaruna.
Bunu kalla bífu megum.
Bunu úr krana þyrstir teygum.
Þá er limra:
Ein birkihrísla á bala
við bunulæk var að hjala
og laufblaðið netta
lét þá detta
lækjarins girnd til að svala.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Lengur ekki gefast grið,
gátu þarf að ljúka við,
fór ég því á fætur geyst,
fljótt var sú af hendi leyst:
Skýjahula skammvinn er.
Skammur aldur vera kann.
Gnótt af ýmsu geymi hér.
Gríma kallast má með sann.
Að vanda flýtur vísa með lausn
Helga:
Huldumál
Um nóttina’ úr hamrinum hrundi
er Hulda í bælinu stundi.
Nú ekki er rótt
því eftir þá nótt
ekkert af draumnum hún mundi.
Pétur Georg yrkir um „Vorannir
hrafnsins“:
Iðni krumma, ást og trú,
eru dyggðir sem við heiðrum.
Alla daga björg í bú
ber hann heim, úr öðrum hreiðrum.
Pétur Beinteinsson yrkir og kall-
ar „Tvíveðrung“:
Geislasindur sunnan fer,
svalir vindar norðan anda.
Dyggð og synd í sálu mér
sömu lyndisþáttum blanda.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bunulækur blár og tær