Morgunblaðið - 02.07.2022, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
Góður heimavöllur er gulls
ígildi í íþróttum og á meðan beð-
ið hefur verið eftir alvöru þjóð-
arhöll hér á landi, og Laugardals-
höllin er enn í lamasessi, hefur
körfuboltalandslið karla eignast
sína „gryfju“ til bráðabirgða fyrir
sína heimaleiki.
Íslenska liðið lék í gærkvöld
í annað sinn í Ólafssal á Ásvöll-
um í Hafnarfirði en þar vann liðið
ævintýralegan sigur á sterku liði
Ítala í febrúar. Sú gryfja er þó að-
eins bráðabirgðaredding fyrir
Laugardalshöllina, sem er á und-
anþágu fyrir svona leiki eins og
alþjóð veit.
Stemningin sem myndast í
þessum litla sal þar sem hægt er
að koma fyrir um 800 áhorf-
endum er mjög flott. Áhorfendur
eru nálægt vellinum á báðar hlið-
ar og þeir geta svo sannarlega
hjálpað til. Það gerðu þeir aftur í
gærkvöld í mögnuðum sigri.
En þeir eru hinsvegar bara
800. Þar með verður körfubolta-
sambandið af umtalsverðum
tekjum því ætla má að í það
minnsta helmingi, ef ekki þrefalt
fleiri hefðu mætt á þennan leik
ef það hefði verið í boði.
Eins og fram kom á mbl.is í
gær tapar sambandið hátt í tíu
milljónum á hverjum heimaleik á
meðan ástandið er svona.
Eins langt og Ólafssalur nær
þá er hann fyrst og fremst flott-
ur heimavöllur fyrir sitt félag,
Haukana. Bara það að komast
aftur í Laugardalshöllina myndi
þýða umtalsvert skárri afkomu
fyrir sambandið.
Ísland á eftir að spila þrjá
heimaleiki í þessari undan-
keppni, gegn Spáni, Úkraínu og
Georgíu, og vonir standa til að sá
fyrsti, í ágúst, fari fram í Höllinni.
Það væri allavega framför. Þótt
Ólafssalur sé frábær gryfja.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Serbneski körfuknattleiksmað-
urinn Nikola Jokic mun skrifa und-
ir stærsta samning í sögu NBA-
deildarinnar hjá félagi sínu Denver
Nuggets. Samningurinn, sem er til
fimm ára, er að andvirði 264 millj-
ónum dollara og verður í gildi frá
2023 til 2028.
Að lokinni deildakeppni NBA í ár
var Jokic, gjarnan kallaður Jóker-
inn, valinn leikmaður ársins, annað
árið í röð. Á nýafstöðnu tímabili
skoraði hann 27,1 stig, tók 13,8 frá-
köst og var með 7.9 stoðsendingar
að meðaltali í leik.
Jokic verður
launað ríkulega
AFP/Ezra Shaw
Jókerinn Nikola Jokic hefur leikið
stórkostlega með Denver Nuggets.
Enska knattspyrnufélagið Totten-
ham Hotspur staðfesti í gær að liðið
væri búið að festa kaup á brasilíska
landsliðsmanninum Richarlison.
Kemur hann frá Everton og greiðir
Tottenham 60 milljónir punda fyrir
sóknarmanninn, sem skrifaði undir
fimm ára samning.
Richarlison hefur skorað 48
mörk í 173 leikjum í ensku úrvals-
deildinni fyrir Everton og Watford.
Hann er fjórði leikmaðurinn sem
Tottenham fær til sín í sumar. Ivan
Perisic, Fraser Forster og Yves Bis-
souma voru áður komnir til liðsins.
Tottenham
keypti Brassann
AFP/Anthony Wallace
Tottenham Richarlison (t.v.) í leik
með brasilíska landsliðinu.
Á ÁSVÖLLUM
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þeir eru ótrúlegir, íslensku lands-
liðsmennirnir í körfubolta. Hvernig
þeim tókst að herja út sigur á Hol-
lendingum á Ásvöllum í gærkvöld,
67:66, eftir að hafa verið undir
meirihluta leiksins er nánast óskilj-
anlegt. Eiginlega ólýsanlegt.
Sigur sem er svo gríðarlega dýr-
mætur fyrir framhaldið. Sigur sem
getur fleytt liðinu svo langt. Sigur
sem kemur liðinu í kjörstöðu og það
verður tilhlökkunarefni að sjá það
glíma við Spán, Úkraínu og Georgíu
í hörðum slag um sæti í lokakeppni
HM. Sem eftir þennan magnaða sig-
ur er orðið meira en bara langsóttur
draumur. Strákarnir eru komnir í
frábæra stöðu og fram undan eru
spennandi mánuðir fyrir íslenskan
körfubolta. HM 2023 í austurhluta
Asíu, þangað gæti Ísland komist.
Þrátt fyrir að þurfa að hefja leik á
fyrsta stigi forkeppninnar. Og án
annars af tveimur fremstu körfu-
boltamönnum landsins, Martins
Hermannssonar.
Fimm stig í öðrum leikhluta
Annar leikhlutinn virtist ætla að
verða banabiti íslenska liðsins. Leik-
mönnum var gjörsamlega fyrir-
munað að hitta í körfuna og Ísland
skoraði fimm, segi og skrifa fimm
stig í leikhlutanum. Eftir fyrri hálf-
leikinn var þriggja stiga nýting ís-
lenska liðsins 6,3 prósent, eitt skot
af sextán rataði rétta leið! En liðið
lék góðan varnarleik, Hollendingar
skoruðu þó ekki nema fimmtán stig
og alls 35 í hálfleiknum. Það dugði
þeim samt til að vera með afgerandi
forystu í hálfleik, 35:21.
En körfuboltinn getur verið ótrú-
leg íþrótt. Það tók íslenska liðið 90
sekúndur að skora fyrstu níu stig
síðari hálfleiks og komast aftur inn í
leikinn. Í tvígang munaði aðeins
tveimur stigum og eftir þriðja hlut-
ann stóð 51:47, Hollendingum í hag.
Allt galopið fyrir lokasprettinn.
Fimm mínútum fyrir leikslok komst
Ísland yfir í fyrsta sinn frá því í
fyrsta leikhluta, 55:54. Og þá upp-
hófst darraðardansinn sem lauk
með mögnuðum sigri.
Tryggvi þurfti hjálp
Tryggvi Snær Hlinason bar ís-
lenska liðið á herðum sér rétt eina
ferðina, í sókn og vörn. Það sést best
á þeim örfáu mínútum sem hann er
hvíldur í hverjum leik hversu erfitt
liðið á uppdráttar án hans inni á
vellinum.
En Tryggvi þarf hjálp. Hann
vinnur ekki landsleiki einn og sér.
Fleiri þurfa að stíga fram og þegar
mest á reyndi kom hver á fætur öðr-
um. Elvar Már Friðriksson hrökk í
gang í fjórða leikhluta og sýndi stór-
kostlega takta. Ægir Þór Stein-
arsson náði ótrúlegustu boltum þeg-
ar mest á reið, Jón Axel
Guðmundsson átti lykilatriði loka-
mínútunnar þegar hann krækti í
ruðning á Hollending í dauðafæri og
kom í veg fyrir að þeir kæmust yfir
og svo hirti Haukur Helgi Pálsson
lokafrákastið á lokasekúndunni og
innsiglaði sigurinn. Tilfinningin var
sú að ef íslenska liðið kæmist yfir á
annað borð myndi það einhvern veg-
inn herja út sigur. Það gekk eftir!
Ísland komið í efsta sæti
Eftir leiki gærdagsins liggur síð-
asti undanriðill Íslands endanlega
fyrir en Úkraína tryggði sér þá
þriðja sætið í G-riðli og fer áfram
ásamt Spáni og Georgíu. Ísland
mætir því þessum þremur þjóðum
heima og að heiman í ágúst, nóv-
ember og febrúar og þar ræðst
hvaða þrjár þjóðir af þessum sex
komast á heimsmeistaramótið á
næsta ári.
Staðan er núna þannig að Ísland
er komið með sex stig í seinni und-
ankeppninni og er með forystuna
þar sem stendur. Spánn og Ítalía
eru með fjögur stig, Georgía og
Úkraína tvö stig og Hollendingar
sitja eftir án stiga. Þeirra möguleiki
fólst í því að vinna þennan leik á Ás-
völlum.
Í næstu viku eru svo þrír síðustu
leikirnir í fyrri riðlunum þar sem
Holland tekur á móti Ítalíu og Spán-
verjar leika útileiki sína við Georgíu
og Úkraínu. Stigin úr öllum þessum
leikjum fara með yfir í seinni undan-
keppnina þannig að óhætt er að
segja að hún sé þegar hafin.
HM er ekki lengur bara
fjarlægur draumur
- Ísland er í efsta sæti í undankeppni tvö eftir ótrúlegan sigur á Hollendingum
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Taktar Elvar Már Friðriksson brýst í átt að körfu Hollendinga en hann átti frábæran fjórða leikhluta þar sem hann
skoraði m.a. tvær síðustu körfur Íslands sem komu liðinu í 65:62 og aftur í 67:64.
Undankeppni HM karla, Ásvöllum, 1.
júlí 2022.
Gangur leiksins: 5:2, 10:8, 14.13,
16:20, 16:29, 19:31, 21:35, 30:35,
38:40, 38:46, 47:51, 47:54, 55:54,
57:59, 63:59, 65:62, 65:64, 67:64,
67:66.
Ísland: Tryggvi Snær Hlinason 20/11
fráköst, Elvar Már Friðriksson 20/4
fráköst, Haukur Helgi Pálsson 9/4
fráköst, Ægir Þór Steinarsson 7/4
fráköst, Jón Axel Guðmundsson 5/6
fráköst/5 stoðsendingar, Hörður Ax-
el Vilhjálmsson 3, Kári Jónsson 2,
Sigtryggur Arnar Björnsson 1,
ÍSLAND – HOLLAND 67:66
Styrmir Snær Þrastarson, Ólafur
Ólafsson, Þórir Þorbjarnarson, Ragn-
ar Nathanaelsson.
Holland: Worthy De Jong 15, Yannick
Franke 14, Keye van der Vuurst de
Vries 6, Jesse Edwards 6, Jito Kok 6,
Leon Williams 5, Roeland Schaftena-
ar 5, Olaf Schaftenaar 3, Marijn Ver-
vers 2, Mohamed Kherrazi 2, Thom-
as van der Mars 2.
Dómarar: Yener Yilmaz, Tyrklandi,
Geert Jacobs, Belgíu, Goran Sljivic,
Austurríki.
Áhorfendur: 800, uppselt.
KNATTSPYRNA
Besta deild karla:
Hásteinsvöllur: ÍBV – Breiðablik ......... L16
Keflavík: Keflavík – Fram................. S19.15
2. deild karla:
Ólafsvík: Víkingur Ó. – KFA ................. L13
Egilsstaðir: Höttur/Hug. – Njarðvík.... L14
Grenivík: Magni – Haukar..................... L16
Sandgerði: Reynir S. – KF .................... L16
Þróttarvöllur: Þróttur R. – Völsungur.. S16
3. deild karla:
Miðgarður: KFG – Kormákur/Hvöt ..... L14
Hliðarendi: KH – Sindri......................... L14
Árbær: Elliði – Dalvík/Reynir............... L16
1.deild kvenna, Lengjudeildin:
Reyðarfjörður: FHL – HK.................... L14
2. deild kvenna.
Akranes: ÍA – Sindri .............................. L13
Húsavík: Völsungur – Álftanes ............. L14
Úlfarsárdalur: Fram – Einherji............ L14
FIMLEIKAR
Norðurlandamótið í áhaldafimleikum fer
fram í Versölum í Kópavogi í dag og á
morgun. Keppt er í flokkum karla, kvenna,
drengja og stúlkna. Fjölþraut ungmenna
hefst kl. 9.30 í dag en fjölþraut fullorðinna
klukkan 15. Úrslit á einstökum áhöldum
eru á morgun og hefjast kl. 11 en lýkur kl.
16.
UM HELGINA!
Undankeppni HM karla
Norður- og Mið-Ameríka, úrslit:
Bandaríkin – Grænland ....................... 33:26
_ Bandaríkin leika á HM 2023.
HM U20 kvenna
Undanúrslit:
Holland – Noregur ............................... 23:32
Svíþjóð – Ungverjaland ....................... 25:33
Nations Cup U18 karla
Leikið í Þýskalandi:
Holland – Ísland ................................... 28:39
E(;R&:=/D