Morgunblaðið - 02.07.2022, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2022
Sýning á verkum Luciu Arbery
Simek verður opnuð kl. 16 í dag,
laugardag, í galleríinu Úthverfu á
Ísafirði. Ber hún titilinn Ambergris
Corral og á henni heldur Simek
áfram vangaveltum sínum um leið-
angursvinnu, þ.e. hvalaleiðangra,
kúarekstur og könnunarleiðangra
um norðurslóðir, í röð skúlptúra
sem líkjast verkfærum og tólum
sem tilheyra þessum ólíku greinum,
eins og segir í tilkynningu.
„Hlutirnir eru búnir til úr hinu
og þessu sem finna má bæði á heim-
ili og verkstæði. Ýmist tilviljunar-
kendir og brothættir eða nostur-
samlega unnir gefa þeir til kynna
einhvers konar trúarlegan tilgang
fyrir ónefndan ævintýramann,“
segir í henni. Simek stundar mynd-
list og ritlist og hefur auk þess
starfað sem sýningarstjóri. Hefur
hún sýnt víða, m.a. í Dallas Museum
of Art og Skaftfelli á Seyðisfirði.
Sjálfa Lucia Arbery Simek tekur sjálfu.
Vangaveltur um leiðangursvinnu
Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sópr-
an, Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleik-
ari og Helga Bryndís Magnúsdóttir
píanóleikari munu kl. 16 á morgun,
sunnudag, flytja íslensk sönglög og
lög eftir Edvard Grieg og Franz
Schubert í Hallgrímskirkju í
Saurbæ í Hvalfirði. Þetta er fjórða
tónleikaárið í Hallgrímskirkju í
Saurbæ í Hvalfirði og er hug-
myndin með tónleikahaldinu að við-
halda staðnum sem menningarstað
og eru tónleikarnir til styrktar
kirkjunni. Er vonast til þess að með
tímanum verði hann aðdráttarafl
bæði fyrir landsmenn og erlenda
ferðamenn.
Hallgrímskirkja í Saurbæ er
sögulega og menningarlega mik-
ilvægur staður fyrir Íslendinga en
þarna bjó Hallgrímur Pétursson og
samdi Passíusálmana, segir í til-
kynningu.
Flytjendur Tónlistarkonurnar þrjár
sem koma fram í kirkjunni á morgun.
Grieg, Schubert og íslensk sönglög
Söng- og leikkonan Katrín Hall-
dóra Sigurðardóttir og píanóleik-
arinn Hjörtur Ingvi Jóhannsson
koma fram á stofutónleikum
Gljúfrasteins á morgun, sunnudag,
kl. 16 og munu koma víða við, flytja
íslensk og erlend lög sem eru í sér-
stöku uppáhaldi hjá báðum.
Katrín Halldóra er hvað þekktust
fyrir túlkun sína á söngkonunni
Elly Vilhjálms í sýningu sem sýnd
var í Borgarleikhúsinu og hlaut
mikið lof. Katrín Halldóra starfar
sem söngkona samhliða leiklistinni
og gaf út sína fyrstu sólóplötu á síð-
asta ári með lögum eftir Jón Múla
og Jónas Árnasyni í nýjum útsetn-
ingum eftir Hauk Gröndal. Hjörtur
Ingvi er líklega best þekktur sem
hljómborðsleikari og lagahöfundur
í hljómsveitinni Hjaltalín. Hann
lærði djasspíanóleik í Konservator-
íinu í Amsterdam og vinnur nú að
sinni fyrstu sólóplötu.
Samstarf Katrín og Hjörtur.
Katrín og Hjörtur á Gljúfrasteini
Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
hefja nú göngu sína á ný eftir tveggja ára hlé en
slíkir tónleikar hafa verið haldnir allt frá árinu
1989. Að vanda verður röðin fjölbreytt hvað varð-
ar tónlist og flytjendur.
Á morgun, sunnudag, munu Hlíf Sigurjóns-
dóttir fiðluleikari og Eva Þyri Hilmarsdóttir pí-
anóleikari flytja Vorsónötu Beethovens, Sónatínu
ópus 100 eftir Dvorák og Systur í Garðshorni eft-
ir Jón Nordal í safninu kl. 17. „Verkin unnu þær
stöllur með hléum á meðan þjóðfélagið einkennd-
ist af covid-lokunum og menningarsneyð,“ segir í
tilkynningu og að verkefnavalið sé því engin til-
viljun, heldur vítamín á „vondum tímum“.
Á þriðjudagskvöld, 5. júlí, kl. 20.30 verða
haldnir tónleikar með yfirskriftinni Var þetta
draumur? en á þeim koma fram sópransöngkon-
urnar Jóna G. Kolbrúnardóttir og María Sól Ing-
ólfsdóttir, Eggert Reginn Kjartansson tenór og
Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari. „Með
ljóðaflokkum eftir Dvorák, Sibelius og Beethoven
er áheyrendum boðið að sökkva sér í marg-
slungnar tilfinningar ástarinnar í meðförum
þriggja meistaratónskálda frá ólíkum menning-
arheimum,“ segir um þá tónleika á vef safnsins,
lso.is, þar sem verður hægt að kynna sér tón-
leikaröðina í sumar. Fereyki Jóna, María Sól, Þóra og Eggert koma fram á þriðjudag.
Sumartónleikar á ný
- Fagrir tónar hljóma aftur í safni Sigurjóns Ólafssonar
Næstsíðustu tón-
leikar Sönghátíð-
ar í Hafnarborg
bera yfirskrift-
ina Leiðarljós –
íslensk einsöngs-
lög og fara fram
í dag, 2. júlí, kl.
17. Á þeim flytja
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
mezzósópran,
Hallveig Rúnarsdóttir sópran,
Kolbeinn Jón Ketilsson tenór,
Francisco Javier Jáuregui gítar-
leikari og Sigurður Helgi Oddsson
píanóleikari ástsæl íslensk sönglög
eftir fjórtán tónskáld. Þeirra á
meðal eru Atli Heimir Sveinsson,
Árni Thorsteinsson, Sigvaldi
Kaldalóns, Gunnar Reynir Sveins-
son, Sigfús Einarsson, Jón Ásgeirs-
son, Jórunn Viðar, Páll Ísólfsson og
Jóhann G. Jóhannsson.
Leiðarljós á Söng-
hátíð í Hafnarborg
Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir
Orgelsumar í Hallgrímskirkju hefst á morgun, 3. júlí, og lýkur 21. ágúst.
Fjórtán íslenskir og erlendir organistar munu leika á Klais-orgel Hall-
grímskirkju á laugardögum og sunnudögum í júlí og ágúst. Á Menningar-
nótt verður orgelmaraþon þar sem margir nemendur Björns Steinars Sól-
bergssonar, organista kirkjunnar, munu leika og sumrinu lýkur með
lokatónleikum 21. ágúst. Á upphafstónleikum Orgelsumars, á morgun kl.
17, munu Matthías Harðarson orgelleikari og Charlotta Guðný Harðar-
dóttir píanóleikari flytja verk fyrir orgel og píanó eftir Widor, Franck,
Dupré, Sigurð Sævarsson og Alain. Miðasala við innganginn og á tix.is.
Á Orgelsumri Matthías Harðarson og Charlotta Guðný Harðardóttir.
Orgelsumar hefst í Hallgrímskirkju
Rusl Fest er vikulöng lista- og
hönnunarhátíð sem lýkur núna um
helgina, skv. fréttatilkynningu.
Hátíðin samanstendur af fimm
mismunandi vinnustofum: Á morg-
un koma krónur undan snjónum
(arkitektavinnustofa), Tilrauna-
eldhúsið, Trash Sound, Skran Fest
og Vegglistavinnustofan. Að auki
var boðið upp á fyrirlestra og við-
burði hvert kvöld vikunnar.
Hátíðin er haldin í nýju skap-
andi hverfi Reykjavíkurborgar,
Gufunesi, og leggur áherslu á svo-
kallaða hringrásarhugsun í sam-
hengi menningu, list og hönnun
með sérstaka áherslu á
byggingariðnaðinn. Hægt er að
nálgast dagskrána og frekari upp-
lýsingar á heimasíðu Rusl Fest,
ruslfest.is.
Hátíðin hófst mánudaginn 27.
júní og lýkur á morgun með teit-
inni Buxur. Buxur er fyrsta vöru-
húsapartíið á Ís-
landi á vegum
íslensku
myndlistar-
mannanna
Bjarka og Loka.
Hugmyndin er
að bjóða upp á
hágæða tónlist,
list og myndefni
til að örva öll
skilningarvit.
Þeir listamenn sem sýna verk sín
á morgun eru Ýmir Grönvold, Atli
Bollason, Edda Karólína, Qwick,
Brák Jónsdóttir, Krot & Krass,
Kristín Mothens og Natka. Á Bux-
um koma fram tónlistarmennirnir
Steffi, Bjarki b2b Arni, Ása Kolla,
Volruptus LIVE, DJ Sley &
Jamesendir, russian.girls, Charlee
Green og Óli Ofur S/L.
Aldurstakmark á Buxur er 21
ár. Miðsala fer fram við inngang.
Rusl Fest lýkur með Buxum á morgun
Brák
Jónsdóttir
Bandaríski tónlistarmaðurinn R Kelly hlaut í vikunni 30
ára fangelsisdóm samkvæmt úrskurði alríkisdómstóls.
Kelly hlýddi þögull á fórnarlömb sín, ungar konur, fyrir
rétti þar sem þær lýstu því hvernig hann hefði brotið á
þeim. Saksóknarar fóru fram á 25 ára dóm yfir honum
að lágmarki og báru við að hætta stafaði af honum.
Í september í fyrra var Kelly fundinn sekur um að
hafa í áratugi beitt ungar þeldökkar konur og börn af
báðum kynjum ofbeldi, misnotað þau kynferðislega og
haft milligöngu um slíka glæpi. Var hann ákærður fyrir
fjölda brota og þeirra á meðal að hafa haldið ungum
stúlkum sem kynlífsþrælum.
R. Kelly hlaut 30 ára fangelsisdóm
R. Kelly