Læknablaðið - 01.03.2022, Blaðsíða 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 125
R A N N S Ó K N
Niðurstöður
Nýgengi, kyn og aldur
Alls greindust 57 einstaklingar yngri en 18 ára með Gravessjúk
dóm á rannsóknartímabilinu. Nýgengi á hverja 100.000 einstak
linga yngri en 18 ára var 3,5. Af þeim voru 16 strákar og 41 stelpur
og það gaf kynjahlutfallið 2,6 stelpur á hvern strák. Það greindust
28 einstaklingar á fyrri áratug rannsóknar og 29 á þeim seinni.
Nýgengi miðað við 100.000 einstaklinga í áhættuhópi sýndi að
ekki var marktæk breyting á nýgengi á milli áratuganna tveggja
í heildarþýði (p=0,833) né hjá kynjunum (p=0,459 hjá strákum og
p=0,861 hjá stelpum). Nýgengi var nokkuð breytilegt eftir árum
tímabilisins, dreifnisvið nýgengis var allt frá 0 upp í 6 tilfelli á ári,
miðgildi nýgengis var 3.
Þar sem Graves er algengari í börnum í eða eftir kynþroska var
ákveðið að skoða sérstaklega nýgengi í börnum fyrir kynþroska.
Skráningu á Tannerskala, varðandi kynþroska barnanna, var
ábótavant og var þess vegna miðað við aldur yngri en 10 ára. Alls
greindust 7 börn yngri en 10 ára á tímabilinu, tvö greindust á fyrri
áratug og 5 á seinni. Ekki var marktæk aukning á nýgengi í þess
um hópi (p=0,196).
Á mynd 2 má sjá aldursdreifingu rannsóknarþýðis á grein
ingardag, skipt eftir kyni.
Í töflu I má sjá hversu margir greindust á hvorum áratug fyrir
sig hjá báðum kynjum. Einnig má sjá meðalaldur, miðgildi aldurs
og hæsta og lægsta aldur á hvorum áratug fyrir sig. Meðalald
ur stráka við greiningu var 13,6 ár og var miðgildi aldurs 14 ár.
Meðal aldur stelpna við greiningu var 13,9 ár og var miðgildi 14,6
ár.
Heilsufars- og fjölskyldusaga
Í töflu II má sjá upplýsingar um heilsufarssögu einstaklinga í
rannsóknarþýði, auk þess var saga um sjálfsónæmis, ofnæmis og
skjaldkirtilssjúkdóma meðal ættingja í fyrsta ættlið skráð. Rúm
lega helmingur einstaklinga með Graves átti ættingja í fyrsta ætt
lið með sögu um skjaldkirtilskvilla, annaðhvort van eða ofvirkan.
Einkenni og teikn
Í töflu III má sjá helstu einkenni hjá einstaklingum við greiningu.
Mynd 2. Aldursdreifing
þýðis við greiningu á Graves.
Nýgengi eykst eftir 10 ára
aldur hjá báðum kynjum.
Tafla I. Fjöldi tilfella Graves, kynjahlutfall, meðalaldur og miðgildi
aldurs á hvorum áratug fyrir sig, hlutfall (%).
Fyrri áratugur
(n=27)
Seinni áratugur
(n=28)
Kyn
Strákur 6 (22,2) 9 (32,1)
Stelpa 21 (77,8) 19 (67,9)
Aldur (ár)
Meðalaldur 14,2 13,4
Miðgildi aldurs [Min; Max] 14,3 [6,8; 17,9] 14,6 [5,5; 16,9]
Tafla II. Fjöldi og hlutfall (%) einstaklinga með heilsufars- eða
fjölskyldusögu um aðra sjúkdóma.
Heilsufarssaga Fjölskyldusaga
Fjöldi % Fjöldi %
Sjálfsónæmissjúkdómar
Skjaldkirtilskvilli
(Vanvirkur eða ofvirkur)
- - 30 54,5
Glútenóþol
(Coeliac disease)
3 5,5 1 1,8
Sykursýki gerð 1 2 3,6 1 1,8
Liðagigt 1 1,8 1 1,8
Hnúðaristilbólga
(Crohn‘s disease)
0 0,0 1 1,8
Skjallblettur (vitiligo) 0 0,0 1 1,8
Ofnæmissjúkdómar
Ofnæmi 5 9,1 2 3,6
Astmi 4 7,3 0 0,0
Eósínfíkin vélindabólga
(Eosinophilic eosophagitis)
0 0,0 1 1,8
Annað
Heilkenni þrístæðu
(Down‘s syndrome)
2 3,6 0 0,0
Asperger-heilkenni 1 1,8 0 0,0
Hnútar í skjaldkirtli 0 0,0 1 1,8