Læknablaðið - 01.03.2022, Síða 15
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 127
R A N N S Ó K N
sóknir eru jafnan takmarkaðar við ákveðin landsvæði eða með
ferðarkjarna. Á móti má velta því fyrir sér hvort tölfræðin okkar
sé marktæk, að okkur vanti tölfræðilegt afl fyrir þær sakir hversu
lítið þýði við höfum, Graves er sjaldgæfur sjúkdómur í börnum
og Ísland er fámenn þjóð. Ekki var marktækur munur á nýgengi
sjúkdómsins þegar áratugirnir voru bornir saman. Niðurstöðurn
ar eru því ekki í samræmi við erlendar rannsóknir sem benda til
þess að að nýgengi hjá börnum sé að aukast.36
Rannsóknin sýndi að kynjahlutfall stráka á móti stelpum meðal
barna og unglinga með Graves var 1:2,6 sem er mun lægra en hefur
sést í sambærilegum rannsóknum á skjaldvakaofseytingu í börn
um, þar sáust kynjahlutföllin 1:4 í Svíþjóð, 1:4,3 í Danmörku, 1:3,8 í
Bretlandi og Írlandi og 1:9,7 í Hong Kong.36 Einnig er vert að nefna
að kynjahlutfall karla á móti konum fyrir Graves í almennu þýði er
1:10.1 Niðurstöðurnar eru áhugaverðar en erfitt er að segja til um
hvers vegna kynjahlutfall hjá börnum og unglingum á Íslandi er
frábrugðið. Samanburðarrannsókn á sykursýki gerð 1 í börnum á
milli Norðurlandanna sýndi að kynjahlutfall á Íslandi var samb
ærilegt og sást í Noregi og Danmörku.14 Frekari rannsókna er þörf
til þess að kanna kynjahlutfall í öðrum sjálfs ónæmissjúkdómum í
börnum á Íslandi og leggja mat á hvort það sé einnig ólíkt því sem
sést annars staðar.
Heilsufars- og fjölskyldusaga
Við könnun á heilsufars og fjölskyldusögu í rannsóknarþýði
reyndist rúmlega helmingur barnanna hafa fjölskyldusögu um
annaðhvort van eða ofvirkan skjaldkirtil. Er þetta í samræmi við
aðrar rannsóknir á áhrifum erfða á Graves1,7,15 en líklegra er að
einstaklingar með heilsufars eða fjölskyldusögu um sjálfsónæm
is og skjaldkirtilssjúkdóma þrói skjaldvakaofseytingu.16 Í þýði
fundust nokkrir aðrir sjálfsónæmissjúkdómar á borð við coeliac
sjúkdóm, sykursýki gerð 1 og Crohnssjúkdóm.
Meðferð
Meðaltímalengd lyfjameðferðar í heildarþýðinu var 691 dagur.
Nokkur munur var á tímalengd meðferðar fyrir þá sem fengu
sjúkdómshlé að lokinni lyfjameðferð og þeirra sem fengu sjúk
dómsendurkomu. Meðaltímalengd fyrir hópinn þar sem sjúk
dómsendurkoma átti sér stað voru 768 dagar (2,1 ár) en fyrir hópinn
þar sem sjúkdómshlé náðist voru 976 dagar (2,7 ár). Engin alþjóðleg
tilmæli eru til um tímalengd ATDmeðferðar. Samkvæmt rann
sókn frá 2011 um hina ýmsu þætti í meðferð skjaldvakaofseytingar
á mismunandi stöðum í heiminum var algengast að lyfjameðferð
varaði í 1218 mánuði.17 Hér á landi og á hinum Norðurlöndunum
hefur tíðkast að miða við 24 mánuði (tvö ár).3,5 Þó að ekki hafi verið
Mynd 3. Meðferðarúrræði fyrir Graves-sjúklinga á rannsóknartímabilinu. Allir hófu lyfjameðferð og upphafleg lyfjameðferð er í gangi hjá 8 manns.
Af þeim sem náðu euthyroid-ástandi í upphaflegri lyfjameðferð fengu 14 sjúkdómsendurkomu. Það voru 20 einstaklingar sem náðu ekki
euthyroid-ástandi í upphaflegri lyfjameðferð. Tölur í sviga tákna hlutfall af rannsóknarþýði Graves-sjúkdóms.
Rannsóknarþýði Graves
Lyfjameðferð
N=55
Upphafleg lyfjameðferð
enn í gangi
n=8
(14,5)
Euthyroid náð með
lyfjameðferð
n=27
(49,1)
Euthyroid ekki náð
með lyfjameðferð
n=20
(36,4)
Sjúkdóms-
endurkoma
n=14
(25,5)
Sjúkdómshlé
n=13
(23,6)
Geislavirkt joð
n=16
(29,1)
Skurðaðgerð
n=4
(7,3)
Lyfjameðferð
n=4
(7,3)
Geislavirkt joð
n=9
(16,4)
Skurðaðgerð
n=1
(1,8)