Læknablaðið - 01.03.2022, Blaðsíða 19
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 131
Inngangur
Ættkvíslinni Bacillus tilheyra margar tegundir gramjákvæðra
staflaga baktería sem ýmist eru loftháðar eða valbundið loftfælnar
og geta myndað gró við erfið vaxtarskilyrði.1,2 Að undanskildum
B. anthracis sem veldur miltisbrandi, hefur ættkvíslin í heild verið
talin hafa litla meinvirkni meðal manna og er algeng orsök meng
unar í sýklaræktun. Tegundin B. cereus getur þó valdið alvarlegum
sýkingum við ákveðnar kringumstæður.1,2
Gró tegundarinnar geta þolað gríðarlega erfiðar umhverfis
aðstæður eins og hita, frost, þurrk og geislun.3 Bakterían dreifist
auðveldlega í mat og myndar eiturefni (toxin) sem valda uppköst
um eða niðurgangi og tengist oft hópsýkingum eða jafnvel faröldr
um.1,4,5 B. cereus getur einnig valdið sýkingum utan meltingarvegar,
meðal annars húðsýkingum, innri augn knattarbólgu, lungna
bólgu og ífarandi sýkingum eins og liðsýkingum, hjartaþelsbólgu,
bakteríudreyra og sýklasótt.1,2,68 Nýburar, þeir sem eru ónæmis
bældir, liggja lengi á sjúkrahúsum, nota vímuefni í æð eða eru
með aðskotahluti eða opin sár/skurði eru í aukinni hættu.2,9,10 Árið
2006 átti sér stað hópsýking af völdum bakteríunnar á háskóla
sjúkrahúsi í Japan en þar reyndist B. cereus hafa mengað lín og
þvottavélar sjúkrahússins.11 B. cereus getur einnig myndað lífþekju
(biofilm) og því enn fremur mikilvægt að fjarlægja aðskotahluti ef
um blóðsýkingu er að ræða.10 Þessu til viðbótar getur B. cereus
einnig verið aukagerandi í blönduðum sýkingum með framleiðslu
sinni á vefjaskemmandi eitri. Jafnframt getur bakterían haft áhrif
á virkni sýklalyfja með myndun betalaktamasa sem gerir bakterí
una ónæma fyrir penisillín og kefalóspórínsamböndum.2,12
Forðast ætti kefalóspórín sem reynslumeðferð (empirical treat-
Á G R I P
INNGANGUR
Bakteríur af ættkvíslinni Bacillus finnast víða í umhverfinu og eru almennt
taldar hafa litla meinvirkni, að miltisbrandsbakteríunni B. anthracis undanskil-
inni. Oft er álitið að um mengun sé að ræða ef Bacillus-tegundir finnast með
ræktun. Tegundin B. cereus getur valdið ífarandi sýkingum í mönnum en hún
getur framleitt vefjaskemmandi eitur. Faraldsfræði þessara sýkinga hefur lítið
verið rannsökuð.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Allar mögulegar ífarandi sýkingar af völdum Bacillus á Landspítala árabilið
2006-2018 voru fundnar með leit í ræktunarniðurstöðum. Farið var yfir
klínískar upplýsingar þeirra sem taldir voru með mögulegar eða staðfestar
sýkingar. Mat á því hvort bakterían taldist vera mengunarvaldur, mögulegur
sýkingarvaldur eða staðfestur sýkingarvaldur byggðist á skilmerkjum sem
höfundar settu saman. Nýgengi mögulegra eða staðfestra ífarandi sýkinga var
reiknað.
NIÐURSTÖÐUR
Á tímabilinu 2006-2018 ræktaðist Bacillus frá 126 einstaklingum; í blóði (116),
liðvökva (8) eða heila- og mænuvökva (2). Alls voru 26 tilvik talin staðfest
sýking (20,6%), 10 möguleg sýking (7,9%) og 90 mengun (71,4%). Nýgengi
mögulegra eða staðfestra sýkinga var 1,4/100.000 íbúa/ár. Notkun vímu-
efna í æð var áhættuþáttur meðal 11/26 með staðfesta sýkingu. Algengasta
birtingarmynd sýkingar var blóðsýking/sýklasótt. Bakterían var ónæm fyrir
beta-laktam sýklalyfjum í 92% staðfestra sýkingartilvika en í 66% mengunar-
tilvika (p=0,02).
ÁLYKTANIR
Mikilvægt er að taka jákvæðar ræktanir af Bacillus alvarlega, sérstaklega
þegar um ræðir sjúklinga sem nota vímuefni í æð, hafa illkynja sjúkdóm eða
eru ónæmisbældir. Mikilvægt er að taka ávallt tvö sett af blóðræktunum ef
raunverulegur grunur leikur á sýkingu, til að bæta ákvarðanatöku og draga úr
óþarfa sýklalyfjameðferð.
Ífarandi sýkingar af völdum
Bacillustegunda á Íslandi
árin 20062018
R A N N S Ó K N
Anna Kristín Gunnarsdóttir1
læknir
Helga Erlendsdóttir2,3
lífeindafræðingur
Magnús Gottfreðsson3,4,5 læknir
1Geðsviði, 2sýkla- og veirufræðideild, 3smitsjúkdómadeild Landspítala,
4læknadeild Háskóla Íslands, 5vísindadeild Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Anna Kristín Gunnarsdóttir, annakg@landspitali.is