Læknablaðið - 01.03.2022, Side 22
134 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
voru allir greindir sem B. cereus, allir voru penisillínónæmir og
í 4/7 var saga um neyslu vímuefna í æð, tveir voru með illkynja
sjúkdóma og einn með liðsýkingu í kjölfar liðástungu.
Fjöldi jákvæðra ræktana eftir árum er sýndur á mynd 1 en þær
voru flestar árið 2009. Nýgengi ífarandi sýkinga af völdum Bacillus
yfir tímabilið reiknast sem 1,4 tilfelli/100 þúsund íbúar/ári að með
altali.
Meðferð
Hlutfall ónæmra og næmra stofna milli flokkanna staðfest sýking,
möguleg sýking og mengun var borið saman. Þegar samanlagður
fjöldi í flokkunum möguleg sýking og staðfest sýking var borinn
saman við hópinn mengun voru aukin gagnlíkindi (odds ratio, OR)
að bakteríustofnar í flokkunum staðfest sýking og möguleg sýk
ing væru ónæmir fyrir penisillíni (OR 3,7, 95% öryggisbil 1,115,9,
p=0,02).
Þar sem bakterían var talin staðfestur sýkingarvaldur var
reynslumeðferð breytt eða valin í samræmi við niðurstöður næm
isprófa með tilliti til Bacillus í 16/26 tilfellum og 5/10 tilfell um hjá
þeim sem voru taldir með mögulega sýkingu. Þegar ræktunar
niðurstöður lágu fyrir var algengasta lyfjavalið vankómýsín og
klindamýsín.
Umræður
Sýkingar af völdum baktería af ættkvíslinni Bacillus eru fremur
sjaldgæfar og erfitt getur reynst að skilja á milli raunverulegrar
sýkingar og mengunar. Í þessari rannsókn var leitast við að leysa
úr þessu með samræmdum skilmerkjum sem eru í anda þeirra
skilmerkja sem notuð hafa verið til greiningar á hjartaþelsbólgu
og kennd við Dukeháskóla.15 Eins og vænta mátti var mikill
meirihluti þessara jákvæðu ræktana talinn mengun, en engu að
síður voru 36 tilfelli talin vera staðfest eða möguleg sýking. Sams
konar úttekt var gerð í Frakklandi á 57 sjúklingum með sýkingu af
völdum Bacillus cereus en ekki var farið yfir jákvæðar blóðræktanir
og greint á milli sýkingar eða mengunar.16 Önnur rannsókn var
R A N N S Ó K N
gerð í Japan og sýndi mengun í 42% tilvika en þar var ekki lýst
hvers konar skilmerki greindu milli sýkingar og mengunar.17
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að Bacillus hafi
valdið tilfellum af alvarlegum sýkingum hér á landi undanfarin
ár. Til stóð að greina á milli sýkingar og mengunar en nauðsynlegt
þótti að bæta við þriðja flokknum „möguleg sýking” fyrir tilfelli
þar sem þetta lá ekki ljóst fyrir. Ástæða þess var að í nokkrum til
fellum var einungis tekið eitt sett af blóðræktunum og því erfiðara
að skilja á milli sýkingar og mengunar. Hjá þremur einstaklingum
(sem annaðhvort voru taldir með staðfesta eða mögulega sýkingu)
ræktaðist bakterían úr liðvökva í kjölfar aðgerðar á hné. Þess kon
ar sýkingum af völdum Bacillus hefur verið lýst.18 Skurðaðgerðir,
ísetning aukahluta og önnur inngrip voru algengir áhættuþættir í
okkar rannsókn og er það í samræmi við erlendar niðurstöður.10,11,16
Nýgengi ífarandi sýkinga af völdum B.cereus hefur ekki verið
skoðað áður svo höfundum sé kunnugt og er okkar lýðgrundaða
nálgun á nýgengi því sú fyrsta sem birt er.
Í áðurnefndri rannsókn frá Japan reyndist dánartíðni eftir sýk
ingu af B. cereus vera 20%.17 Hins vegar var einungis einn sjúkling
ur talinn hafa látist af sýklasótt vegna Bacillus í okkar rannsókn, hjá
honum ræktaðist bakterían tveimur dögum fyrir andlát og einnig
við krufningu. Mögulega var um sömu tegund/stofn að ræða en
ekki var hægt að segja til um það á þeim tíma, því að stofninn
var ekki geymdur og því ekki hægt að greina síðar. Með tilkomu
MaldiTofmassagreinis á sýkladeild árið 2017 er nú mögulegt að
tegundagreina sýni á nákvæmari hátt en áður. Sú lága dánartíðni
sem hér er birt gæti skýrst af því að stór hluti þeirra með staðfesta
eða mögulega sýkingu voru einstaklingar sem notuðu vímuefni í
æð, eða 14/26. Rannsóknir hér á landi hafa sýnt að einstaklingar
með vímuefnavanda látast sjaldan í kjölfar sýkinga af þessu tagi
en ástæða þess er ekki fyllilega þekkt.
Meðal þeirra 26 sem taldir voru með staðfesta sýkingu reyndist
bakterían ónæm fyrir penisillíni meðal 24/26 og hjá 7/10 meðal
þeirra sem taldir voru með mögulega sýkingu (tafla IV). Þar sem
B.cereus er ónæmur fyrir penisillíni2 þóttu niðurstöðurnar áhuga
verðar. Sérstaka athygli vekur að stofnar af Bacillus sem voru
mögulegir eða staðfestir sýkingarvaldar í þessari rannsókn voru
Mynd 1. Fjöldi ræktana frá blóði, heila- og
mænuvökva og liðvökva þar sem Bacillus
ræktaðist á árunum 2006-2018. Rauður litur
táknar staðfesta sýkingu, gulur táknar mögu-
lega sýkingu og grænn táknar mengun.