Lögmannablaðið - 2021, Side 7
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/21 7
ÞÓKNUN TIL VERJENDA OG RÉTTARGÆSLUMANNA:
VÍSITALA MÁLSVARNARLAUNA
Fyrr á þessu ári krafðist stjórn Lögmannafélagsins þess
að dómstólasýslan endurskoðaði viðmiðunarreglur nr.
2/2021; „Reglur um málsvarnarlaun eða þóknun verjenda
og þóknun til réttargæslumanna“. Einnig krafðist stjórnin
þess að dómstólasýslan gerði grein fyrir þeim forsendum
sem legið hafa að baki útreikningum viðmiðunarfjárhæða
og hækkana á þeim frá því reglurnar voru fyrst settar. Í
kjölfar upplýsinga um að hækkun viðmiðunarfjárhæða tæki
mið af breytingum á vísitölu neysluverðs fékk félagið dr.
Hersi Sigurgeirsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands, til að vinna álitsgerð um við hvaða forsendur rétt
væri að miða í tengslum við ákvörðun fjárhæða samkvæmt
reglunum og hækkun þeirra.
Í álitsgerð dr. Hersis, sem send var félagsmönnum sl. vor,
kom fram að hann teldi eðlilegt að breytingar í umræddum
viðmiðunarreglum tækju mið af sérstakri vísitölu sem
hann nefnir „vísitölu málsvarnarlauna“ og samanstendur
annars vegar af vísitölu launa (75%) og hins vegar af
vísitölu neysluverðs (25%). Samkvæmt þessari vísitölu hefði
tímagjald fyrir verjenda- og réttargæslustörf lögmanna í
janúar 2021, átt að standa í kr. 24.415,- eða kr. 25.754,- allt
eftir því hvort miðað væri við fyrstu reglur dómstólaráðs frá
árinu 2000 eða upphaflegt tímagjald samkvæmt ákvörðun
dómsmálaráðuneytisins árið 1994.
Dómstólasýslan hefur nú fallist á að hækkun tímagjalds fyrir
verjenda- og réttargæslustörf lögmanna verði framvegis
miðuð við „vísitölu málsvarnarlauna“. Á samráðsfundi
sem fulltrúar Lögmannafélagsins áttu með fulltrúum
dómstólasýslunnar 27. október sl. var kröfum félagsins um
leiðréttingu tímagjalds, miðað við réttar vísitöluforsendur,
áréttaðar og kröfunni jafnframt fylgt eftir með bréfi til
stjórnar dómstólasýslunnar 9. nóvember sl. þar sem segir
m.a. að núverandi viðmiðunartímagjald, kr. 19.500,- hafi
ekki náð að halda í við vísitölubreytingar frá árinu 2015
sem: „... haft hefur í för með sér umtalsverða og langvarandi
kjararýrnun fyrir þá lögmenn sem sinna verjenda- og
réttargæslustörfum. Leyfir stjórn félagsins sér að benda á að
hækkun tímagjalds til samræmis við útreikninga dr. Hersis
Sigurgeirssonar felur ekki í sér raunhækkun gjaldsins,
heldur einungis sanngjarna leiðréttingu miðað við áhrif
vísitölubreytinga á rekstur lögmannsstofa. Slík leiðrétting
á fjárhæð tímagjaldsins hefur áður verið gerð sbr. reglur
dómstólaráðs nr. 1/2015, þar sem tímagjald var hækkað
úr kr. 10.000 í kr. 16.500.”
Vonast stjórn félagsins að horft verði til þessara forsenda
þegar stjórn dómstólasýslunnar tekur ákvörðun um nýtt
tímagjald nú í lok árs.
II
Óskum Lögmannafélagi Íslands til hamingju með 110 ára afmælið