Lögmannablaðið - 2021, Side 26

Lögmannablaðið - 2021, Side 26
26 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 04/21 var síðan fylgt eftir með endurskoðun mannréttindakafla stjórnarskrárinnar með setningu stjórnarskipunarlaga nr. 97/1995. Í athugasemdum frumvarps þess sem varð að þeim lögum lýsti stjórnarskrárgjafinn þeirri afstöðu að lögfestingu mannréttindasáttmálans hafi verið ætlað að hafa þau „óbeinu áhrif“ að „ríkari tilhneiging“ yrði en áður til að beita rúmri skýringu á stjórnarskránni til samræmis við sáttmálann. Sú lögfesting hafi hins vegar ekki verið „framtíðarlausn.“ Hafi því verið ákveðið að ráðast í endurskoðun mannréttindakaflans m.a. í því skyni að hann tæki mið af mannréttindasáttmálanum. Markmið og setning stjórnarskipunarlaga nr. 97/1995 mælir því enn frekar en lög nr. 62/1994 með því að innlendir dómstólar veiti úrlausnum mannréttindadómstólsins fordæmisgildi og hafi þær til leiðsagnar. Þessu til viðbótar má síðan nefna að með setningu nýlegra laga nr. 47/2020 var Endurupptökudómi heimilað að fallast á beiðni um endurupptöku máls ef fram eru komnar nýjar „upplýsingar“ m.a. um annað en málsatvik sem ætla má að hefðu verulega miklu skipt fyrir úrlausn máls, sbr. a. lið 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eða sterkar líkur eru leiddar að því að leitt hefðu til breyttrar niðurstöðu í mikilvægum atriðum, sbr. b. lið 1. mgr. 191. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Í athugasemdum með frumvarpi sem varð að þessum lögum kemur fram að með nýjum „upplýsingum“ í þessum skilningi sé m.a. átt við úrlausnir alþjóðlegra dómstóla og m.a. vísað til úrlausna Mannréttindadómstóls Evrópu. Með þessu er gefið skýrt til kynna að við tilteknar aðstæður geti reynst nauðsynlegt að endurupptaka dóma í kjölfar þess að dómar falla hjá mannréttindadómstólnum. Að vissu leyti felur þetta aðeins í sér áréttingu þess sem felst í 46. gr. mannréttindasáttmálans, en litið hefur verið svo á að af því ákvæði leiði að þegar endurupptaka dóms sé eina leiðin til að bæta fyrir brot á sáttmálanum þá sé ríkjum skylt að tryggja rétt til hennar. Að vissu leyti gengur þetta þó lengra því hin nýsettu endurupptökuákvæði takmarka ekki rétt til endurupptöku við þá sem áttu aðild að þeim nýju úrlausnum mannréttindadómstólsins sem um ræðir. Þess í stað virðast hin nýsettu ákvæði miða við að allir þeir sem álíta má brotið á með hliðsjón af nýju fordæmi geti krafist endurupptöku. Af þessu má ráða að sá fyrirvari sem er orðaður í 2. gr. laga nr. 62/1994 hefur næsta litla þýðingu eins og löggjöfin og stjórnarskráin hefur þróast í kjölfar setningar ákvæðisins. Mætti jafnvel halda því fram að dómur innlendra dómstóla sem mannréttindadómstóllinn hefur dæmt andstæðan réttlátri málsmeðferð, sbr. 6. gr. mannréttindasáttmálans, hefur orðið næsta lítið gildi. Í slíkum tilvikum virðist nefnilega réttur til endurupptöku samkvæmt gildandi lögum nánast sjálfvirkur. Með hliðsjón af þessu þarf e.t.v. ekki að koma á óvart að t.d. í dómi Hæstaréttar 18. mars 2021, mál nr. 34/2020, er fast kveðið að orði þegar rétturinn lýsir í 18. mgr. viðhorfi sínu til fordæmisgildi úrlausna mannréttindadómstólsins: „Hæstiréttur hefur ítrekað slegið því föstu að líta beri til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu við skýringu ákvæða mannréttindasáttmálans þegar reynir á hann sem hluta af landsrétti. Jafnframt ber að skýra önnur lög til samræmis við sáttmálann og úrlausnir mannréttindadómstólsins enda verður að gera ráð fyrir að þau samrýmist skuldbindingum Íslands að þjóðarétti í samræmi við þá venjuhelguðu reglu í norrænum rétti að lög verði túlkuð til samræmis við þjóðréttarsamninga eftir því sem frekast er kostur.“ Af þessu verður ekki annað ráðið en að Hæstiréttur telji sér skylt að fylgja fordæmum mannréttindadómstólsins sé þess nokkur kostur. Þetta er sjálfstæð afstaða réttarins byggð á fordæmum réttarins, innlendri löggjöf og stjórnskipun. Engin fortakslaus eða endanleg svör um þýðingu úrlausna mannréttindadómstólsins að landsrétti er því að finna í 2. gr. laga nr. 62/1994.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.