Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Qupperneq 4
Ýmislegt verður mönnum á. Við Ólafur Ragnarsson héld- um að stýrið af Ingólfi Arnarsyni væri glatað. Höfðum lesið í gamalli blaðafrétt að stýrið yrði senn sett á Þjóð- minjasafn Íslands. Þegar það síðan ekki fannst á nokkru safni þótti okkur það engin fjöður í hatt íslenskra safnamanna að glata stýrinu af fyrsta nýsköpunartogara landsmanna og full- komnasta togara heims á sínum tíma. En öll él birtir um síðir. Nú er komið á daginn að íslenskir safnamenn voru hafðir fyrir rangri sök. Stýrið er fundið. Eða öllu heldur, eins og með Grænland forðum og í ríkari mæli hina stóru heimsálfu Ameríku áður en hvíti maðurinn steig þar fæti – það var aldrei týnt. Að þessu sögðu er ljóst að við skuldum íslenskum safnvörðum afsökunarbeiðni sem er hér með komið á fram- færi. Okkar er skömmin fyrir fljótfærnina, ykkar safnvörðum heiður og virðing fyrir ræktarsemi við arf okkar Íslendinga. Þakkir til Granda Forráðamenn Bæjarútgerðar Reykjavíkur, sem þá var, síðar Granda og nú H.B. Granda, vissu sem sé alla tíð af stýrinu. Því var um árabil skipað til öndvegis í fyrirtækinu en er í bili, á meðan húsnæði H.B. Granda er betrumbætt, geymt á vísum stað þar sem ekki væsir um það. Ólafur Ragnarsson og Sigrún, dóttir hins merka skipstjóra Sigurjóns Stefánssonar, nutu frá- bærrar fyrirgreiðslu og leiðsagnar starfsfólks H.B. Granda á dögunum þegar þau voru leidd að stýrinu og Sigrún fékk að handleika það og komast þannig í óbeina snertingu við föður sinn, sem hún kynntist ekki að ráði fyrr en hún var komin yfir tvítugt. Okkur lék hugur á að vita hvernig þetta mátti gerast og tókum því Sigrúnu tali á heimili hennar á Austurbrún 33, þar sem hún býr á jarðhæð, en bjó ung stúlka í foreldrahúsum á hæðinni fyrir ofan. Hamingja og böl Þau taka á móti mér, Sigrún – og geltandi hundur. – Ertu nokkuð hræddur við hunda, spyr Sigrún með áber- andi umhyggju í röddinni. Ég heyri strax að hún er væn kona og vil gera henni til geðs. – Nei, alls ekki. Ég bæli óttahrollinn, klappa hundinum og finn að geltið er ekki annað en vinahót. Mér léttir. Hafði satt að segja ekki orðið um sel, en veit sem er, að gunguskapur er ekki til að hæla sér af eða til að flíka. Mér er boðið í eldhús. Við eldhúsgluggann stendur þögull maður. Við heilsumst. – Robert Albert Spanó, kynnir hann sig. Eiginmaður Sig- rúnar. Ég á eftir að komast að því að Robert á sér langa fortíð á Íslandi. Sigrún og stýrið góða af Ingólfi Arnarsyni. Stýrið af Ingólfi er „fundið“ Jón Hjaltason 4 – Sjómannablaðið Víkingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.