Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 6
– Ég kom hingað 1970, segir hann. Ég á líka eftir að komast að því að minni Roberts nær aftur til seinni heimsstyrjaldar. Hann er frá borginni Napoli á Ítalíu, en í stríðinu varð engin ítölsk borg fyrir öðrum eins loftárásum og heimaborg Roberts. – Ég upplifi enn þá allan hryllinginn, segir Robert. Ég þarf ekki annað en að lygna augum og þá skelfur allt og nötrar. Flugvélar fljúga yfir og byggingar hrynja. Allt er eyðileggingu undirorpið. Ekkert vatn kemur lengur úr krönum, fötur og kamrar, eða eitthvað þaðan af verra, er haft í staðinn fyrir vatnssalerni. Fyrir glugga er neglt. Um gler er ekki lengur að tala. Við sitjum í skólastofunni, kannski í 30-40 stiga hita og engin leið er að opna glugga. Geirnegldir timburhlerar eru fyrir þeim. Ég hlusta og velti fyrir mér skepnuskap manns við mann. Lærum við aldrei af sögunni. Er okkur ásköpuð hamingja og kvöl, rétt eins og nótt fylgir degi og dauðinn kemur í kjölfar lífs. Eru stríð ef til vill eins og hvert annað náttúrulögmál? „Slensúpa“ fyrir kallana Mér verður þó fljótlega ljóst eftir að hafa hlýtt á Sigrúnu að þrátt fyrir allt hefur okkur miðað fram um veg. Að minnsta kosti í sumum efnum. – Já, það er satt, segir hún. Ég kynnt- ist ekki pabba fyrr en ég var tuttugu og eins eða tveggja ára, þegar hann var al- kominn í land. Hann sjálfur harmaði þetta hlutskipti sitt og sagðist geta grátið að hafa farið svo mikils á mis að kynnast ekki börnum sínum fyrr, og mömmu, hugsaðu þér. – En hvernig var þetta á milli túra, spyr ég. Var ekki stoppað í einhverja daga, eða voru ekki áhafnaskipti? Sigrún er ekki á því. Þegar komið var úr veiðitúr, kannski daginn fyrir Þorláks- messu, þá varð að koma skipinu aftur á miðin, ekki seinna en á sjálfan Þorláks- messudag. Reglan var sú, að ekki var stoppað nema einn, mesta lagi tvo sólar- hringa í landi og þá var skipstjórinn, fað- ir hennar, bundinn við símann allan tím- ann við að „redda“ mannskap og ræða við útgerðina. – Og þá var sussað á okkur. Við urðum að hafa hljótt á með- an pabbi var í símanum að smala í áhöfn sem var ekki vand- kvæðalaust. Pabbi varð að fá næði. Höfum hugfast að Sigrún er fædd 1955 en aldrei hefur togaraútgerð Íslendinga komist í meiri lægð en einmitt á 7. áratugi 20. aldar. – Pabbi varð að athuga á kránum og jafnvel í tukthúsinu þegar hann var að leita eftir hásetum á skipið. Þegar út var haldið, var faðir minn búinn að biðja Kára, sem var kokkur á Ingólfi mest allan tímann sem pabbi var með skipið, að útbúa svokallaða „slensúpu“ fyrir kallana sem voru ekki upp á marga fiska eftir drykkjuslarkið í „stoppinu“. Robert tekur undir, en hann var um skeið á Ingólfi. – Þetta voru erfiðir tímar. En Sigurjón var einstakur maður og tókst á við þessa erfiðleika af miklu æðruleysi. Alltaf jafn rólegur og yfirvegaður, gat verið hrjúfur á yfirborðinu. – Já, pabbi hafði ótrúlega lund, bætir Sigrún við. En samt Hjónin Ragnhildur Jónsdóttir og Sigurjón Stefánsson. Klukkan 12.06 þann 12. febrúar 1955 sendi Ragnhild- ur skeyti í þrettán orðum: „Fædd dóttir. Góð líðan okkar beggja. Kær kveðja. Adda.“ Orðin fjögur sem skortir eru: Sigurjón Stefánsson, Ingólfi Arnarsyni, TFA. Hér var tilkynnt um fæðingu viðmælanda okkar, Sigrúnar Sigurjónsdóttur, er nema von að henni finnist einkar vænt um þetta skeyti sem enn í dag er vegg- prýði á heimili hennar. Ingólfur Arnarson. 6 – Sjómannablaðið Víkingur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.