Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 58

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 58
58 – Sjómannablaðið Víkingur Það var fyrir alllöngu síðan í sveit einni á Norðurlandi, bú- sældarlegri og grösugri, að á jörð einni bjuggu feðgar tveir. Ráku þeir bú saman af miklum dugnaði, voru sannkallaðir þrifabændur og nutu af því virðingar. Innanhúss var allt annar bragur, þrifnaður og matseld í lakasta lagi. Nú verður að ráði, að með hjálp Bændasamtakanna fyrir sunnan, fengju þeir sér ráðskonu. Var hún á góðum aldri og heldur heppin með andlit og kropp. Brá fljótt til betri vegar innanstokks. Brátt fór sá orðrómur um sveitina, að ráðskonan byggði ekki rúm sitt ein á nóttum. Skal nú þess getið, að siðferði í sveitinni var með miklum ágætum og börn utan hjónabands nokkru fátíðari en svartir svanir og sannir kratar. Konur höfðu með sér félagsskap, sem saumaklúbbur nefnd- ist. Hittust þær einu sinni í mánuði, fjórða hvern sunnudag eftir messu, á heimili prestsins. Tíðindalaust er af hannyrðum, en þær gæddu sér á heitu súkkulaði með ágætum rjóma, þeytt- um. Héldu þær litlafingri beinum, eins og gert er í útlöndum; en það höfðu þær séð í kvennaritinu, „Alt for damerne“, sem prestsmaddaman keypti, enda kunni hún dönsku. Ræddu þær einkum siðgæði þeirra feðganna, sem ráðskonuna höfðu fengið. Töldu þær, að þar væri sonurinn að verki, enda lítt ábyrgur og hneigður fyrir glaumgosalegt líferni. Karlarnir höfðu með sér kór. Æfingar voru annan hvern fimmtudag og sungu þeir ættjarðarlög af elju. Hina fimmtudag- ana riðu þeir út og höfðu þá þorstavara í hnakktöskunni. Ræddu þeir einnig þetta mál og töldu, að þar væri sá gamli að verki, enda útsmoginn til flestra hluta, þótt hægt færi. Nú gerist það, að ráðskonan verður barni aukin. Ber hún þunga sinn með prýði og elur í fyllingu tímans dáfallegan son. Var hann allur í föðurættina. Nefndur var hann eftir afa sínum, fékk nafnið Jón, en til styttingar kallaður Nonni. Hið annað ævivor Nonna litla var efnt til skemmtunar í félagsheimili sveitarinnar. Fóru þangað allir, sem heimangengt áttu, einnig sonurinn og Nonni litli. Kjáðu konur mjög í Nonna litla og dásömuðu sakir fríðleiks. Í kurteisi sinni spurðu þær soninn, hvaða barn þetta væri, en hann svaraði af bragði: „ „Þetta er hann Nonni litli, sonur okkar pabba.“ (Sögn frá síðustu öld.) „SONUR OKKAR PABBA“ Frá Norðurlandi, nánar tiltekið Eyjafirði. Að öðru leyti tengist ljósmyndin títt- nefndum feðgum ekki hið minnsta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.