Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 42
blína meira á skemmtiferðaskipin sem búin eru sundlaugum en á undanförnum árum hafa orðið mjög alvarleg slys í tengslum við þær. Nýlega tilkynnti Norwegian Cruise Line (NCL) að þeir myndu ráða á skip sín viðurkennda sundlaugarverði til að tryggja öryggi farþega sinna sem njóta lífsins í sundlaugum skipa þeirra. Fyrst var farið að vekja athygli á mikilvægi þess að viður- kenndir sundlaugarverðir væru við störf í sundlaugum skemmtiferðaskipa árið 2013 en þrátt fyrir það hafa ekki verið settar sérstakar reglur um slíkt enn. Þó hafa sumar útgerðir stigið þetta skref en Disney Cruises var fyrsta skemmtiskipa- útgerðin sem slíkt gerði fyrir nokkrum árum síðan eftir að fjögurra ára drengur var nærri drukknaður í sundlaug eins skipa þeirra. Drengurinn varð fyrir alvarlegum heilaskemmd- um og samþykkti útgerðin að greiða háar fébætur til handa drengnum til að meðal annars standa straum af lækniskostnaði hans. Önnur útgerðin til að ríða á vaðið með að setja sundlaugar- verði um borð var Royal Caribbean sem afréð að taka niður skiltin um að sundgestir væru á eigin ábyrgð sem hafði verið stöðluð tilmæli í skemmtiskipageiranum um áratugi. Árið 2015 drukknaði 10 ára stúlka í sundlaug um borð í NLC Norwegian Gem en 2014 drukknuðu tvö ung börn (4 og 6 ára) um borð í Norwegian Breakaway. Hjá NCL munu sundlaugarverðir verða þjálfaðir og vottaðir af Ameríska Rauða krossinum og hefja störf á komandi sumri fyrst á fjórum stærstu skipum útgerðar- innar, þeim Norwegian Escape, Norwegian Getaway, Norwegian Breakaway and Norwegian Epic. Frá 2015 hafa sundlaugar þessara skipa verið útbúnar með eftirlitskerfum en betur má ef duga skal. Nú er spurning hvort reynslumiklir íslenskir sund- laugarverðir freisti gæfunnar og leiti á mið skemmtiferðaskipa- útgerða og bjóði fram starfskrafta sína. Aukning á hafís Mikil aukning hefur orðið á borgarísjökum á siglingaleiðum á Norður-Atlantshafi síðustu vikurnar. Er þetta mjög óvenjulegt ástand en að öllu jöfnu hefur Alþjóða hafísvaktin talið um 80 borgarísjaka á sömu svæðum í apríl ár hvert en að þessu sinni voru þeir taldir 450 nærri Grand Banks undan Nýfundnalandi. Hafa menn varað skip við þessari auknu siglingahættu sem menn kenna rangsælum vindi sem hefur hrakið jakana sunnar auk þess sem hitastig á Grænlandi hefur farið hækkandi. Skip hafa því forðast að sigla stórbaug yfir hafið til að forðast þessi svæði sem getur verið allt að 350 sjómílna lengri sigl- ingaleið og bætt við heilum degi í siglingu yfir hafið. Alþjóða hafísvaktinni var komið á árið 1913, eða eftir Titanic slysið, og hefur bandaríska Strandgæslan annast þetta eftirlit allar götur síðan. Fullyrða þeir að ekkert skip, sem fylgt hefur ísviðvörun- um þeirra, hafi siglt á ísjaka síðan þeir hófu eftirlitið. Spurning hvort það sé alveg rétt hjá þeim? 42 – Sjómannablaðið Víkingur Utan úr heimi Brúarfoss (II) eftir ásiglingu við hafísjaka á Nýfundnalandsmiðum í nóvember 1972.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.