Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Blaðsíða 30
30 – Sjómannablaðið Víkingur Nú ríkir mikil sorg á skrifstofu Félags skipstjórnarmanna og Farmanna- og fiskimannsambands Íslands vegna ótímabærs fráfalls okkar góða vinar og samstarfsmanns, Ægis Steins Sveinþórssonar, sem lést á Líknardeild að morgni annars páskadags eftir snarpa baráttu við krabbamein. Ægir hóf störf hjá F.s. og FFSÍ í mars 2005 á vettvangi hagsmuna- gæslu og þjónustu fyrir skipstjórnarmenn undir merkjum Félags skipstjórnarmanna og Farmanna og fiskimannasam- bands Íslands. Kynnin voru frá upphafi einstaklega góð. Ægir var fljótur að setja sig inn í þau fjölbreyttu verkefni sem undir hann heyrðu enda átti hann að baki sjómennskuferil, hafði lokið skipstjórnarprófi, 3. stigi frá Stýrimannaskólanum vorið 1993, og síðan verið stýrimaður hjá Eimskip til ársins 2000 að hann kom í land. Á skrifstofu F.s. og FFSÍ sinnti Ægir samskiptum, þjón- ustu og kjarasamningsgerð fyrir hönd farmanna, ferju- manna, hafnsögumanna og skipstjórnarmanna LHG, ásamt undirbúningi að kjarasamningi fyrir skipstjórnarmenn við laxeldi og á hvalaskoðunarbátum. Auk þessa sá hann um móttöku og afgreiðslu á öllu því sem sneri að Sjúkra- og styrktarsjóði Félags skipstjórnarmanna ásamt ýmsu fleiru sem of langt væri að nefna í stuttri minningargrein. Ægir var fljótlega eftir að hann hóf störf kjörinn varafor- seti FFSÍ og gegndi því embætti til dauðadags. Vinnudagur okkar hófst oftast nær á stuttum spjallfundi þar sem farið var yfir málefni líðandi stundar þar sem tekist var á um menn og málefni. Þar kom glöggt fram sú mikla réttlætis- kennd sem einkenndi viðhorf Ægis í garð þeirra sem eiga undir högg að sækja. Ekki hvarflaði það að manni að ferð okkar þriggja sem störfuðum með Ægi sem ásamt mökum heimsóttum Berlín í haust, yrði sú síðasta sem við nytum saman, en nú blasir þessi dapurlega staðreynd við okkur sem eftir stöndum. Þessi hávaxni gerðarlegi maður, sem gengið hafði á fjöll, ræktað líkamann og bar af okkur sem með honum störfuðu að líkamlegu atgervi, er fallinn frá. Með fráfalli Ægis sannast að þeir deyja ungir sem guð- irnir elska og afburðamanni eins og honum eru örugglega ætluð verðug verkefni á nýju tilverustigi. Skyndilegt brott- hvarf þessa góða drengs fellur algjörlega að þessum sann- indum. Oft hóf hann vinnudag sinn með eftirfarandi orðum þegar hann mætti til vinnu að morgni dags: Hvernig er stað- an í þessu jarðlífi? Staðan hvað okkur varðar sem með Ægi störfuðum er fyrst og fremst þakklæti fyrir vináttu og samstarf öll þessi ár og að lokum sendum við Helgu, Ástu og Silju svo og ást- vinum öllum okkar innilegustu samúðarkveðjur Árni Bjarnason, Guðjón Ármann Einarsson, Sigrún Aradóttir og makar Ægir Steinn Sveinþórsson – Minning – Steinar Magnússon, Ægir og Vignir Traustason, sem sýpur á kaffibolla. Með Páli Steingrímssyni í heimsókn hjá Gæslunni. Ægir rabbar við Gunnar Gunnarsson. Við borðið eru einnig Steinar Magnússon, sem situr Ægi á hægri hönd, og Andrés Þorsteinn Sigurðsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.