Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Page 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Page 29
Sjómannablaðið Víkingur – 29 Nótin tekin um borð. Mynd: Minjasafnið á Akureyri mílur út frá Austfjörðum og þar var komið í svartan sjó af síld. Í fyrsta og eina kastinu sem þarna var tekið í þessum túr feng- um við 1000 tunnur af síld og meldaði skipstjórinn aflann til lands og bað um söltum. Þeir sem skilaboðin fengu ætluðu ekki að trúa sínum eigin eyrum því þeir héldu vertíðinni lokið. Stokkið var til og síldardömunum smalað saman sem voru við það að yfirgefa staðinn og síldin upp úr skipinu söltuð. Skemmst er frá að segja að næsta hálfa mánuðinn var Helgi í föstum ferðum á milli miða og lands og allt sem veiddist fór í salt sem gaf mikið meiri pening en þegar aflinn fór í bræðslu. Um miðjan september gekk ég í land á Dalvík og lauk þar mín- um sjómannsferli. Mér bauð í grun að þessi septemberveiði síldarinnar væri upphaf lengri vertíða og kvaddi skipsfélaga mína með þeim orð- um að næsta ár yrðu þeir að fram að jólum. Reyndist ég sann- spár því að þarna fundu skipin, sem lengst héldu út þessa vertíð, miðin sem seinna fengu heitið Rauða torgið vegna veiða rússneskra reknetabáta sem þarna héldu sig. Uppgjör útgerðarmannsins, Helga Benediktssonar Vest- mannaeyjum, lét eitthvað á sér standa svo að ég hringdi í hann og bað hann að senda mér pening þar sem ég stæði í íbúðarkaupum. Fékk ég umbeðna upphæð á stundinni og einnig í annað skipti sem ég þurfti nauðsynlega á peningum að halda. Þegar þarna var komið hringdi einn skipsfélaga minna í mig og spurði hvort ég væri ekki með í að lögsækja útgerðarmann- inn þar sem ekkert uppgjör hefði farið fram. Ég hélt nú síður þar sem ég hefði fengið pening þegar um hafi verið beðið. Í þriðja og síðasta skiptið sem ég hringdi í Helga Ben. bað ég hann að senda mér það sem eftir væri af því sem hluturinn hafði gert og jafnframt endanlegt uppgjör fyrir vertíðina. Engin vandkvæði sagði Helgi vera á því og sendi mér það sem um var beðið. Hvernig uppgjöri til annarra, sem á skipinu voru, reiddi af veit ég ekki þar sem ég átti ekki eftir að vera í sambandi við neinn þeirra áratugum saman. Algerlega læknaður Árið 2013 var mér boðið í hringferð í kingum landið á Húna II EA-740 en þá hafði ég ekki út úr Eyjafirðinum siglt á fljótandi fari í rúm 50 ár. Minnugur sjóveikinnar þá birgði ég mig upp með sjóveikis- töflum og plástri því að á illu einu átti ég von. Um ferð þessa má lesa í greininni „Ísland hringað“ sem birtist í Sjómannablaðinu Víkingi 3. tbl. 75. árg. 2013. Í greininni kemur fram að leiðindabræla var allan hringinn og full ástæða til að liggja tvöfaldur og ælandi yfir borðstokkinn. Ég get glatt sjóveika sjómenn með því að þolinmæðin þraut- ir vinnur allar og að þessi skæði sjúkdómur er gjörsamlega horfinn um áttrætt.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.