Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2017, Page 32
32 – Sjómannablaðið Víkingur
Hjörtur Cýrusson hjá Ísfelli hefur
haft veg og vanda af því að inn-
leiða Zipwake á Íslandi. Og hvað
er nú það? spyrja lesendur.
„Sannkölluð galdraformúla eða öllu
heldur galdratækni,“ svarar Hjörtur,
„sem sænskir vísindamenn hafa þróað.
Markmiðið sem Svíarnir settu sér var að
auka stöðugleika mótorbáta. Verkefninu
var hrundið úr vör 2011 og eftir stans-
laust þróunarstarf í þrjú og hálft ár var
fyrsta Zipwake Dinamyc Trim Control
System, series S, kynnt til sögunnar á
hinni árlegu Marine Equipment Trade
Show í Amsterdam.“
Markmiðið var raunar ekki eingöngu að
bæta stöðugleika hraðskreiðra báta held-
ur líka að búa til stöðugleikakerfi sem
væri samkeppnisfært ekki aðeins að gagnsemi heldur einnig í
verði við önnur slík. Og það hefur tekist, segja Svíarnir. Í
Zipwake hefur engu verið fórnað í gæðum, þvert á móti, og
verðið er ákaflega viðráðanlegt, einfaldlega vegna þess að kerfið
er fjöldaframleitt.
Zipwake eða S-línan er ætluð hraðfara bátum sem reisa sig að
hálfu eða alveg þegar sett er í gírinn – planing eða semi-planing
báta. Að lengdinni til er kerfið hannað fyrir 6 til 18 metra langa
báta (20-60 fet). Raunar er S-línan hönnuð út frá fjórum
stærðarflokkum báta, 300S, 450S, 600S og 750S, en í hverri
línu er vitaskuld allt sem þarf til að setja upp Zipwake: jafn-
vægisspjöld, dreifideilir, stýring, kaplar, handbók og ekki má
gleyma uppsetningarleiðbeiningunum.
Allir kannast við hina hefðbundnu flapsa. Þeir hafa fram undir
þetta þótt góðir til síns brúks en Hjörtur fullyrðir að Zipwake
hafi allt fram yfir þá. Báturinn rísi betur og ákveðnar með
Zipwake, baksogið sé minna, Zipwake sé fimm sinnum hrað-
virkara en hefðbundnir flapsar, veltingur minni en allt veldur
þetta betri eldsneytisnýtingu.
Ekki má gleyma að kerfið er einfalt í uppsetningu og lætur af-
skaplega vel að stjórn. Raunar þarf ekkert að hafa hugann við
stjórntækin frekar en menn kjósa. Það má setja sjálfvirknina á
og einbeita sér að því sem allir bátamenn vilja helst, nefnilega
siglingunni sjálfri.
Í fyrra bættu Svíarnir um betur og kynntu nýjung, V-laga jafn-
vægisspjöld sem sett eru á miðjan skutinn. V-línan er einnig í
fjórum útgáfum eða frá 11 til 24 gráðu hornum (deadrise
angles). Auðvelt er að setja nýju V-línuna á bátinn þótt S-línan
sé þar fyrir. Og saman bæta kerfin siglingarhæfni bátsins um
allan helming, staðhæfir Hjörtur, og býður alla velkomna í Ísfell
að kynna sér hið byltingarkennda Zipwake, stillanlegt jafnvæg-
iskerfi fyrir báta.
Zipwake
– hvað er nú það?
Zipwake-jafnvægiskerfið er einfalt í uppsetningu og stjórntækin einstaklega einföld.
V-línan komin á bátinn.