Fréttablaðið - 17.08.2022, Blaðsíða 17
Nú er tandurhrein
og næringarrík
rauðrófan fáanleg í
hylkjaformi frá ICE-
HERBS.
Ása Björg
Helga Magnúsdóttir stefnir á
að ganga Laugaveginn næsta
sumar. Til að ná því mark-
miði hefur hún skráð sig í
gönguklúbb sem ætlar að
ganga í allan vetur.
starri@frettabladid.is
Þótt Helga Magnúsdóttir eigi
margar minningar úr æsku sinni
tengdar gönguferðum með for-
eldrum sínum er stutt síðan úti-
vistin varð hluti af lífsstíl hennar.
Stóra markmið hennar næsta
sumar er að ganga Laugaveginn á
fimm dögum og ætlar hún sér að
nýta veturinn vel til að komast í
gott gönguform. „Ég skráði mig
í gönguklúbb hjá Ferðafélagi
Íslands sem heitir FÍ Vaxandi en
hann verður starfræktur í allan
vetur og er helsta markmið hans
að byggja upp gönguþol og styrk
hjá þátttakendum fyrir næsta
sumar. Hópurinn fer rólega af
stað en smátt og smátt verða
göngurnar aðeins meira krefjandi.
Ég hlakka til að ganga reglulega,
vera undirbúin fyrir göngur, finna
innra með mér að getan sé til
staðar og geta því notið þess að
ganga næsta sumar.“
Draumur hennar er að geta
dottið inn í nánast hvaða göngu
sem er, vitandi að hún hafi getuna
til þess. „Fyrir mig skiptir félags-
skapurinn líka miklu máli og það
er alltaf gaman að kynnast nýju
fólki og upplifa sigra með öðrum.“
Mikill gleðigjafi
Helga segir útivistina efla sjálfs-
traustið og vera hennar andlega
vítamín. „Mér finnst gaman kynn-
ast landinu í návígi enda ekki
hægt að skoða margar náttúru-
perlur nema að fara gangandi. Það
er mjög gefandi að kynnast því
stóra og smáa í umhverfi okkar og
sjá hvernig landið breytir um svip
eftir árstíðum og veðri. Vindur,
rigning og kuldi skipta engu máli
ef maður er bara rétt klæddur.
Það gefur svo mikinn frið í sálina
að ganga í náttúrunni og því er
útivist mikill gleðigjafi í mínum
huga.“
Vetrargöngur ekki síðri
Foreldrar Helgu eru mikið úti-
vistarfólk og voru virk í Ferða-
félagi Fljótsdalshéraðs þegar hún
var stelpa. „Ég þvældist því mikið
með þeim þegar ég var yngri.
Útivistin hefur því alltaf fylgt mér
en ég hef ekki sinnt henni jafn vel
undanfarin ár og ég hefði viljað.
Síðustu sumur hef ég stundað
stopular göngur og farið á skíði á
veturna.“
Með aldrinum segist hún þó
hafa fundið meiri þörf fyrir að
vera úti og hreyfa sig en Helga er
54 ára gömul. „Vetrargöngur voru
lengi vel út úr myndinni þar sem
ég taldi þær ekki fyrir hvern sem
er. En eftir að ég tók þátt í verkefni
hjá Ferðafélagi Íslands fyrir
nokkrum árum komst ég að því að
göngur í náttúrunni að vetrar-
lagi eru alls ekki síðri en sumar-
göngur. Ég hef því daðrað við
útivist lengi en aldrei gert hana að
mínum lífsstíl eins og mig hefur
alltaf langað til.“
Með roða í kinnum
Fyrsta gangan í gönguklúbbnum
er um miðjan september og síðan
tekur við spennandi dagskrá
næstu tíu mánuðina að hennar
sögn. „Við munum einnig fá
fræðslu um ferðahegðun, öryggi
og hvernig á að undirbúa sig rétt
fyrir lengri gönguferðir sem gerir
mig enn betur undirbúna fyrir
stóru gönguna næsta sumar.
En þótt Laugavegurinn næsta
sumar sé stóra markmiðið verður
líka gaman að taka allar þessar
styttri göngur í vetur og koma
heim með roða í kinnum. Sam-
hliða gönguklúbbnum vonast ég
til þess að komast á gönguskíði og
fara reglulega í sund auk þess að
fara stuttar göngur í mínu nánasta
umhverfi.“ n
Útivistin eflir sjálfstraustið og er andlegt vítamín
Helga Magnúsdóttir stefnir á að ganga Laugaveginn næsta sumar. Hér er hún í Grjótdalsvarpi síðasta sumar.
MYND/AÐSEND
Ég hlakka til að
ganga reglulega,
vera undirbúin fyrir
göngur, finna innra með
mér að getan sé til staðar
og geta því notið þess að
ganga næsta sumar.
Ása Björg byrjaði að stunda
útihlaup fyrir nokkrum
árum. Hún segir það skipta
miklu máli að neyta hollrar
fæðu á áreynslutímabilum
en bætir við að rauðrófu-
duftið frá ICEHERBS hjálpi
sér að halda uppi orkunni í
ströngum æfingatörnum.
Markaðssnillingurinn Ása Björg
Tryggvadóttir féll gjörsamlega
fyrir náttúruhlaupasportinu fyrir
nokkrum árum og hefur vart farið
úr hlaupaskónum síðan þá. Hún
segir rauðrófuduftið frá ICEHERBS
vera algert lykilatriði þegar kemur
að því að styðja við hlaupin til að
auka súrefnisupptöku og orku.
Hún mælir sérstaklega með því
fyrir þá hlaupara sem hyggjast
taka þátt í Reykjavíkurmaraþon-
inu að byrja að taka inn rauðrófu-
duft því það geti haft ótrúleg áhrif
á orkuna.
Út að hlaupa allt árið um kring
Ása er dugleg að taka þátt í ýmsum
hlaupaviðburðum og hefur meðal
annars hlaupið Fimmvörðuháls,
tekið þátt í Vesturgötuhlaupinu
og margt fleira. Uppáhaldshlaupa-
viðburður Ásu Bjargar er þó
Þórsmerkurhlaupið. „Það er engu
líkt að koma í Þórsmörk á haustin
þegar laufin eru í öllum regnbog-
ans litum,“ segir Ása.
Ása stundar ekki bara útihlaup
á sumrin heldur hleypur hún úti
allt árið um kring. „Fyrst um sinn
hljóp ég eingöngu úti á sumrin en
undanfarin fjögur ár hef ég verið
að æfa með Náttúruhlaupahópn-
um sem ég kynntist upphaflega
þegar ég fór á frábært námskeið
hjá þeim áður en ég hljóp Lauga-
veginn. Síðan þá hef ég hlaupið
úti allan ársins hring, hvernig sem
viðrar. Ég skipti bara yfir í hlýrri
Orkubomba í útihlaupin sem bætir súrefnisupptöku
Ása Björg segir Þórsmerkurhlaupið
vera í uppáhaldi og að haustið í Þórs-
mörk sé engu líkt.
Rauðrófur koma þér hraðar og lengra náttúrulega og eru því tilvaldar fyrir öll
sem vilja auka æfingaúthald sitt fyrir reglulega íþróttaiðkun.
föt, set undir mig mannbroddana
og held út í frost og kulda. Þetta
snýst aðallega um útiveru hjá mér.“
Kynntist ofurkrafti
rauðrófunnar
Ása kynntist mögnuðum eiginleik-
um rauðrófunnar fyrir mörgum
árum þegar hún byrjaði að hugsa
betur um mataræðið, en rauð-
rófan er algert ofurfæði. „Ég varð
ástfangin af rauðrófunni en fannst
erfitt að eiga við hana, enda litar
hún rosalega út frá sér og safinn á
það til að leka um allt. Svo heyrði
ég að rauðrófan fengist í duftformi
og fór að blanda saman við vatn.
Nú er tandurhrein og næringarrík
rauðrófan fáanleg í hylkjaformi frá
ICEHERBS og hef ég verið að taka
þetta inn reglulega síðastliðin þrjú
ár. Hylkin henta mér virkilega vel
enda er einfalt að gleypa þau dag-
lega með vítamínunum og ég næ
að taka þau inn mun markvissar
en áður,“ segir Ása.
Rauðrófuduftið alger nauðsyn
Ása segist ekki vera mikil keppnis-
manneskja en finnst þó mik-
ilvægt að setja sér hlaupamarkmið.
„Þegar ég æfi fyrir sérstök lang-
hlaup tek ég tímabil þar sem ég æfi
þrisvar til fimm sinnum í viku. Þá
finnst mér alveg nauðsynlegt að
taka mjög reglulega rauðrófuduft
frá ICEHERBS. Ég tek þetta inn
endrum og eins allt árið en passa
mig að taka það inn daglega með
æfingatímabilum. Það er ótrú-
lega mikilvægt að borða hollan og
næringarríkan mat þegar maður er
í svona törnum og rauðrófuduftið
bæði eykur súrefnisupptöku og
gefur mér auka orku. Ég finn
mikinn mun á mér orkulega séð og
ég verð síður búin á því og of þreytt
eftir erfiðar æfingar ef ég borða
rétt og tek inn rauðrófuduftið.“
Rauðrófur, náttúruleg ofurfæða
Rauðrófur eru þekktar fyrir að
bæta súrefnisupptöku og auka
blóðflæði. Með auknu blóðflæði
eykst snerpa, orka og úthald og
því hafa rauðrófur slegið í gegn
á meðal íþróttafólks. Rauðrófur
koma þér hraðar og lengra nátt-
úrulega og eru því tilvaldar fyrir
alla þá sem vilja auka æfingaúthald
sitt fyrir reglulega íþróttaiðkun.
Þær eru einnig stútfullar af stein-
efnum, trefjum og vítamínum og
eru sönn ofurfæða. Rauðrófur eru
gríðarlega andoxandi og hreinsa
líkamann og styrkja ónæmiskerfið
til muna. Ekki má gleyma því
að aukið blóðflæði getur einnig
virkað sem náttúruleg kynörvun
fyrir bæði karla og konur. Rauð-
rófur eru sannkölluð heilsubót.
Íslensk framleiðsla
ICEHERBS leggur áherslu á að fram-
leiða hrein og náttúruleg bætiefni
sem nýtast viðskiptavinum og að
virkni skili sér í réttum blöndum og
að eiginleikar efnanna viðhaldi sér
að fullu. Þá eru enn fremur engin
óþörf fylliefni notuð. n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum og í nýrri
vefverslun ICEHERBS iceherbs.is.
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 17. ágúst 2022