Fréttablaðið - 17.08.2022, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Brandtex er danskt gæðamerki
sem selt er í meira en 2.500 versl-
unum um allan heim. Vörumerkið
tilheyrir BTX Group sem er einn
af stærstu tískuframleiðendunum
í Danmörku. BTX Group hefur
verið leiðandi á Norðurlöndum á
sviði vörumerkja og fatnaðar fyrir
konur.
Í tilefni þess að verslunin flytur
í nýtt húsnæði verður slegið upp
heljarinnar veislu og stórglæsileg
opnunarhátíð verður dagana 18. til
21. ágúst. Þeir 30 fyrstu sem mæta
á morgun fá veglegan kaupauka
en í honum er meðal annars 5.000
króna gjafabréf í verslunina. Þá
verða frábær opnunartilboð þessa
daga. Boðið verður upp á léttar
veitingar, Sigga Kling mætir og
spáir fyrir gestum og gefur gjafir,
Bylgjan verður í beinni útsendingu
og deilir út gjöfum og þá verður
hægt að taka þátt í glæsilegu
happdrætti þar sem vinningarnir
eru meðal annars gjafabréf frá
Icelandair.
Haustlínan einstaklega falleg í ár
„Síðan við opnuðum verslun
okkar í Kringlunni höfum við
mikið heyrt á viðskiptavinum
okkar, sem eru konur á besta aldri,
að þær kjósi síður að fara inn í
stóru mollin þar sem er mikill
umgangur og mikið áreiti. Kon-
urnar okkar kjósa frekar að gera
sér ferð í verslun í úthverfi með
minna áreiti og meira næði. Með
minna áreiti og meira næði ættum
við að ná að veita þeim enn betri
þjónustu, þar sem við leggjum ríka
áherslu á að veita góða þjónustu,“
segir Berglind Ásgeirsdóttir, einn
eigenda Brandtex.
„Þegar tækifærið gafst til að færa
okkur í úthverfi ákváðum við að
Hluti af vörum í happdrætti í tilefni opnunarhátíðar Brandtex.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ný verslun Brandtex er til húsa í Skipholti 33.
Það er margt fallegt í boði fyrir viðskiptavini Brandtex.
Verslun okkar er
hreint út sagt
stórglæsileg og fallegu
haustlitirnir eru alls
ráðandi.
Berglind Ásgeirsdóttir
láta slag standa. Síðustu mánuðir
hafa verið krefjandi við að flytja
verslunina en nú loksins erum við
klár og erum rosalega spennt að
taka á móti konunum okkar og
sýna þeim nýju og stórglæsilegu
verslunina okkar í Skipholti.
Verslunin er hreint út sagt stór-
glæsileg og sjón er sögu ríkari.
Hún skartar svo sannarlega sínu
fegursta og fallegu haustlitirnir
eru allsráðandi. Haustlínan hjá
Brandtex er einstaklega falleg í ár.
Þetta er uppáhaldstími ársins hjá
okkur þegar við tökum inn nýju
haustvörurnar eftir sumarið og
útsölurnar. Við bjóðum alla vel-
komna að kíkja til okkar í Skipholt
33, fagna þessum breytingum og
upplifa frábæra stemmingu með
okkur,“ bætir Berglind við. n
2 kynningarblað A L LT 17. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR