Fréttablaðið - 17.08.2022, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Láru G.
Sigurðardóttur
n Bakþankar
Tilverukrísa hefur bankað reglu-
lega upp á þessa dagana. Miðaldra
horfi ég um öxl og er engu líkara
en klukkan hafi gengið á marg-
földum hraða síðustu tuttugu árin.
Tíminn frá því að ég gekk með
fyrsta soninn og þar til allir þrír eru
orðnir ungir sjálfbjarga menn leið
bara allt of hratt. Nýr raunveruleiki
blasir við sem ég var engan veginn
undirbúin fyrir. Á sama tíma og við
erum frjáls frá smábarnastússinu
fanga minningar frá æskuárum
barnanna hugann.
Í nýfengnu frelsinu upplifi ég
söknuð. Síðustu viku þræddum við
hjónin slóðir á Ítalíu, þær sem við
áður tókum börnin með á. Tómlegt
aftursætið í bílaleigubílnum rifjaði
upp gauragang og „hvað er langt
eftir?“ spurninguna vantaði. Það
voru engin óvænt pissustopp og
enginn lítill bílveikur kútur.
Maðurinn minn minnti mig á að
við skiptum á bleyjum í samtals sjö
ár, oft við krefjandi aðstæður. Við
burstuðum líka tennur, klæddum,
skutluðum, sóttum, mötuðum,
böðuðum, háttuðum, lásum fyrir
og svæfðum. Hugguðum og hug-
hreystum. Það var sjaldan sumarfrí
frá þessum verkum.
Líklega er það náttúrulegt að
upplifa tómleika þegar börnin vaxa
úr grasi. Nýleg rannsókn sem birtist
í Nature sýndi að ákveðin heila-
svæði sem tengjast félagsvirkni geta
rýrnað þegar við verðum miðaldra,
þá mest hjá þeim sem upplifa sig
einmana en minnst hjá þeim sem
eiga gott félagsnet. Ætli partur af
tómleikanum sé einmitt skortur á
virkni í heilasvæðum sem virkjast
þegar við eigum í samskiptum við
börnin okkar?
Nostalgía er dýrmæt tilfinning
því hún minnir á allt það góða
sem lífið hefur fært okkur. En lífið
heldur áfram og næsta æviskeiði
fylgja ný ævintýri, sem síðar verða
vonandi að nýrri nostalgíu. n
Nostalgía
Fáðu tilboð í
tryggingarnar
á tm.is
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000 litrof.is
UMHVERFISVÆN
PRENTUN