Fréttablaðið - 17.08.2022, Side 16

Fréttablaðið - 17.08.2022, Side 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Brandtex er danskt gæðamerki sem selt er í meira en 2.500 versl- unum um allan heim. Vörumerkið tilheyrir BTX Group sem er einn af stærstu tískuframleiðendunum í Danmörku. BTX Group hefur verið leiðandi á Norðurlöndum á sviði vörumerkja og fatnaðar fyrir konur. Í tilefni þess að verslunin flytur í nýtt húsnæði verður slegið upp heljarinnar veislu og stórglæsileg opnunarhátíð verður dagana 18. til 21. ágúst. Þeir 30 fyrstu sem mæta á morgun fá veglegan kaupauka en í honum er meðal annars 5.000 króna gjafabréf í verslunina. Þá verða frábær opnunartilboð þessa daga. Boðið verður upp á léttar veitingar, Sigga Kling mætir og spáir fyrir gestum og gefur gjafir, Bylgjan verður í beinni útsendingu og deilir út gjöfum og þá verður hægt að taka þátt í glæsilegu happdrætti þar sem vinningarnir eru meðal annars gjafabréf frá Icelandair. Haustlínan einstaklega falleg í ár „Síðan við opnuðum verslun okkar í Kringlunni höfum við mikið heyrt á viðskiptavinum okkar, sem eru konur á besta aldri, að þær kjósi síður að fara inn í stóru mollin þar sem er mikill umgangur og mikið áreiti. Kon- urnar okkar kjósa frekar að gera sér ferð í verslun í úthverfi með minna áreiti og meira næði. Með minna áreiti og meira næði ættum við að ná að veita þeim enn betri þjónustu, þar sem við leggjum ríka áherslu á að veita góða þjónustu,“ segir Berglind Ásgeirsdóttir, einn eigenda Brandtex. „Þegar tækifærið gafst til að færa okkur í úthverfi ákváðum við að Hluti af vörum í happdrætti í tilefni opnunarhátíðar Brandtex. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Ný verslun Brandtex er til húsa í Skipholti 33. Það er margt fallegt í boði fyrir viðskiptavini Brandtex. Verslun okkar er hreint út sagt stórglæsileg og fallegu haustlitirnir eru alls ráðandi. Berglind Ásgeirsdóttir láta slag standa. Síðustu mánuðir hafa verið krefjandi við að flytja verslunina en nú loksins erum við klár og erum rosalega spennt að taka á móti konunum okkar og sýna þeim nýju og stórglæsilegu verslunina okkar í Skipholti. Verslunin er hreint út sagt stór- glæsileg og sjón er sögu ríkari. Hún skartar svo sannarlega sínu fegursta og fallegu haustlitirnir eru allsráðandi. Haustlínan hjá Brandtex er einstaklega falleg í ár. Þetta er uppáhaldstími ársins hjá okkur þegar við tökum inn nýju haustvörurnar eftir sumarið og útsölurnar. Við bjóðum alla vel- komna að kíkja til okkar í Skipholt 33, fagna þessum breytingum og upplifa frábæra stemmingu með okkur,“ bætir Berglind við. n 2 kynningarblað A L LT 17. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.