Fréttablaðið - 20.08.2022, Side 28
Við áttum
mjög náið
samband
fyrir, vegna
þess að
þegar ég
varð veik
voru þau
stoð mín
og stytta.
Og svo bara gekk ég
um með harðan disk
og fór í flug með
harðan disk að
myndinni. Sem ég
hefði bara aldrei gert
fyrir Covid!
Bullet Train með Brad Pitt
í aðalhlutverki er nýjasta
verkefni Elísabetar Ronalds-
dóttur kvikmyndaklippara.
Elísabet vann að myndinni
á skrifstofu í Reykjavík og í
haust heldur hún til Ástralíu
að vinna við nýja mynd með
Ryan Gosling í aðalhlutverki.
Kl ip p a r i n n E l í s a b e t
Ronaldsdóttir er einn
farsælasti kvikmynda-
gerðarmaður landsins.
Hún er stödd á Íslandi
um þessar mundir og í íslenskum
kvikmyndahúsum má sjá hennar
nýjasta verkefni, Bullet Train. Í
október heldur Elísabet utan í ný
verkefni.
„Ég er að fara aftur til Ástralíu. Ég
festist þar út af Covid,“ segir Elísabet
og hlær. Elísabet ræddi við Frétta-
blaðið í janúar um árslöngu dvölina
í Ástralíu sem kom til vegna vinnu-
ferðar.
Með andfætlingum til jóla
„Ég var heilt ár úti að klippa mynd
sem heitir Sang Chi fyrir Marvel. Við
komum til Sidney í janúar 2020. Ég
fór með aðstoðarmanninum og við
byrjuðum á að fara í f lensusprautu.
Það var jú mælst til þess, Marvel vill
ekki hafa fólkið sitt veikt,“ sagði
Elísabet við það tækifæri.
„Síðan vorum við bara föst þar
fram að jólum. Allt fór í háaloft
og lönd lokuðu, enginn vissi hve-
nær við kæmumst aftur heim. Við
vorum þar í heilt ár.“
Nú tekur annað verkefni við, sem
fyrr segir, einnig í Ástralíu. Um er að
ræða nýjustu mynd David Leitch,
bandarísks leikstjóra sem Elísa-
bet hefur unnið mikið með. Leitch
hefur getið sér gott orð fyrir kvik-
myndir eins og Atomic Blonde og
Deadpool 2.
„Nú erum við að fara aftur þang-
að að skjóta aðra mynd. Ekki Marvel
heldur Universal mynd sem heitir
The Fall Guy.“ Ryan Gosling fer með
aðalhlutverk í The Fall Guy ásamt
leikkonunni Emily Blunt.
Missti af frumsýningarferðalagi
„Það er bara spennandi. Ég vona
bara að það verði ekki fleiri vírusar
sem koma í veg fyrir ... þetta er bug-
andi. Þessar nýju tegundir í hverri
viku,“ segir Elísabet, sem nýverið
veiktist af veirunni skæðu. Veik-
indin kostuðu hana frumsýningar-
ferðalag Bullet Train, heimsborga
á milli. Elísabet sat af sér veiruna í
hitabylgju á hóteli á Englandi.
„Það var þannig að ég var í Lond-
on. Líka af því að ég var að vinna
lækningaverkefni sem að heitir
Expendables 4. Þetta Covid kom
upp þar. Það var bara þannig. Ég hef
alveg sloppið síðustu tvö og hálft ár,
og þannig séð get ég ekki kvartað,
en ég ætla ekki að fá þetta aftur,“
segir hún ákveðin.
Elísabet segist fegin að vera á
Íslandi í dag, í því sem hún kallar
hressandi roki og ágústrigningu í
stað hitabylgju í Evrópu. „Það er gott
súrefni hérna og svona,“ segir hún
létt í bragði.
Ætlar til Víetnam um jólin
Ástralíudvöl Elísabetar á ekki að
vera árslöng að þessu sinni, og
stefnir hún á að ljúka þar verk-
efnum í mars eða apríl. „Þá fljúgum
við beint til LA og höldum áfram að
klippa þar,“ segir hún og bætir við
að fjölskylda hennar hafi ákveðið að
hittast í Víetnam um jólin og njóta
þess að vera saman þar. „Það er mjög
spennandi og ég hlakka mikið til
þess,“ segir hún.
Elísabet ber andfætlingum og
Ástralíu vel söguna og segir Sydney
yndislega borg. „Það er ekkert að
Ástralíu en það er bara svolítið langt
í burtu frá fjölskyldunni minni. En
það væsir ekki um mann og borgin
er nokkuð örugg.“
Elísabet segist hlakka til að
koma aftur. „Auðvitað kynnist
maður fólki, við vorum þarna í ár.
Ég get sagt að ég hafi búið í Ástr-
Klippti Brad Pitt hjá
Neytendasamtökunum
Elísabet Ronaldsdóttir, leikstjórinn David Leitch and framleiðandinn Kelly McCormick eru nánir vinir til margra ára. Hér eru þau í júlí á frumsýningu kvik-
myndarinnar Atomic Blonde, þar sem Charlize Theron fór með aðalhlutverk. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
alíu, þó að ég hafi ekki verið með
stöðu borgara. En ég var komin
með augnlækni, tannlækni og alls
konar! Þegar maður er kominn með
svoleiðis á skrá hjá sér, þá bara býr
maður þar. Það verður yndislegt að
hitta fólkið sem maður kynntist og
bast böndum.“
Aðspurð hvort að kvikmynda-
bransinn hafi breyst mikið varð-
andi fjarvinnu svarar Elísabet að
afgerandi breyting hafi orðið á
verklagi.
Með kvikmynd í vasanum í flugi
„Tæknin er augljóslega komin til að
vera. Ég man það þegar Bullet Train
byrjaði, vorum við föst í Ástralíu
með Shang-Chi fyrir Marvel. Ég fór
í janúar til LA og þá gátum við ekki
unnið í stúdíóinu. og við vorum að
vinna svona hybrid heiman frá. Ég
man að ég var í einhverri tveggja
vikna sjálfskipaðri einangrun. Ekki
að Ameríka hafi krafist þess, LA eða
borgaryfirvöld, heldur fyrirtækið
Marvel krafðist einangrunar. Sem
ég gerði með glöðu geði. Þá var ég
bara að vinna heiman frá, úr ein-
hverju Airbnb,“ útskýrir Elísabet.
„Svo var þetta blanda af því að
vinna heima og í stúdíóinu. En
ég var þar mjög stutt af því að um
miðjan febrúar hoppa ég yfir og fer
á Bullet Train,“ segir hún. „Þá var
ég í tvær vikur, bara heiman frá, að
vinna.“ Í framhaldinu segir Elísabet
stúdíóin hafa afráðið að opna ekki,
og gert öllu starfsfólki að vinna að
heiman.
„Ég var í LA og benti þeim á að
heima fyrir mér væri Ísland,“ segir
Elísabet. „Og það er svona merki
um hvað það hefur breyst, að stúdí-
óið sagði bara: Já, ókei. Og svo bara
gekk ég um með harðan disk og fór í
f lug með harðan disk að myndinni.
Sem ég hefði bara aldrei gert fyrir
Covid! Aldrei nokkurn tímann.
Það var svona upplifun. Þannig að
ég var að vinna í Bullet Train alveg
frá lokum febrúar og þangað til um
miðjan júní.“
Svo fór að Bullet Train var klippt
í tveimur heimsálfum, á Íslandi og
í Bandaríkjunum. „Ég leigði mér
skrifstofu hjá dásamlegu fólki hjá
Neytendasamtökunum. Okkur
fannst vel við hæfi að klippa Brad
Pitt þar,“ segir Elísabet og hlær.
„Neytendasamtökin eiga stóran
þátt í þessari mynd.
Svo fór ég aftur út og þá voru
stúdíóin búin að opna, upp úr
miðjum júní. En þá var mér og
David [Leitch] sagt að við gætum
ekki verið í sama herbergi. Út af
Covid þurftu allir að vera lok-
aðir inni í sínu herbergi og okkur
leist nú ekki á það,“ segir Elísabet
sem dó þá ekki ráðalaus. „David
og framleiðandinn okkar, Kelly
McCormick, eru hjón. Sony leigði
Airbnb fyrir okkur, alveg rosalega
höll. Ég bara f lutti inn til þeirra og
við bjuggum bara saman þangað til
í desember,“ segir Elísabet.
„Ég klippi mikið ein og svona, en
við gátum horft á þetta saman og
talað um þetta og velt fyrir okkur.
Svo poppuðum við og horfðum á
bíó og sjónvarp á kvöldin. Þetta
var mjög gaman. Þetta var þægi-
legt samfélag í smá kvikmynda-
kommúnu.“
Nánir vinir til níu ára
Elísabet, David og Kelly hafa verið
vinir í 9 ár. „Þetta er níunda árið sem
við vinnum saman. Við áttum mjög
náið samband fyrir, vegna þess að
þegar ég varð veik voru þau stoð
mín og stytta. Það eru margir fletir á
því. En við bindumst mjög sterkum
vinaböndum,“ segir hún.
Veikindin sem Elísabet vísar til
er fjórða stigs krabbamein í brisi,
og við greiningu í ágúst 2017 ætl-
uðu læknar að Elísabet ætti aðeins
hálft ár eftir ólifað. Vinir Elísabetar
stóðu þó þétt við bakið á henni og
útveguðu henni bestu mögulegu
meðferð, sem gekk vonum framar.
Elísabet lætur vel af sér í dag.
„Ég er bara fyr og flamme og sjö,
níu, þrettán, og ekkert að mér. En
hver veit sína ævi, skilurðu,“ segir
hún. „En þetta eru komin fjögur ár
og það er bara gott. Ég er voða lítið
að pæla í þessu og það gengur bara
mjög vel. Ég vona bara að ég fái ekki
Covid aftur,“ bætir hún við.
Samfélagið dýrmætt
Aðspurð, hvort að þreytandi sé að
ferðast svo mikið, og hálfpartinn
búa í ferðatösku, svarar Elísabet
játandi.
„Já, það eru svo sannarlega kostir
og gallar. Ég ég myndi miklu frekar
vilja vinna hérna heima. Á sama
tíma eru hlutir sem ég myndi sakna,
eins og þetta samfélag kvikmynda-
gerðarmanna.“
Hún segir heimsfaraldurinn hafa
gert henni það enn ljósara. „Við
fundum það alveg öll í Covid, hvað
er erfitt að vera ekki á sama stað.
Það skapast visst andrúmsloft sem
er svo gefandi og skapandi. Maður
myndi sakna þess ef maður væri
bara að vinna heiman frá.“ n
Nína
Richter
ninarichter
@frettabladid.is
28 Helgin 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ