Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 34

Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 34
Umsjón með störfunum hafa Jensína K. Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is). LV er leiðandi lífeyrissjóður sem byggir upp trausta fjárhagslega framtíð sjóðfélaga. Fjármunir sjóðfélaga eru ávaxtaðir með gagnsæjum og ábyrgum hætti með samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi. Hjá sjóðnum starfar 56 manna samhent liðsheild þar sem hver og einn nær að nýta hæfileika sína og þekkingu til að sinna krefjandi verkefnum. Áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf, góð samskipti, frumkvæði og hæfni til að laga sig að síbreytilegu umhverfi. LV býður upp á góða starfsaðstöðu og starfsumhverfi þar sem áhersla er meðal annars lögð á jafnrétti og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. LV hefur hlotið jafnlaunavottun. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Vilt þú vera hluti af öflugu teymi eignastýringar? Greinandi á eignastýringarsviði LV leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf greinanda á eignastýringarsviði. Greinandi vinnur náið með sérfræðingum eignastýringar þvert á eignasöfn sjóðsins. Næsti yfirmaður er forstöðumaður eignastýringar. Helstu verkefni: • Greining fjárfestingarkosta og fjármálamarkaða. • Greining og söfnun upplýsinga tengt eignasöfnum LV. • Gerð kynninga og skýrslna. • Samskipti við innlenda og erlenda aðila. Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Framúrskarandi greiningarhæfni. • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði. • Hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma. • Geta til að vinna vel í hópi. • Áhugi á fjármálamörkuðum og eignastýringu. • Gott vald á íslensku og ensku. Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst nk. | Sótt er um störfin á www.vinnvinn.is. Sérfræðingur í eignastýringu LV leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í eignastýringu með áherslu á erlend hlutabréf í eignasöfnum sjóðsins. Viðkomandi verður hluti af teymi eignastýringar sem hefur umsjón með skráðum hlutabréfum LV. Næsti yfirmaður er forstöðumaður eignastýringar. Helstu verkefni: • Stýring á eignasöfnum erlendra skráðra hlutabréfa. • Greining á fjárfestingarkostum s.s. hlutabréfasjóðum og mat á eignastýrendum. • Greining hlutabréfamarkaða til skemmri og lengri tíma. • Greining og vöktun á ávöxtun og áhættu eignasafna, þ.m.t. sjálfbærni. • Samskipti við innlenda og erlenda eignastýrendur. • Gerð kynninga og skýrslna um eignasöfn og stakar eignir. Hæfniskröfur: • Reynsla af starfi á fjármálamörkuðum. • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Framúrskarandi greiningarhæfni. • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði. • Hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma. • Geta til að vinna vel í hópi. • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti. • Þekking og reynsla af aðferðarfræði ábyrgra fjárfestinga er kostur. • Próf í verðbréfaviðskiptum og/eða CFA er kostur. 2022 - 2025 Hjá LV gefst þér tækifæri á að vaxa með faglegu teymi eignastýringar sem stýrir einu stærsta eignasafni landsins. Eignir námu 1.201 milljarði króna í árslok 2021 og 10 ára árleg raunávöxtun sameignardeildar var 7,6%. Sjóðurinn vinnur samkvæmt metnaðarfullri fjárfestingarstefnu og stefnu um ábyrgar fjárfestingar. Eignastýring LV er skipuð samhentum hópi sérfræðinga, kvenna og karla, sem vinna að fjölbreyttum verkefnum þar sem lögð er áhersla á langtíma ávöxtun.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.