Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 50
farskolinn.is Faxatorg 550 Sauðárkrókur & 455 6010 / 455 6011
Laust starf náms- og
starfsráðgjafa
Farskólinn leitar að öflugum starfsmanni til að vinna að
fjölbreyttum verkefnum í fullorðins- og framhaldsfræðslu.
Farskólinn | miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
Verkefni sem um ræðir eru: Náms- og starfsráðgjöf, raunfærnimat, mat á fræðsluþörfum
og þróun og umsjón með fræðslu. Farskólinn leitar að einstaklingi sem er fær í samskiptum
og sýnir frumkvæði í úrlausn verkefna, getur unnið sjálfstætt og í teymisvinnu.
Helstu verkefni
• Náms- og starfsráðgjöf til einstaklinga á
Norðurlandi vestra
• Umsjón og skipulag raunfærnimats fyrir
einstaklinga
• Þróun fræðsluverkefna; skipulag og
umsjón
• Upplýsingagjöf og samskipti við
þátttakendur, stofnanir og aðra
hagsmunaaðila
• Önnur verkefni sem til falla
Farskólinn – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra var stofnaður árið 1992. Farskólinn er
sjálfseignarstofnun sem sinnir verkefnum á sviði fullorðins- og framhaldsfræðslu á Norðurlandi vestra.
Skrifstofa Farskólans er á Sauðárkróki. Hjá Farskólanum starfa að jafnaði 4–5 starfsmenn.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf og prófskírteini.
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Williams Þráinsdóttir
í síma 455 6014. Einnig má senda fyrirspurnir
á netfangið bryndis@farskolinn.is.
Umsóknir sendist á fyrrgreint netfang
fyrir 25. ágúst næstkomandi.
ný
pr
en
t e
hf
Hæfniskröfur
• Gerð er krafa um leyfisbréf í náms- og starfsráðgjöf og
háskólamenntun, til dæmis á sviði kennslu og ráðgjafar
• Þekking á fullorðins- og framhaldsfræðslu er kostur
ásamt því að þekkja til íslensks vinnumarkaðar
• Almenn og góð tölvukunnátta
• Mjög gott vald á íslensku og hæfni til að tjá sig í ræðu
og riti
• Gott vald á ensku
• Frumkvæði og sjálfstæði í allri verkefnavinnu
• Þjónustulipurð og mikil samstarfs- og samskiptahæfni
Erum við
að leita
að þér?
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR