Fréttablaðið - 20.08.2022, Qupperneq 58
Við slepptum laxi í
hlaupi og laxi í
majónessósu sem Stella
framreiddi svo eftir-
minnilega en vorum
með laxa sashimi, laxa
nigiri, laxa sashimi salat
og léttgrillaðan lax með
teriyaki sósu.
Straumurinn er
mikill þarna og
laxinn barðist kröftug-
lega. Snædís gerði allt
rétt og fagmannlega og
landaði Maríulaxinum
eftir nokkra stund.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
Laxveiði er alltaf að verða
vinsælla sport, sér í lagi
hjá konum. Fjölmargir
kvennahópar hafa tekið sig
saman, farið í laxveiði og
halda hefðinni frá ári til árs.
Skemmtilegasti hlutinn er
að draga laxinn á land og
hinn hlutinn að matreiða
hann af ástríðu og natni.
Hjá mörgum er það heilög stund
þegar fengurinn er matreiddur og
borinn á borð.
Kristín Edwald,
hæstaréttarlögmaður hjá LEX
og matgæðingur með meiru, og
dóttir hennar, Snæfríður Edwald
Einarsdóttir, eru afar samrýmdar
mægður og kunna svo sannarlega
að njóta saman. Þær deila mörgum
sömu áhugamálum, meðal
annars því að njóta þess að snæða
ljúffengan mat og veiða. Í sumar
skelltu þær sér í mæðgnaferð og
dóttirin landaði fyrsta laxinum,
Maríulaxinum.
„Í júlí ákváðum við Snædís,
dóttir mín, að fara í nokkurra daga
mæðgnaferð um landið. Við fórum
hratt yfir fyrsta daginn því við
ætluðum að byrja á að renna fyrir
lax í Jöklu. Fyrsta vaktin var róleg
hjá okkur og nýttist þeim mun
betur í kastæfingar, því Snædís
sem er vanari sjóstöng hafði aldrei
farið í laxveiði áður.
Næsti dagur rann upp bjartur og
fagur, 16 gráðu hiti og logn. Áin er
falleg og veiðistaðirnir stórbrotnir.
Við byrjuðum í Steinboganum sem
er afar skemmtilegur veiðistaður
en krefst líka fyllstu aðgæslu og
er ekki fyrir alla að fara þangað,“
segir Kristín spennt á svip.
Í þriðja til fjórða kasti setti
Snædís í lax. „Straumurinn er
mikill þarna og laxinn barðist
kröftuglega. Snædís gerði allt rétt
og fagmannlega og landaði Maríu-
laxinum eftir nokkra stund. Ég
hef aldrei verið jafn spennt fyrir
löndun á nokkrum öðrum fiski,
þorði varla að anda þar sem ég stóð
á klöppunum rétt fyrir neðan hana
og tók að sjálfsögðu myndir.
Laxinn var flottur matfiskur,
sver og pattaralegur. Honum
var skellt á ís og þannig hélt
hann ferðinni áfram með okkur
mæðgum norðurleiðina heim, með
næturstoppi á Mývatni og góðum
degi á Akureyri. Þegar heim var
komið var laxinn flakaður og fjórir
réttir bornir fram, nútímaútgáfa
af Stellu í orlofi. Við slepptum laxi
í hlaupi og laxi í majónessósu sem
Stella framreiddi svo eftirminni-
lega en vorum með laxa sashimi,
laxa nigiri, laxa sashimi salat og
létt grillaðan lax með teriyaki
sósu. Allt afskaplega einfaldar upp-
skriftir en við vorum öll sammála
um að þetta hefði verið besti lax
sem við hefðum smakkað.“
Mæðgurnar voru svo dásamlegar
að leyfa lesendum Fréttablaðsins að
njóta uppskriftanna með sér.
Nútímaútgáfa af Stellu í orlofi
– Maríulaxinn á fjóra vegu
Mæðgurnar Kristín og Snædís fóru í mæðgnaferð um landið þar sem Snædís
landaði Maríulaxinum með glæsibrag. MYNDIR/AÐSENDAR
Glæsilegir laxaréttir urðu til eftir veiðiferðina.
Girnilegar útfærslur af laxinum
að hætti japanskrar matargerðar,
sashimi, sushi, maki og nigiri.
Laxasalatið sló
í gegn þar sem
hráefnin löðuðu
besta umami
bragðið fram.
Laxa sashimi
Í laxa sashimi notaði ég þykkasta
hlutann af flakinu. Skar niður í fal-
lega kubba og bar fram á ísmolum
með sojasósu til hliðar.
Laxa nigiri:
Í laxa nigiri notaði ég líka þykkan
hluta af flakinu en skar þvert í
þunnar sneiðar sem ég lagði ofan á
hrísgrjónakodda.
Hrísgrjónakoddar
250 ml sushi hrísgrjón
350 ml vatn
Edikblanda:
2 msk. hrísgrjónaedik
2 msk. sykur
Við ferðuðumst til Japan fyrir átta
árum og erum miklir aðdáendur
japanskrar matargerðar. Ég kom
heim með sérstakan japanskan
rafmagnspott sem ég nota m.a. til
að sjóða sushi-grjónin en þau má
auðveldlega sjóða á hefðbundinn
hátt eftir leiðbeiningum á pakk-
anum. Þær eru eitthvað á þessa
leið: Sushi-grjónin eru skoluð
mjög vel með köldu vatni, síðan
látin liggja í vatni í um 30 mínút-
ur. Þá eru þau skoluð aftur og sett
í pott ásamt 350 ml af köldu vatni.
Suðan látin koma upp, potturinn
tekinn af hellunni og látið standa
þar til allt vatnið hefur gufað upp.
Mikilvægt er að skola hrísgrjónin
vel áður en þau eru soðin óháð því
hvaða aðferð er notuð við suðuna.
Þegar grjónin hafa náð stofu-
hita er ediksblöndunni bætt við.
Gott er að bleyta hendur með
köldu vatni og móta koddana
í hæfilega stærð. Laxasneiðar
lagðar ofan á. Nori blöð klippt í
lengjur og þeim vafið utan um
koddana.
Léttgrillaður lax
Í léttgrillaða laxinn notaði ég
góðan bita af öðru flakinu. Grillaði
á heitri pönnu í mjög stutta stund
á hvorri hlið þannig að laxinn
grillaðist rétt á yfirborðinu. Svo
skar ég stykkið niður í 3-4 mm
sneiðar og bar fram með teriyaki
sósu. Teriyaki sósan fer vel með
þessum rétti en hún er þykkari og
sætari en sojasósan.
Laxasalat
1 – ½ bolli laxabitar
1 msk. sojasósa
1 vorlaukur skorinn í sneiðar
1 msk. sesamfræ
1-2 tsk. límónusafi
Laxasalatið er algjör snilld til að
nýta laxinn vel. Í það notaði ég
þann hluta af laxinum sem ekki
var nýttur í hina réttina þrjá. Skar
niður í nokkuð smáa bita, blandaði
með sojasósu, niðurskornum
vorlauk, límónusafa og
sesamfræjum. n
6 kynningarblað A L LT 20. ágúst 2022 LAUGARDAGUR