Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.08.2022, Qupperneq 82

Fréttablaðið - 20.08.2022, Qupperneq 82
tsh@frettabladid.is Listamaðurinn Sölvi Dýrfjörð stend- ur fyrir sýningunni Leikur á ljós í Borgarbókasafni Grófinni á Menn- ingarnótt, þar sem hann kynnir glæ- nýtt gagnvirkt ljósaverk klukkan 13. Um er að ræða innsetningu sem samanstendur af lömpum og ljósum sem eru tengdir við forrit er gerir tónlistarmönnum kleift að spila á það og blanda þannig saman ljósum og tónlist. Sölvi hefur boðið úrvals- liða tónlistarmanna að leika á inn- setninguna auk þess sem gestir og gangandi fá að spreyta sig og prufa tónaljósverkið. „Ég fékk þessa hugmynd þegar ég var að hanna ljós fyrir nemendasýn- ingu í Flensborg og hef svolítið verið í þessu, að hanna ljós. Ég ákvað, af því það kostar náttúrlega ógeðslega mikið að leigja allar græjur í það, að gera það bara í tölvunni minni án þess að nota ljósaborð. Þegar ég fór að gera þetta almennilega þá komst ég að því að það væri nokkuð fínt að hafa þessa helstu takka. Ég átti svona lítið MIDI-píanó og ég teipaði bara á það og setti alla takkana sem ég þurfti og tengdi við ljósaforritið,“ segir Sölvi. Út frá þessu spratt svo hug- myndin að gera listaverk sem myndi tengja saman hljómborð og ljós þannig að hægt væri að spila á hvort tveggja. Þá hefur Sölvi einnig tengt gítar við verkið svo tónlistarmenn- irnir geta valið um tvö hljóðfæri. Ljósin sjálf eru samansafn ýmissa gamalla heimilisljósa. „Þetta eru bara gamlir lampar aðallega úr Góða hirðinum, ég er fastagestur þar. Þetta eru lampar og loftljós allt með gömlum perum svo hægt sé að stýra þeim á vissan hátt. Hvert einasta ljós er tengt við eina nótu, þannig að þegar þú spilar á eina nótu þá spilarðu á eitt ljós,“ segir Sölvi. Sölvi er fjölhæfur listamaður með víðtæka reynslu þrátt fyrir ungan aldur, en hann er tvítugur. Hann er með bakgrunn í leiklist og dansi og hefur tekið þátt í ýmsum uppfærslum í Borgarleikhúsinu en starfar nú einnig við ljósmyndun og vídeóframleiðslu. „Ég geri eiginlega bara svolítið það sem mig langar til og ég er mjög heppinn að ég hef hingað til náð að vinna við mín áhugamál,“ segir hann. n Spilað á ljós og hljóð í Borgarbókasafni Sölvi fékk hugmyndina að innsetningunni þegar hann var að hanna ljós fyrir nemendasýningu Flensborgarskóla. MYND/SÖLVI DÝRFJÖRÐ Japanska sendiráðið og Íslenska myndasögusam- félagið gera anime hátt undir höfði á Menningarnótt með uppákomu sem hverfist um teiknimyndaþættina Ter- ror In Resonance þar sem japanskur frásagnarmáti og íslensk tónlist mætast. toti@frettabladid.is Japönsk menningarbylgja með íslenskum undirtónum skellur á Borgarbókasafninu í Grófinni á Menningarnótt, þar sem sendiráð Japans á Íslandi og Íslenska mynda- sögusamfélagið gera manga og anime hátt undir höfði með vinnu- stofum og sjónvarpssýningum á líf legri uppákomu þar sem meðal annars myndlist og matarmenning renna saman. Japanskar manga-myndasögur og anime-teiknimyndir njóta gríðar- legra vinsælda meðal íslenskra my ndasögunörda og Íslenska myndasögusamfélagið taldi upp- lagt hafa anime-þættina Terror In Resonance í forgrunni í dag. Meðal annars vegna þess að lagið Von, eftir Arnór Dan, hljómar þrungið merk- ingu í þáttunum. Meinlaus ögrun „Þeir eru bara frábærir,“ segir Atla Hrafney, hjá Íslenska myndasögu- samfélagsinu um þættina sem hafa lengi notið mikilla vinsælda. Ekki síst meðal teiknimyndanörda með sterkar anime-taugar. „Við erum að fara að sýna þetta á skjá þannig að fólk getur fengið að horfa á þetta sem er bara frábært.“ Atla segist finna fyrir talsverðum áhuga á viðburði dagsins en segir eitthvað um að fólk hafi staldrað við hryðjuverkatenginguna í titlinum. „Þetta er ögrandi en um leið og við bendum á tenginguna við Ísland sem ástæðuna fyrir þessu vali þá finnst fólki þetta bara skemmtilegt,“ segir Atla og heldur áfram að reka þennan menningarlega þráð milli þjóðanna tveggja. Vonin ómar „Ástæðan fyrir að við ákváðum að taka þessa þætti er að lagið Von er í þeim og felur í raun aðalþema þeirra í sér og er stór hluti af hugmynda- fræði þeirra.“ Lagið er eftir tónlistarmanninn Arnór Dan, sem er þekktur sem söngvari Agent Fresco en einnig fyrir samstarf sitt við Ólaf Arnalds og hina japönsku Yoko Kanno, sem semur tónlistina í þáttunum. „Þannig að þetta er kannski svona eitt fyrsta samstarfsverkefni milli landanna í þessum efnum og við ákváðum að halda aðeins upp á það.“ Listaverk verður til Manga- og anime-veislan hefst í Borgarbókasafninu klukkan 12 á hádegi og stendur til 18. Nóg verður í gangi þessar sex klukkustundir því auk þess sem þættirnir margum- töluðu munu rúlla á skjánum verður listaverk af einum myndramma úr þáttunum að listaverki og teiknað verður fyrir gesti og gangandi við innganginn. Þá verður manga- vinnustofa í gangi í boði sendi- ráðsins. Atla segir japanska sendiráðið hafa átt frumkvæði að uppákom- unni og leitað til Íslenska mynda- sögusamfélagins og þá sérstaklega með einhvers konar vinnustofu á Menningarnótt í huga. Þau hafi þá byrjað á byrjunarreit að velta fyrir Íslensk von endurómar í japanskri ógn Endurómur grimmdarverka Hryðjuverk skekur Tókýó í japönsku anime sjónvarpsþáttunum Terror in Resonance. Einu vísbendinguna um hverjir standi að baki ódæðinu er að finna í undarlegu myndbandi á internetinu og á meðan ofsóknaræði fer sem eldur í sinu um samfélagið eru tvö dularfull ungmenni úr leynifélaginu Sfinx harðákveðin í því að rústa heiminum eins og við þekkjum hann. Þættirnir, sem einnig eru þekktir sem Terror in Tokyo, eru hugar- fóstur leikstjórans Shinichirō Watanabe með tónlist frá tónskáld- inu Yoko Kanno. Þáttaröðin telur ellefu þætti og hóf göngu sína í japönsku sjónvarpi sumarið 2014. Ensk talsetning kom síðan út á DVD í byrjun árs 2016. sér hvað væri hægt að gera og eftir að þeim var komið í samband við framleiðendur þáttanna fóru hjólin að snúast hratt í þessa átt. Unglingarnir tengja Manga og anime eru ekki síst vinsæl meðal unga fólksins og Atla telur sig kunna einhverjar skýringar á því. „Ég er búin að fá góðan tíma til að velta þessu fyrir mér vegna þess að við í Íslenska myndasögusam- félaginu erum einmitt búin að reka anime-klúbba fyrir táninga í eitt- hvað um eitt og hálft ár.“ Klúbbarnir eru fyrir 9-12 ára annars vegar og 13-16 ára og funda í Borgarbókasafninu, sem stendur að starfinu með myndasögufólkinu. „Ég held að manga nái betur til ungl- inga vegna þess að það tengir oftast sterkt við það sem þau eru að hugsa, óskir þeirra og tilfinningarnar sem þau finna fyrir. Þannig að þetta er einn af fáum miðlum sem reynir sérstaklega að tengja við það sem krakkarnir eru að hugsa og byggja sögur sínar á því.“ n Atla Hrafney segir tengingu Terror in Reson- ance og lagsins Vonar skemmti- lega og þrungna merkingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Von Arnórs Dan brúar bilið milli Tókýó og Borgarbókasafnsins. ninarichter@frettabladid.is Framleiðendur Sandman og streym- isveitan Netflix komu aðdáendum þáttanna The Sandman ærlega á óvart í gærmorgun með útgáfu nýs þáttar í tveimur hlutum, eins konar viðbótar við fyrstu þáttaröð, sem frumsýnd var í byrjun ágúst. Þættirnir hafa notið mikilla vin- sælda en aðdáendur myndasög- unnar um Sandmanninn hafa beðið síðan 1991 eftir aðlögun fyrir kvik- mynd eða sjónvarp. Allar tilraunir til verksins hafa mistekist þar til nú. Fy rri hlutinn er teik naður og talsettur með gestaröddum leikaranna Söndru Oh, David Tennant og James McAvoy, sem merkilegt nokk fór með hlutverk að a lp er s ónu n na r D r au m s í hljóðbókarformi sögunnar. Seinni hlutinn er leikinn þáttur sem ber titilinn Calliope, eftir per- sónu örlaganornar sem gríska leik- konan Melissanthi Mahut túlkar. n Óvænt viðbót fyrir aðdáendur Sandmannsins Enski leikarinn Tom Sturridge fer með hlutverk aðalpersónunnar í þáttunum The Sandman. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY The Sandman eru Netflix-þættir byggðir á samnefndum myndasögum Íslandsvinarins Neil Gaiman. Þættirnir hafa slegið í gegn meðal aðdáenda. 50 Lífið 20. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 20. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.