Fréttablaðið - 20.08.2022, Page 88
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Lífið er of stutt til þess að láta alls
konar drullu fara í taugarnar á
sér. Ég geri það nú samt. Það er
eiginlega þrennt sem fer mest
í taugarnar á mér. Hin heilaga
þrenning ömurðar kalla ég hana.
Nr. 1 er níska. Það er eðlilegt
að eiga ekki pening og fá hjálp
frá vinum sem eiga meira, en að
eiga nóg milli handanna en vera
alltaf að reyna að fá sem mest út
úr öllum og hugsa alltaf út frá því
hvernig þú fáir meira en aðrir,
er óþolandi. Þið þekkið týpuna.
Þiggur alltaf en splæsir aldrei.
Kúrir eins og heitur hundaskítur
á miðri stétt og bíður eftir að
einhver rétti fram höndina.
Nr. 2 Mannvonska. Það þarf
ekki að útskýra það.
Nr. 3 Tilætlunarsemi.
Týpurnar sem eru alltaf að
koma inn samviskubiti hér
og þar ef ekki er rokið upp
til handa og fóta samkvæmt
síðasta væli. Þetta er sama týpan
og segir aldrei takk. Hvað er
það eiginlega? Tökum dæmi.
Tilætlunarsami Tóti og Telma
eru í mat. Þú opnar dyrnar.
„Velkomin!”
Svarið: „Hæ.”
Þú býður upp á fordrykk og réttir
glasið. Þau brosa.
Þú réttir gratíneruðu
kartöflurnar yfir borðið. „Gjörðu
svo vel“.
Tekið við. Ekkert. Ekki einu
sinni bros. Nú æsast leikar og ég
segi gjörðu svo vel sex sinnum
við borðið.
Og gjafirnar! Er fólk hætt
að þakka fyrir gjafir? Hvenær
þakkaði fermingarbarn síðast
fyrir sig? Sko ekki takk og kíkja
strax í umslagið, heldur þakkaði
fyrir eftir veisluna næst þegar
þið hittust. Veit fólk hvað kostar
að mæta í fermingu?
Takk fyrir að lesa. n
Hundaskítur
Tobbu
Marinós
n Bakþankar
Verslun opin 11-20 – IKEA.is – Veitingasvið opið 10:30-20
Við fögnum nýju skólaári með
skemmtilegum uppákomum
og leikjum í versluninni.
Byrjaðu önnina af fullum krafti með
nýju skrifborði og stól! Skráðu þig
til leiks í versluninni, veldu eina af
þremur skrifborðssamsetningum
og hún gæti endað heima hjá þér.
Allir nemendur sem skila inn
þátttökuseðli eiga kost á að vinna!
Við gefum þér
ferskar og orkuríkar
hugmyndir að nesti
fyrir vikuna.
Giskaðu á hversu mörg mjúkdýr
eru í netinu í svefnherbergisdeildinni.
Skráðu þig til leiks í versluninni
og þú gætir unnið gjafakort í IKEA!
Við bjóðum upp á skólamyndatöku fyrir
alla krakka. Ljósmyndari verður á staðnum
næstu tvær helgar, bæði laugardag og
sunnudag frá kl. 13-16.
Kíktu á IKEA.is
Reykjavík • Mörkin 3 | Akureyri • Undirhlíð 2
ALLT AÐ
50%
AFSLÁTTUR
FARTÖLVUTÖSKUR
Þú finnur réttu fartölvuna í
skólann á tolvutek.is
FÁÐU
ÞÉR ÍS
EMMESS ÍS Í BOÐI
FYRIR ALLA