Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
„Allar húðvörur Taramar eru
þróaðar á sérstakan hátt þannig að
innihald þeirra sé ferskt og nátt-
úruleg tíðni jurtanna sé fullkom-
lega til staðar þegar neytandinn
fær vöruna í hendur. Náttúruleg
tíðni jurta er birting á lífvirkninni
og það er alls ekki sjálfgefið að hún
sé til staðar þótt húðvörur inni-
haldi náttúruleg efni.“
Þetta segir dr. Guðrún Mar-
teinsdóttir, prófessor við líf- og
umhverfisvísindadeild Háskóla
Íslands og frumkvöðull að baki
íslensku Taramar-húðvaranna.
Guðrún, sem ætíð er kölluð
Rúna, segir eina stærstu áskorun-
ina í þróun Taramar-húðvaranna
hafa verið að viðhalda fullri virkni
og samþættingu efna í marga mán-
uði, og helst eitt ár eftir pökkun á
vörunum.
„Það er svo margt sem getur
laskað lífvirknina, bæði áður en
útdrættirnir eiga sér stað og eftir
að vörurnar hafa verið búnar til.
Að ná því takmarki, að viðhalda
fullri lífvirkni, var í raun líkast
galdri. Þegar við skoðuðum húð-
vörur á markaði sáum við að
lífvirkni og náttúruleg efni voru
alls ekki alltaf vernduð, ásamt
því sem formúlurnar voru oft og
iðulega settar í rangar umbúðir.
Þannig er algengt að sjá lífvirkar
vörur í glærum umbúðum, en
ljós, og sérstaklega sólarljós, hefur
neikvæð áhrif á lífvirkni og getur í
raun brotið virknina niður þannig
að efnin nái ekki að sinna hlut-
verki sínu. Einnig er algengt að sjá
húðvörur með ákaflega mörgum
efnum, en í slíkum vörum myndast
togstreita og virku efnin ná ekki að
njóta sín,“ upplýsir Rúna.
Lífvirkar húðvörur ekki alltaf
fullkomlega lífvirkar
Til að framleiða ferskar húðvörur
sem hafa fulla lífvirkni eftir að
þeim er pakkað í umbúðir, þarf
að gæta að fjölmörgum þáttum,
allt frá því að jurtirnar eru rækt-
aðar en líka skornar, þurrkaðar og
geymdar fram að notkun.
„Plönturnar, eða útdráttur úr
þeim, er síðan settur í húðvörur
þar sem samvirkni allra efna skipt-
ir höfuðmáli. Einnig skiptir miklu
máli að velja öll íblöndunarefni
þannig að þau séu sem ferskust og
af sem mestum gæðum. Mikil-
vægt er að íblöndunarefnin komi
frá svæðum þar sem eitrandi efni
eru ekki notuð, og er þeim fylgt í
Dagkremið
Day Treatment
er mest selda
varan hjá Tara
mar. Það vann
á dögunum
alþjóðleg verð
laun Free From
Skincare Awards
í annað sinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Day Treatment dagkrem innheldur kjarna úr íslenskum morgunfrúm, hvönn,
marinkjarna, gulrótum, radísum og apríkósukjarnaolíu. MYND/SVERRIR VICTORS
Ingvar Ingvars
son við tínslu
á ferskum morg
unfrúm sem
hann ræktar við
bestu skilyrði
og án allra eitur
efna.
MYND/SVERRIR
VICTORS
Dr. Guðrún Mar
teinsdóttir er
prófessor við líf
og umhverfis
vísindadeild Há
skóla Íslands og
frumkvöðull að
baki Taramar
húðvaranna.
MYND/AÐSEND
gegnum allt ferlið áður en þau eru
dregin upp í jurtirnar,“ útskýrir
Rúna.
Hún nefnir sem dæmi að akrar
í Norður-Ameríku séu úðaðir allt
að fjórum til átta sinnum á hverju
vaxtartímabili með illgresiseyði og
sveppa- og skordýraeitri.
„Niðurstöður rannsóknir sýna
að yfir 80 prósent Bandaríkja-
manna eru með glýfosat í blóðinu,
en það er virka efnið í illgresiseyð-
um, svo sem Roundup. Efnin eru
slæm, bæði fyrir okkur mann-
fólkið en líka virkni varanna,“ segir
Rúna.
Erfitt að finna hágæðaolíur
á heimsmarkaði
Það tók Taramar heil fimm ár að
finna olíur sem fyrirtækið var
ánægt með og vildi nota í Taramar
húðvörurnar.
„Olía er nefnilega ekki bara
olía,“ segir Rúna. „Margir þekkja
gæðamuninn á ólífuolíu sem seld
er í búðum og svo ólífuolíu sem
er pressuð heima og hennar neytt
strax. Sýnt hefur verið fram á að
lífvirku efnin í ólífuolíu dvína
hratt með aldri. Því er mikilvægt
að hafa aðgang að hágæða olíum
sem koma frá hreinum og lífrænt
vottuðum svæðum, og sem hafa
verið fluttar í hreinum umbúðum
og við réttar aðstæður á milli
landa.“
Lífvirkni Taramar-húðvaranna
byggir á íslenskum jurtum, þangi
og grænmeti.
Dagkremið Day Treatment frá
Taramar er dæmi um húðvöru sem
byggir á ferskri og náttúrulegri
lífvirkni.
„Í Day Treatment eru kjarnar úr
íslenskum morgunfrúm, hvönn,
marinkjarna, maríusvuntu, gul-
rótum og radísum, blandað saman
við lúxus apríkósukjarnaolíu sem
er lífrænt pressuð í Kenýa. Auk
þess eru í dagkreminu ensím, sem
framleidd eru við hreinar aðstæð-
ur, og lífvirkar náttúrulegar ferjur
sem færa virku efnin inn í húðina,“
greinir Rúna frá.
Dagkremið Day Treatment er
mest selda varan hjá Taramar
og vann á dögunum sín önnur
alþjóðlegu verðlaun í „Free From
Skincare Awards“.
„Í heildina hafa vörur Taramar
hlotið 29 alþjóðleg verðlaun fyrir
virkni sína, hreinleika og nýsköp-
un. Í dagkreminu vinnur lífvirkni
íslensku jurtanna í samhljómi við
að styrkja og mýkja húðina, gera
hana teygjanlegri og jafnari, um
leið og húðin fer að ljóma og fær á
sig fallegan blæ,“ segir Rúna, stolt
af Taramar-línunni sem heillað
hefur heiminn. n
Sjá allt um Taramar á taramar.is.
Notið kóðann tm25 þegar verslað
er í netverslun taramar.is til að fá
25 prósenta afslátt.
Í heildina hafa
vörur Taramar
hlotið 29 alþjóðleg
verðlaun fyrir virkni
sína, hreinleika og
nýsköpun.
Dr. Guðrún Marteinsdóttir
2 kynningarblað 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURHÚÐVÖRUR