Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 36
Ég trúði alltaf á að ég
gæti þetta, það var bara
spurning um hvenær.
Mín velgengni er hans
velgengni og öfugt.
16 Íþróttir 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR
hoddi@frettabladid.is
FÓTBOLTI Jóhann Berg Guðmunds-
son, kantmaður Burnley í enska
fótboltanum, lék sinn fyrsta knatt-
spyrnuleik í 212 daga þegar hann
byrjaði í enska deildarbikarnum á
þriðjudag. Jóhann lék þá í 1-0 sigri
liðsins á Shrewsbury. Jóhann var í
byrjunarliði Burnley en fór af velli
í hálf leik enda langt um liðið frá
síðasta knattspyrnuleik kappans.
Burnley féll úr ensku úrvals-
deildinni á síðustu leiktíð en Jóhann
hafði komið við sögu í fyrstu átján
leikjum tímabilsins þegar hann datt
úr leik.
Röð atvika hélt Jóhanni frá
knattspyrnuvellinum í sjö mánuði.
Jóhann, eins og fjöldi annarra, fékk
Covid-19 veiruna í lok janúar, tak-
markanir á lífi fólks urðu til þess
að Jóhann sat fastur heima hjá sér
í nokkra daga.
Þegar hann var að snúa aftur á
völlinn fékk hann botnlangakast
og var sendur í bráða aðgerð vegna
þess. Eftir að hafa hvílt sig í nokkrar
vikur að lokinni aðgerð fór Jóhann
á fulla ferð á æfingasvæði Burnley
þar sem hann reif svo vöðva í kálfa.
Þau meiðsli hafa haldið Jóhanni
frá knattspyrnuvellinum um langt
skeið.
Hann var í fyrsta sinn í leik-
mannahópi Burnley um liðna helgi
en kom ekki við sögu. 212 daga bið
hans tók enda á þriðjudag, fékk
Jóhann nokkuð góða dóma fyrir
endurkomu sína í Burnley-treyjuna.
Burnley leikur í næstefstu deild á
þessu tímabili en gríðarlegar breyt-
ingar hafa orðið á leikmannahópi
liðsins fyrir þetta tímabil, þrettán
leikmenn hafa yfirgefið Burnley og
tólf nýir leikmenn komið í þeirra
stað. Vincent Kompany, fyrrum
fyrirliði Manchester City, er svo
tekinn við þjálfun liðsins.
Jóhann hefur í mörg ár verið
lykilmaður í íslenska landsliðinu en
vegna meiðsla hefur hann ekki verið
með í síðustu verkefnum en gæti nú
snúið aftur ef heilsan leyfir. n
Bráðaaðgerð og meiðsli héldu Jóhanni frá keppni í 212 daga
Jóhann Berg þurfti að bíða þolinmóður í sjö mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Knattspyrnumaðurinn
Nökkvi Þeyr hefur farið með
himinskautum í liði KA í
Bestu deild karla í sumar.
Dalvíkingurinn hefur skorað
sextán mörk í átján leikjum
og nálgast markametið í efstu
deild. Sjálfur er Nökkvi þó
með báða fætur á jörðinni og
er lítið að stressa sig á metinu.
FÓTBOLTI „Ég lagði enn þá meira
aukalega á mig síðasta vetur,“ segir
Nökkvi Þeyr Þórisson léttur í bragði
við Fréttablaðið. Hann hefur haldist
heill í sumar eftir að hafa glímt
við meiðsli á síðustu leiktíð sem
nokkurn tíma tók að ná sér af. Þessi
23 ára gamli sóknarmaður ólst upp
hjá Dalvík en fór ungur að árum til
Þýskalands ásamt tvíburabróður
sínum, Þorra.
Sjálfur hefur Nökkvi aldrei efast
um að hann ætti innistöðu fyrir
þeirri frammistöðu sem hann hefur
sýnt í sumar. „Ég trúði alltaf á að ég
gæti þetta, það var bara spurning
um hvenær.
Spáir lítið í markametið
Markametið í efstu deild á Íslandi
er nítján mörk á einni leiktíð. Fimm
aðilar deila því meti. Fjórir þeirra,
Tr ygg vi Guðmundsson, Pétur
Pétursson, Guðmundur Torfason
og Þórður Guðjónsson, náðu því
í átján leikja Íslandsmóti. Þá náði
Andri Rúnar Bjarnason því í 22
leikja móti. Í ár er mótið 27 leikir
og því dauðafæri til að bæta metið.
Nökkva vantar fjögur mörk til þess.
„Þetta er ekkert sem ég er búinn
að spá mikið í. Ég fer bara í hvern
leik og reyni að gera mitt besta. Það
kemur svo bara í ljós hvort það verði
slegið eða ekki.“
Afar samheldnir bræður
KA hefur komið mörgum á óvart
í sumar og er í öðru sæti Bestu
deildarinnar eftir átján umferðir,
sex stigum á eftir Breiðabliki. „Við
ætlum okkur eins hátt og við getum.
Eins og staðan er erum við með í
þessu,“ segir Nökkvi um gengið og
toppbaráttuna.
Tvíburabróðir Nökkva, Þorri Mar
Dalvíkingurinn sem hefur stolið senunni
Mamma segir:
Móðir Nökkva, Hugrún Felixdóttir, er, eins og
gefur að skilja, stolt af árangri sonarins í sumar.
„Við gleðjumst yfir því að hann sé að uppskera
eftir allt sem hann hefur lagt á sig. Að baki liggur
gríðarleg vinna og einbeiting.“
Hún segir Nökkva og Þorra alltaf hafa sett
markið hátt í boltanum. „Þeir settu sér snemma
markmið og hafa aldrei fallið frá þeim. Það var
alveg klárt hvert hugurinn stefndi.“
Nú þegar allra augu eru á Nökkva vill Hugrún
fyrst og fremst sjá hann njóta sín í fótboltanum.
„Ég vona að hann nái þeim markmiðum sem
hann hefur sett sér, en að sama skapi vil ég að
hann njóti sín. Manni finnst þessi heimur oft
svolítið harður.“
Helgi Fannar
Sigurðsson
helgifannar
@frettabladid.is
Þórisson, er einnig á mála hjá KA.
Þeir bræður eru afar samheldnir,
að sögn Nökkva. „Hann samgleðst
mér alveg rosalega. Mín velgengni er
hans velgengni og öfugt. Við erum
mjög nánir. Ef hann væri að taka alla
athyglina væri ég að springa úr stolti
og samgleðjast honum ekkert smá.“
Haustið 2015 fór Nökkvi, ásamt
Þorra, á reynslu til Hannover í
Þýskalandi. Í kjölfarið fengu þeir
samning.
„Þeim leist svona vel á okkur og
buðu okkur samning. Þetta var
tækifæri sem okkur langaði virki-
lega að hoppa á. Við ákváðum að
sjá hvað myndi gerast,“ segir Nökkvi
og bætir því við að foreldrar þeirra
hafi einnig flutt með þeim til Þýska-
lands. „Það hjálpaði mikið.“
„Ég var í tvö ár þarna og spilaði
alla leiki með U-19 ára liðinu. Maður
var náttúrulega mjög ungur, var sex-
tán ára þegar ég fór út. Kannski var
ég ekki tilbúinn, en ég spilaði alla
leiki.“
Heillaskref að koma heim
Eftir að hafa sannað sig með U-19
ára liðinu var Nökkva boðinn
samningur hjá liði Hannover undir
21 árs. Það heillaði þó ekki. „Þetta
var ekki alveg spennandi bolti. U-21
er ekki alvöru karlabolti og mér
fannst ég geta farið á hærra stig en
U-21 þarna úti. Þetta var líka ekki
brjálæðislega góður samningur. Svo
spilaði heimþrá aðeins inn í.“
Nökkvi ákvað því að koma heim
og spila með Dalvík/Reyni í 3. deild,
sumarið 2018. Þar skoraði hann tíu
mörk í sextán leikjum.
„Það var algjört heillaskref.
Maður fékk heimþrá og var að reyna
að finna gleðina, búinn að vera í
smá harki þarna úti og svo var ég
dálítið ungur. Við unnum deildina
og ég var markahæstur í liðinu.“
Eftir það sumar fékk Nökkvi svo
samning hjá KA, þar sem hann
hefur sprungið út á þessari leiktíð.
Það eru spennandi tímar fram
undan hjá Nökkva utan vallar einn-
ig. Hann og kærasta hans eiga von
á sínu fyrsta barni í nóvember. „Ég
er alveg einstaklega spenntur fyrir
því,“ segir Nökkvi Þeyr Þórisson,
knattspyrnumaður hjá KA. n
Nökkvi Þeyr horfir yfir KA svæðið þar sem hann hefur svo sannarlega blómstrað í sumar, allar líkur eru á því að hann sé að spila sína
síðustu leiki á Íslandi eftir magnaða frammistöðu í Bestu deildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN