Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 4
bth@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL „Ég get ekki sagt að
þessi vaxtahækkun hafi komið á
óvart, ég átta mig á að Seðlabankinn
hefur áhyggjur af verðbólgunni en
stóra málið nú er hvernig stjórnvöld
bregðast við almennum verðhækk-
unum,“ segir Kristrún Frostadóttir,
þingkona Samfylkingarinnar og for-
mannsefni.
Kristrún bendir á að fjöldi ungs
fólks hafi tekið há húsnæðislán eftir
að fjármálaráðherra og seðlabanka-
stjóri hafi talið þjóðinni trú um að
lágvaxtaumhverfi væri komið til að
vera hér á landi.
„Margt ungt fólk er að fá mjög
þungan skell.“
Tekjulágir og þeir sem sjái fram á
stóraukna greiðslubyrði þurfi sér-
tækar mótvægisaðgerðir. Dæmi um
Stýrivaxtahækkunin mjög þungur skellur fyrir ungt fólk
Kristrún
Frostadóttir.
slíkt gætu verið útfærsla á auknum
vaxtabótum fyrir þá sem skulda há
lán vegna kaupa á fyrstu eign.
„Vaxtabótakerfið er alveg farið,
það eru ótrúlega fáir sem fá vaxta-
bætur núna,“ segir Kristrún.
Í Covid var að sögn Kristrún-
ar skrúfað frá miklu lánsfjármagni
sem bönkunum var falið að stýra.
Í stað þess að beina fénu til ein-
staklinga og fyrirtækja í neyð hafi
féð farið inn á eignamarkaðinn.
Það hafi verið hagstjórnarmistök
Nú þurfi að vinna í því hvernig við
náum þessu fjármagni aftur út úr
kerfinu.
„Það þarf að draga úr þenslunni
en við þurfum líka að átta okkur
á rótinni. Helmingurinn af verð-
bólgunni er húsnæðisverðbólga og á
henni bera stjórnvöld ábyrgð,“ segir
Kristrún. n
olafur@frettabladid.is
FJÖLMIÐLAR Dagblöð framtíðar
verða rafræn en ekki prentuð.
Meirihluti áskrifenda The Wall
Street Journal hefur rafræna áskrift.
Vaxandi meirihluti auglýsinga-
tekna WSJ, og fleiri blaða sem hafa
boðið upp á vefáskriftir jafnframt
hefðbundnum prentáskriftum,
kemur nú vegna stafrænna aug-
lýsinga.
Dagblöð hafa reynt fyrir sér á
vefnum í meira en tvo áratugi. Þró-
unin frá prentun í stafrænt hefur
verið stöðug og vaxandi.
Covid breytti mik lu. Þegar
aðfangakeðjan rofnaði varð skortur
á pappír. Mörg stór dagblöð víðs
vegar í heiminum, sem ávallt höfðu
komið út sjö daga vikunnar og sum
jafnvel oftar en einu sinni á dag,
fækkuðu útgáfudögum. Blaðaút-
gáfa er því óðum að breytast og lík-
legt að hins prentaða dagblaðs bíði
örlög risaeðlunnar.
Ekki mun þó komið að því.
Reynsla bandarískra bæjarblaða
bendir til þess að þó að framtíðin
liggi í hinu rafræna sé hið prentaða
blað enn mikilvægt, ekki síst til að
stýra lesendum yfir á vefútgáfuna.
Sem kunnugt er ætla útgefendur
BT í Danmörku að taka stökkið um
áramót. Kannski eru Evrópumenn
komnir lengra í þessum efnum en
Bandaríkjamenn. Tilraun BT getur
leitt í ljós hvort svo sé. n
Skjárinn tekur
við af lúgunni
BT ætla að taka stökkið um áramót.
FIAT.IS • ISBAND.IS
FULLKOMINN Í
BORGARFERÐIR
„Ítölsk hönnun hefur alltaf veitt okkur í HAF
studio mikinn innblástur og þess vegna
varð rafknúinn Fiat 500e fyrir valinu.“
Haf steinn Júlí us son og Karítas Sveins dóttir
NÝ SENDING Á LEIÐINNI – TRYGGÐU ÞÉR EINTAK
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LOKAÐ LAUGARDAGA
Leitt og ósanngjarnt að
ég skuli þurfa að sitja
undir því ámæli að ég
vilji bjóða Sighvati
Björgvinssyni en ekki
Jóni Baldvini á við-
burð af þessu tagi.
Guðni Th. Jóhannesson,
forseti Íslands.
Hátíð með þremur forsetum
Eystrasaltslanda veldur
ósætti. Misskilningur, segir
forseti Íslands. Fyrrverandi
ráðherra segist ekki una
því að vera kallaður
ósannindamaður.
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Guðni Th. Jóhannes-
son, forseti Íslands, segir að alltaf
hafi staðið til að bjóða Jóni Bald-
vini Hannibalssyni, fyrrum utan-
ríkisráðherra, til hátíðar sem fram
fer á morgun með forsetum Eystra-
saltsríkjanna.
Sighvatur Björgvinsson, fyrrum
ráðherra af þakkaði í gær í bréfi til
forsetaskrifstofu boð á þingið. Jón
Baldvin mun einnig sitja heima.
Deilt hefur verið um tímalínu
og atburðarás. Embætti forseta
Íslands segist hafa haft upplýsingar
um tvö netföng Jóns Baldvins, sem
kann að skýra misræmi í frásögn-
um hlutaðeigandi. Annað boðið
var sent klukkan 11.24 á mánudag,
hitt boðið kl. 14.06. Forsetaemb-
ættið viðurkennir að æskilegt hefði
verið ef fundarboðið hefði verið
sent fyrr.
Sighvatur Björgvinsson, fyrrum
ráðherra og samflokksmaður Jóns
Baldvins, telur að ef hann hefði
ekki gripið inn í með símtali við
forsetaskrifstofu hefði Jóni Bald-
vini mögulega ekki verið boðið til
samkundunnar. Það hefði verið
hneyksli því Jón Baldvin sé lykil-
maður í sjálfstæði Eystrasaltsríkj-
anna.
Um það hvort við hæfi hefði
verið að bjóða Jóni Baldvini að
f lytja ræðu á þinginu segir forseta-
embættið:
„Forseti sá fyrir sér að fyrrverandi
utanríkisráðherra myndi ræða við
forseta Eystrasaltsríkjanna og aðra
gesti að loknum fyrirlestrinum í
hátíðarsal Háskóla Íslands.“
Jón Baldvin mun þó ekki ræða
Sighvatur og Jón sitja báðir heima
Blásið hefur um
forsetaemb-
ættið vegna
lýðræðishátíðar
sem fram fer
á morgun. Að
minnsta kosti
tveir fyrrverandi
ráðherrar ætla
að sitja heima.
Forsetaemb-
ættið segir
deiluna byggða
á misskilningi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
við forsetana eins og að var stefnt,
því hann ætlar ekki að þiggja boðið.
Hann sagði á sjónvarpsstöðinni
Hringbraut í gærkvöldi að þrátt fyrir
ásakanir um of beldi hefði hann
engan dóm hlotið. Sum málanna
gegn honum væru dellumál.
Sighvatur Björgvinsson telur
einnig ljóst að ásakanir hafi haft
áhrif. Sighvatur ætlar ekki frekar
en Jón að þiggja boð stjórnvalda og
HÍ að heiðra þingið með nærveru.
Í bréfi sem Sighvatur sendi for-
setaembættinu í gær segir að fyrri
boð embættisins til Jóns Baldvins
hafi verið send á um tíu ára gamalt
og úrelt tölvupóstfang Jóns. Ólíkt
öðrum hafi ekki verið haft sam-
band við Jón Baldvin fyrir síðustu
helgi til að kanna hvort upplýsingar
um netföng væru réttar. Þess vegna
hefði Jón Baldvin ekki fengið nein
boð fyrr en eftir að hann aðhafðist.
„Og svo segir í athugasemd for-
setaskrifstofunnar að ósatt sé með
öllu að Jón Baldvin hafi ekki fengið
boðskortið samhliða öðrum boðs-
gestum. Sem sé, að ég sé ósann-
indamaður,“ skrifar Sighvatur.
„Vildir þú kannske heldur að ég
mætti og nýtti tækifærið til þess
að vekja athygli forseta Eystra-
saltslandanna á því, að Jón Bald-
vin sé fjarstaddur og hvergi sé ráð
fyrir því gert, að hann verði á vegi
þeirra?“ bætir Sighvatur við
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, segir að tal Sighvats um
meinta hundsun Jóns Baldvins sé
á misskilningi byggt.
„Mér þykir það leitt og ósann-
gjarnt að ég sem hef rannsakað
þessa sögu meira en nokkur annar
hér á landi, skuli þurfa að sitja undir
því ámæli að ég vilji bjóða Sighvati
Björgvinssyni en ekki Jóni Baldvini
á viðburð af þessu tagi,“ sagði Guðni
forseti í viðtali á Hringbraut. n
4 Fréttir 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ