Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 32
Prjónahönnuðurinn Bergrós
Kjartansdóttir gaf nýlega út
bókina Sjalaseiður. Bókin
inniheldur níu prjónaupp-
skriftir sem henta öllu
prjónafólki, bæði byrjendum
sem lengra komnum.
starri@frettabladid.is
Nýlega kom út bókin Sjala-
seiður eftir Bergrós Kjartansdóttur
prjónahönnuð. Bókin inniheldur
níu prjónauppskriftir sem henta
öllu prjónafólki, bæði byrjendum
sem lengra komnum, að sögn Ber-
grósar.
„Fyrir vikið er bókin tilvalin í
kennslu fyrir alla aldurshópa. Á
milli uppskriftanna er skyldleiki
sem kemur í ljós við nánari kynni.
Hvert og eitt sjal á sér tvíburasyst-
ur því hvert sjal er sýnt í annarri
útfærslu hvað band og liti snertir.
Samtals eru því myndir af átján
sjölum í bókinni.“
Sjölin í bókinni hafa hlotið nöfn
sem tengjast fornum fyrirbærum
sem Bergrós hefur verið að stúdera
í gegnum tíðina og í meistaranámi
sínu, núna í íslenskum bók-
menntum og menningarfræðum.
„Mér finnst gaman að segja sögur
og miðla gömlum fræðum, þá
bæði bókmenntalegri þekkingu og
handverksþekkingu, sögurnar eru
þá sagðar bæði með hug og hönd.“
Hverju sjali fylgir saga eða ljóð
Bergrós segir hvert sjal hafa sitt
form og lögun og síðan eiga þau
líka mismunandi upphaf og endi.
„Sum byrja frá hálsakoti, önnur
frá neðri kanti, enn önnur á miðju
baki eða frá vængenda. Sum eru
prjónuð í einu lagi og önnur í
tvennu lagi. Hverju sjali fylgir saga
eða ljóð sem túlkar útlit sjalsins
og tilurð. Von mín er sú að þegar
prjónari er búinn að prjóna eitt sjal
langi hann til að prjóna fleiri og
jafnvel allan Sjalaseiðinn, en þá fer
galdurinn að gera sig.“
Fæðing Sjalaseiðs hefur tekið
góðan tíma. Bergrós hefur þekkt
prjónaheiminn vel og lengi og
smátt og smátt mótaðist sú hug-
mynd að hún vildi að bókin sem
hún skrifaði yrði ein heild, að allar
uppskriftirnar myndu tengjast
og hverfast um áhuga hennar á
bókmenntum og ljóðum annars
vegar og svo handverki og hönnun
hins vegar. „Ég er líka bókmennta-
fræðingur og gullsmiður og hef alla
tíð haft mikinn áhuga á að tengja
akademísk fræði og handverkið
saman.
Síðan er það áhugi minn á heim-
ilisiðnaði sem kemur til kastanna
og að bæta heiminn með því að
hvetja fólk til að læra einfalda tækni
og búa sjálft til heima hjá sér með
eigin höndum það sem það langar í.
Fá fólk til átta sig á hve mikil heilun
og ró felst í þessari vinnu.
Með allt þetta að leiðarljósi
kviknaði hugmyndin mín að þess-
ari bók, Sjalaseið.“
Byrjaði ung að prjóna
Bergrós segist hafa lært að prjóna
mjög ung og hafi hún heillast
strax af þessari tækni. „Ég byrjaði
svo að hanna flíkur í handprjóni
í kringum tvítugsaldurinn. Fyrst
fyrir sjálfa mig og mitt fólk en svo
fór ég að hanna fyrir norskt fyrir-
tæki sem framleiddi ullarband.
Síðan fór ég líka að hanna vél-
prjónaðar flíkur sem voru seldar í
verslanir á Íslandi.“
Fyrir meira en áratug var hún
ráðin til að hanna flíkur fyrir Ístex
og starfaði þar í því í nokkur ár.
„Meðfram því var ég líka alltaf að
hanna flíkur í handprjóni fyrir
sjálfa mig og setti á laggirnar síð-
una mína Tíbrá.is en þar er hægt
að skoða og kaupa hönnun mína.
Einnig er hægt að kaupa stakar
uppskriftir eftir mig á Ravelry.com.
Fljótlega fór svo að bera á löngun
til að gera mína eigin bók. Með alla
þessa reynslu á bakinu kom það
dálítið af sjálfu sér, eins og eðlilegt
skref í mínum ferli, að gefa út bók.
Það var hins vegar ekki gert á einni
nóttu og miklu meira mál en ég
Sögur sagðar bæði
með hug og hönd
hélt í fyrstu, en með aðstoð góðra
kvenna tókst að leggja lokahönd á
þá hugmynd nýverið.“
Bergrós er hálfnuð í meistara-
námi sínu í íslenskum bókmennt-
um við Háskóla Íslands og er farin
að huga að lokaritgerð.
„Næsti seiður er einnig í smíðum
sem mun tengjast ritgerðinni á
fleiri en einn veg en það kemur í
ljós síðar hvernig þeir vegir munu
liggja saman. Eitt er þó öruggt að
í næsta seið verða líka sögur og
tengingar sem hægt er að segja frá
með hug og hönd.“
Ritstjóri uppskrifta er Hulda
Hákonardóttir. Sjalaseiður kemur
út á bæði íslensku og ensku og fæst
í öllum betri bókabúðum, prjóna-
búðum og á vef útgefanda hennar,
Bókabeitunni, á bokabeitan.is. n
Þetta sjal
heitir Seiður
en í gömlum
kvæðum segir
að gyðjum hafi
í upphafi
verið kenndur
seiðurinn.
Nótt og nift er nafnið á þessu sjali.
Nift þýðir afkomendur og þá sér-
staklega kvenkynið. Út frá þessu sjali
fæddist ættbálkurinn Sjalaseiður.
Ásynja heitir þetta sjal en Snorri Sturluson segir í Eddu sinni að ásynjur séu
jafn heilagar og mikils ráðandi og æsir.
Bergrós Kjartansdóttir er prjóna-
hönnuður og bókahöfundur.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúi
Sími: 550 5654 / jonivar@frettabladid.is
Fasteignasölur
Bjóðum fasteignasölum tækifæri til að kynna starfsfólk,
þjónustu og fyrirtækið fyrir lesendum Fréttablaðsins.
Þriðjudaginn 30. ágúst kemur út sérblaðið
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudagin 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarn r lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 kynningarblað A L LT 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR