Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 16
Andrea er með fallegan og klass-
ískan fatastíl sem tekið er eftir og
hefur gaman af að raða saman mis-
munandi outfittum við klassískan
blazer jakka. Andrea er 25 ára
gömul og býr í Garðabænum. Hún
útskrifaðist í sumar með BS-gráðu í
Viðskiptafræði með markaðsfræði
sem aukagrein og diplómanámi í
stafrænni markaðssetningu. „Ég
hóf nýverið störf hjá Datera sem er
ótrúlega skemmtilegur og gefandi
vinnustaður og haustið verður
spennandi tími,“ segir hún.
Andrea fylgist með tískustraum-
unum og nýtur þess að sjá nýju
trendin fyrir haustið. „Ég fylgist
mikið með áhrifavöldum til að fá
innblástur á þeirra stíl á Instagram
og fíla mest stílinn frá Danmörku,“
segir Andrea, sem spáir ávallt í
hverju hún klæðist þegar hún fer í
vinnuna.
Stíllinn afslappaður og stílhreinn
Hvernig myndir þú lýsa fatastíln-
um þínum? „Ég myndi lýsa stílnum
mínum sem mjög afslöppuðum,
svörtum og stílhreinum. Fer eftir
skapi hvernig ég klæði mig en mér
finnst geggjað að grípa blazer
yfir mismunandi outfit og poppa
þannig upp á lúkkið.“
Þegar kemur að vali að sniðum,
er eitthvað sem heillar þig frekar
en annað?
„Já, ég er mikið fyrir oversized
eða yfirstærð, sem ég elska að
para við sokkabuxur eða þröngar
buxur.“
Þegar kemur því að klæða sig
eftir árstíðum er það eitthvað sem
á við þig?
„Já, ég elska tískuna sem fylgir
haustinu, svo afslöppuð, þá notar
maður mikið kápur og stígvél.“
Hver er þín tilfinning fyrir haust-
tískunni, hvað heldur að verði heitt
í haust?
„Cargo-buxur og co-ords. Ég
heillast mjög mikið að co-ords sem
þú getur líka blandað saman við
aðrar flíkur.“ Co-ords eru sam-
stæðar flíkur, toppur og buxur
eða pils. Getur líka verið dragt og
carco-buxur eru sportlegar og oft
með stórum vösum á skálmunum.
Elskar að kaupa nýjan blazer
Aðspurð segir Andrea að hennar
uppáhaldsflíkur séu oversized
blazer, eða blazer í yfirstærð. „Þú
getur alltaf poppað upp mismun-
andi outfit með góðum blazer. Ég
elska að kaupa mér nýjan blazer og
á mikið af þeim í alls konar litum
og týpum.“ Andrea segist ekki
endilega fylgja tískustraumum
þegar kemur að litavali á þeim
flíkum sem hún velur sér, hún velji
sér frekar flíkur sem henni finnst
klæða sig best. „Ég er mikið í svörtu
en stundum er ég til í liti og þá fer
ég alveg í skæra liti eins og skær-
grænan eða bleikan.“
Áttu þinn uppáhaldsfata-
hönnuð?
„Mér finnst allt sem kemur frá
Anine Bing sjúklega flott og passa
vel fyrir minn stíl.“
En þau tískuvörumerki sem
heilla þig mest?
„Hugo Boss, Sand, Gustav Den-
mark, Zara & Djerf Avenue.“
Aðspurð segist Andrea elska
strigaskótískuna. „Þá nota ég þá
bæði fínt og hversdags en svo
nota ég mikið fínni skó líka eins
og loafers frá Billi Bi.“ Loafers eru
sléttbotna mokkasínur.
Það vefst ekki fyrir Andreu
hvaða fylgihlutir henni finnast
ómissandi að eiga í dag, blazerinn
steinliggur þar. „Góður blazer og
sneakers er must have,“ segir Andr-
ea sem leyfir sér að sletta aðeins. n
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Hér er stíllinn
hennar Andreu
í hnotskurn,
skyrta, buxur
og skór frá Boss,
sem lýsir vel því
sem koma skal
í haust. Svarti
liturinn kemur
sterkur inn
aftur, stílhreinar
flíkur sem gefa
afslappað yfir-
bragð og undir-
strika þægindin.Andrea klæðist hér fallegum himinbláum blazer kjól úr Zöru sem er tvíhnepptur og gerir hann
virðulegan fyrir vikið. Skórnir eru frá GS skór.
Afslappaður klæðnaður er í anda Andreu og hér er hún í þægilegum svörtum kjól frá Zöru sem
skartar þessari skemmtilegu klauf. Blazerinn settur punktinn yfir i-ið og skórnir steinliggja við
dressið en þeir eru frá Axel Arigato. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Ég fylgist mikið
með áhrifavöldum
til að fá innblástur á
þeirra stíl á Instagram og
fíla mest stílinn frá
Danmörku.
Andrea Eiríksdóttir
2 kynningarblað A L LT 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGUR