Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 2
104 sóttu um árið 2020 og 361 árið 2021. Glamúr og gleði Miss Universe Iceland fór fram með glæsibrag í Gamla bíói í gærkvöldi, en þetta er í sjöunda sinn sem keppnin er haldin. Alls sextán stúlkur hvaðanæva af landinu öttu kappi um að næla í kórónuna langþráðu. Mikil gleði og eftirvænting ríkti baksviðs í gærkvöldi þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði, enda stúlkurnar við það að stíga á svið og uppskera árangur erfiðisins síðustu vikur og mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Hátt í þrjú hundruð börn hafa fengið efnislega aðstoð frá Hjálparstarfi kirkjunnar nú í upphafi skólaárs. Þá hefur aðsókn aldrei verið meiri hjá Fjölskylduhjálp Íslands. birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG 136 fjölskyldur, þar með talin 292 börn, hafa fengið efnislega aðstoð hjá Hjálparstarfi kirkjunnar undanfarna daga. „Aðsóknin er mun meiri núna en í fyrra,“ segir Áslaug Arndal, hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, en á síðasta ári feng- um 200 börn efnislega aðstoð frá hjálpar starfinu í upphafi skólaárs. Áslaug segir úthlutun hafa gengið mjög vel, flesta vanti útiföt og skóla- töskur fyrir veturinn. „Fólk hefur verið mjög duglegt að koma með útiföt og skólatöskur til okkar svo við eigum nóg fyrir alla. Það er dásamlegt hvernig fólk hefur brugð- ist við og aðsóknin er það mikil að við munum hafa opið aftur á föstu- daginn,“ segir Áslaug, en opið verður á milli 10 og 12 á morgun. Spurð að því hvort að hver sem er geti komið og þegið hjálp, segir Áslaug alla þurfa að veita ákveðnar persónuupplýsingar til að hægt sé að veita hjálpina. „Margir sem eru að koma núna hafa komið til okkar áður svo við þekkjum þeirra aðstæður, en fólk þarf að sýna okkur fram á að börnin sem um ræðir séu þeirra börn og þar fram eftir göt- unum,“ segir hún. Áslaug segir stóran hluta þeirra sem leitað hafi eftir hjálp undanfar- ið vera flóttafólk frá Úkraínu. „Bæði það og fólk frá öðrum löndum sem er kannski ekki alveg komið inn í samfélagið og komið með vinnu og svona en börnin komin í skóla. Svo komu líka margir hingað í f lýti og tóku ekki allt sitt dót með, eins og skólatösku og vetrarföt,“ segir Áslaug. Ásgerður Jóna Flosadóttir, for- maður Fjölskylduhjálpar Íslands, tekur undir orð Áslaugar og segir að mikið hafi verið að gera undan- farið í Fjölskylduhjálpinni. Bæði á markaði þeirra, þar sem hægt sé að versla föt á afar lágu verði sem og í matarúthlutunum. „Og ekki bara undanfarið heldur hefur verið mjög mikið að gera allt þetta ár, aðsóknin hefur aldrei verið meiri,“ segir Ásgerður og tekur dæmi: „Vanalega erum við með átta stóra úthlutunardaga í mánuði en í ár höfum við úthlutað mat alla virka daga. Bara í gær á Suður- nesjum úthlutuðum við mat til 137 heimila,“ segir hún. Ásgerður segir að á þeim 26 árum sem hún hafi unnið í þágu fátækra hafi hún ekki séð neina breytingu til batnaðar. „Þetta er frekar að verða harðara og harðara. Maður skilur bara ekki hvað pólitíkusarnir eru rólegir yfir þessu, vandamálið er risastórt og ég er viss um að ráðamenn fái taugaáfall þegar tölurnar frá okkur fyrir árið verða gefnar út,“ segir Ásgerður. n Fjölda barna og fjölskyldna vanhagar um föt og mat Á síðasta ári fengu 200 börn aðstoð í upphafi skólaárs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Áslaug Arndal Ásgerður Jóna Flosadóttir birnadrofn@frettabladid.is ÚTLENDINGAMÁL Á fyrstu sjö mán- uðum ársins hafa 489 einstakling- ar frá Venesúela sótt um vernd á Íslandi. Það er mikil fjölgun frá árunum á undan en 361 einstakl- ingur frá Venesúela sótti um vernd á Íslandi á síðasta ári og árið 2020 voru umsóknirnar 104. Á tímabilinu janúar til og með júlí sóttu 2.318 einstaklingar um vernd hér á landi. Þar af voru rúmlega fjórtán hundruð frá Úkraínu, 83 frá Palestínu og 43 frá Írak. Langflestar umsóknir bárust í mars, sem má rekja til innrásar Rússa í Úkraínu sem hófst í lok febrúar. n Mörg hundruð frá Venesúela sótt um alþjóðlega vernd benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG „Þarna teljum við að það sé verið að mismuna fólki á þeim for- sendum hvaða farartæki það velur sér,“ segir Steinmar Gunnarsson rit- ari Sniglanna, en bifhjólafólk er ósátt við að lögreglan krefji þá sem ætla í árlega hópkeyrslu bifhjólaklúbbsins ARNA 3. september í Njarðvík að skrá sig með rafrænum skilríkjum. Steinmar situr einnig í stjórn FEMA, evrópskra hagsmunasam- taka bifhjólafólks. Þar sendi hann póst á sína kollega og lýsti mála- vöxtum. „Allir sem hafa svarað, sama hvort það er í Noregi, Svíþjóð, Grikklandi eða Írlandi eða hvar, segja að svona nokkuð hljóti að brjóta í bága við persónuverndar- lög,“ segir hann. Hann segir að Sniglar hafi haldið hópakstur þann 1. maí um árabil þar sem enginn þurfi að skrá sig og allt sé unnið vel í samvinnu við lög- reglu og borgina. Steinmar er búinn að senda erindi á persónuvernd og á umboðsmann alþingis. Samkvæmt lögreglunni er ástæða skráningar- innar eftirlit með skipulögðum glæpasamtökum sem notast við mótorhjól. n Bifhjólamenn ósáttir við skráningu Bifhjólafólk þarf að skrá sig með rafrænum skilríkjum ef það vill aka með félögum sínum. Mótmæli í Venesúela í mánuðinum. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n h ú s g a g n av e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið 2 Fréttir 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.