Fréttablaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 26
Margar þessara
jurta vaxa villtar
hér á landi en aðrar eru
innihaldsefni í náttúru-
legum húðvörum sem
má nálgast víða.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Jurtir hafa verið notaðar til
lækninga svo öldum skiptir.
Þegar kemur að húðum-
hirðu þjóna jurtir þeim
tilgangi að bæta ilmi, virkni
og græðandi þáttum við
margar af þeim húðvörum
sem við notum.
Eftirfarandi jurtir eru allar
þekktar fyrir að bæta húðina á
einn eða annan hátt.
Mánasteinssmári
Hinrik VIII. notaði þessa jurt
gjarnan, sem varð til þess að
jurtin varð þekkt undir nafninu
King‘s clover, eða konungssmári
á íslensku. Þessi jurt dregur úr
roða og þurri húð og skilur húðina
eftir ljómandi, unglega og jafnar
út húðlitinn. Þessi jurt er notuð
í ýmsar húðvörur, leitið eftir
Yellow sweet clover eða melilotus
officinalis í innihaldslýsingunni
ef þið viljið finna vöru sem inni-
heldur mánasteinssmára.
Lofnarblóm
Lofnarblóm sem fleiri þekkja
sem lavender er notað í ýmis te
og vörur ætlaðar til slökunar. Auk
þess að hafa slakandi eiginleika
hefur lofnarblóm einnig náttúru-
lega sótthreinsandi eiginleika og
það hjálpar til við að örva blóð-
rásina til að styðja við náttúrulega
lækningastarfsemi líkamans.
Kamilla
Lofnarblóm er ekki eina jurtin
sem vinsælt er að nota til slökunar.
Kamilla er annar góður valkostur.
Auk róandi eiginleika jurtarinnar
hefur kamilla endurnærandi og
græðandi eiginleika, sem gera
þessa jurt einstaklega áhrifaríka
við húðumhirðu.
Sólhattur
Sólhattur er vinsæl jurt til notk-
Jurtir sem
bæta húðina
Blóðberg virðist hafa góð áhrif gegn unglingabólum samkvæmt breskri rannsókn.
Valurt er talin geta hægt á öldrun
húðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Lofnarblóm hefur sótthreinsandi eiginleika.
unar gegn kvefi og f lensu, en sól-
hattur hefur marga aðra læknandi
eiginleika sem vert er að nýta
sér. Fjöldi rannsókna styður að
sólhattur hjálpi til við að styrkja
ónæmiskerfið, draga úr bólgu og
vinna gegn ýmsum veirum. Sól-
hattur er sérstaklega gagnlegur til
að draga úr einkennum sýkingar í
efri öndunarvegi. Þessi græðandi
blómjurt getur einnig aukið nátt-
úrulegt ónæmi húðarinnar og
verndað hana gegn umhverfis-
áhrifum.
Valurt
Rót og lauf jurtarinnar hafa verið
notuð í hefðbundnum lækningum
víða um heim í margar aldir. Í
Japan hefur plantan verið ræktuð
og notuð í lækningaskyni í yfir
2.000 ár. Elstu heimildir sem til
eru um notkun valurtar í græð-
andi tilgangi eru frá því árið 400
fyrir Krist. Valurt er talin geta
hægt á öldrun húðarinnar og er
notuð í ýmsar húðvörur.
Blóðberg
Blóðberg er hægt að nota í margt
f leira en te. Blóðberg hefur
sveppadrepandi, bólgueyðandi
og bakteríudrepandi eiginleika.
Það er almennt notað sem rot-
varnarefni í matvæli og snyrti-
vörur. Nokkrar vísbendingar úr
breskri rannsókn gefa til kynna
að blóðbergsblöndur virki betur
gegn unglingabólum en margar
vinsælar vörur sem má kaupa úti
í búð.
Piparmynta
Piparmynta er andoxunarefni sem
slakar á huga, líkama og húð, þökk
sé kælandi og frískandi ilmi jurt-
arinnar. Piparmynta er ein af elstu
lækningajurtum sem notaðar
eru í evrópskum, kínverskum og
japönskum alþýðulækningum og
við gerð húðsmyrsla.
Rósmarín
Önnur ómissandi jurt fyrir heilsu
og vellíðan er rósmarín. Rósmarín
getur haft margvísleg jákvæð
áhrif á líkamann. Allt frá því að
bæta meltinguna til þess að lækka
blóðþrýsting. Rósmarín er einnig
öflugur græðari. Það hefur bólgu-
eyðandi og náttúrulega herpandi
eiginleika sem hjálpa til við að
hægja á öldrun húðarinnar með því
að eyða skaða vegna sindurefna.
Þessar jurtir eru einungis nokkur
dæmi um þær fjölmörgu jurtir
sem hægt er að neyta eða nota við
útvortis húðumhirðu til að bæta
heilbrigði húðarinnar. Margar
þessara jurta vaxa villtar hér á
landi en aðrar eru innihaldsefni í
náttúrulegum húðvörum sem má
nálgast víða. Það er um að gera að
nýta eiginleika náttúrulegra jurta
til að viðhalda fallegri og hraustri
húð. n
8 kynningarblað 25. ágúst 2022 FIMMTUDAGURHÚÐVÖRUR